Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2019, Side 2

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2019, Side 2
Þriðja tölublað afmælisársins er í veglegri kantinum en þrátt fyrir að blaðið sé orðið 116 síður bíður enn efni birtingar í fyrsta tölublaði 2020. Í tilefni aldarafmælis félags- ins var flett í félagatalinu í þeirri von að finna hjúkrunarfræðing sem ætti hundrað ára afmæli á árinu. Þar kom nafn Sigrúnar hermannsdóttur upp, en hún er eini nú- lifandi hjúkrunarfræðingurinn sem er jafnaldri félagsins en hún fagnar einmitt aldar - afmæli í lok ársins. Þrátt fyrir háan aldur fylgist hún vel með fréttum og man tímana tvenna en hún unir sér vel á hjúkrunarheimilinu Sóltúni. Þeir eru nokkrir félagsmenn öldungadeildar félags íslenskra hjúkrunarfræðinga á tíræðisaldri sem láta sig ekki vanta á þá fjölmörgu viðburði sem deildin stendur fyrir. Þá eru rifjaðir upp gamlir tímar enda margir sem lærðu til hjúkrunar á sama tíma, og aðrir sem unnu saman á starfsævinni. Öldungadeildin er langfjölmennust af þeim fagdeildum sem starfræktar eru innan félagsins og fer félagsmönnum ört fjölgandi. Því fer fjarri að þeir sitji með hendur í skauti en fyrir tilstuðlan þeirra er búið að koma á fót muna- og minjanefnd, auk þess sem félagar öldungadeildarinnar stóðu fyrir því að láta endurgera slörhatt Sigríðar Eiríks dóttur sem var frumsýndur á sögusýningunni hjúkrun í 100 ár. Öldungadeildin á stórafmæli á næsta ári og verður fertug en deildin var stofnuð 1980 og hlaut þá nafnið hlíf. ritnefnd ritrýndra greina hefur unnið að því að uppfæra leiðbeiningar til höfunda ritrýndra greina og birtum við þær af því tilefni í þessu tölublaði. Þær verða einnig aðgengilegar á vefsíðu félagsins. alls eru fimm ritrýndar greinar í þessu tölublaði, það skýrir að hluta fjölda blaðsíðna að þessu sinni. Þá eru áhugaverðar fræðslugreinar í blaðinu, m.a. um sýkingavarnir á sjúkrahúsum, húðbruna vegna þvag- og hægða - leka og um reynslu sjúklinga og aðstandenda af lífi með parkinsonveiki. Á afmælisárinu hafa vikulega verið birt viðtöl við hjúkrunarfræðinga á vef og face book-síðu félagsins. Markmiðið er að endurspegla fjölbreytileika stéttarinnar og fá innsýn í líf og störf félagsmanna. Í þessu tölublaði eru birt brot úr þeim viðtölum sem þegar hafa birst frá maí til september. Þátttakendum í ljósmyndasamkeppninni Með augum hjúkrunarfræðingsins er þakkað sérstaklega fyrir þátttökuna en aldrei hafa fleiri tekið þátt og fyrir vikið var fjöldi innsendra mynda á áttunda tug. Það var því úr vöndu að ráða en fyrir valinu varð ljósmynd Sigurveigar Björgólfsdóttur sem hún tók á kvöldgöngu við reykja- víkurtjörn í september. 2 tímarit hjúkrunarfræðinga • 3. tbl. 95. árg. 2019 helga Ólafs ritstjóri. Ritstjóraspjall TÍMARIT HJÚKRUNARFRÆÐINGA Suðurlandsbraut 22, 108 reykjavík Sími 540 6405 netfang helga@hjukrun.is Vefsíða www.hjukrun.is Útgefandi: félag íslenskra hjúkrunarfræðinga Sími skrifstofu 540 6400 Ritstjóri og ábyrgðarmaður helga Ólafs Fagritstjóri Þórdís katrín Þorsteinsdóttir Ritnefnd aðalbjörg Stef- anía helgadóttir, anna Ólafía Sigurðardóttir, hafdís Skúladóttir, hrund Scheving Thorsteinsson, Margrét hrönn Svavarsdóttir, Sigurlaug anna Þorsteinsdóttir Blaðamaður Magnús hlynur hreiðarsson Forsíðu - mynd Sigurveig Björgólfsdóttir Ljósmyndir ýmsir Auglýsingar sími 540 6412 Hönnun og umbrot Egill Baldurs son ehf. Prentun Prenttækni ehf. Tekið er á móti efni til birtingar á netfanginu ritstjori@hjukrun.is. Leiðbeiningar um ritun fræðslu- og fræði- greina er að finna á vefsíðu tímaritsins. iSSn 2298-7053
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.