Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2019, Blaðsíða 85
erfitt fyrir þá sem eru með verulega skerta vitræna getu að
fylgjast með framvindu sögu eða sjónvarpsefnis. hins vegar
hefur verið bent á gagnsemi þess að ættingjar lesi fyrir þá sem
eru með heilabilun og hafa sérstakar bækur verið skrifaðar til
að lesa fyrir fólk með heilabilun (Lucero, 2004). rannsóknir
hafa einnig sýnt að upplestur og umræður um efnið geta bætt
minni og dregið úr neikvæðum áhrifum heilabilunar um leið
og það að njóta nærveru hvors annars í uppbyggilegu umhverfi
getur veitt þátttakendum vellíðan (Billington o.fl., 2013). Eins
og í þessari íslensku rannsókn kom fram í sænskri rannsókn
að algengt var að sjónvarpsáhorf væri leið til að auka virkni
íbúa. Þar kom fram að algengasta meðferð til að auka virkni á
172 hjúkrunarheimilum (2013–2014; n=4831) var að tala við
vini eða ættingja (85%), taka á móti gestum (84%), spjalla við
starfsmenn (82%), horfa á sjónvarp (82%) og hlusta á tónlist
(80%) (Björk o.fl., 2017).
niðurstöðurnar sýna að algengasta viðbótarmeðferðin er
að veita hitabakstra. Sú meðferð er yfirleitt veitt til að draga úr
vöðvaverkjum og bæta líðan. Þótt algengara sé að veita þessa
meðferð í sjúkraþjálfun er einnig algengt að hún sé veitt af
hjúkrunarfólki, en rannsóknir hafa sýnt að 22% af hjúkrunar-
fræðingum nota bakstra til að meðhöndla verki (Stewart og
Cox-Davenport, 2015). Verkir eru algengt vandamál á hjúkr-
unarheimilum en þeir þjaka um 40–60% íbúanna (Takai o.fl.,
2010) og því ekki óeðlilegt að meðferð með hitabökstrum sé
algeng. Þótt notkun bakstra sé venjulega ekki talin til viðbót-
armeðferðar nota hjúkrunarheimilin þetta til viðbótar til að
bæta líðan íbúa.
Íbúar á hjúkrunarheimilum glíma við margs konar heilsu-
og færnivandamál, svo sem skerta vitræna getu (39–71%),
þunglyndi (16–31%) og þörf fyrir aðstoð við athafnir daglegs
lífs (32–58%) (hjaltadottir, hallberg, Ekwall og nyberg, 2012).
hreyfing er því mikilvægur þáttur í meðferð íbúanna en leik-
fimi var í boði á 98% hjúkrunarheimila í þessari rannsókn. Í
nýlegri fræðilegri samantekt og safngreiningu, þar sem skoðuð
voru áhrif hreyfingar á íbúa hjúkrunarheimila, kom í ljós að
hreyfing getur verið góð fyrir íbúa með heilabilun, dragi úr
hegðunarvanda og hefði jákvæð áhrif á skaplyndi, hreyfigetu
og virkni (Brett o.fl., 2016).
Skipulag og framkvæmd meðferðar til að auka
virkni og viðbótarmeðferð
Ýmsar stéttir taka þátt í því að skipuleggja og framkvæma
meðferð til að auka virkni og viðbótarmeðferð. algengustu
stéttirnar í þessari rannsókn eru hjúkrunarfræðingar og sjúkra -
liðar en þær eru jafnframt ábyrgar fyrir umönnun íbúanna
allan sólarhringinn. Önnur íslensk rannsókn varpar einmitt
ljósi á yfirgripsmikið starf hjúkrunarfræðinga á hjúkrunar -
heimilum og að þeir hafi alla þræði starfseminnar í hendi sér
(jónbjörg Sigurjónsdóttir o.fl., 2013). ætla má að hlutverk
hjúkrunarfræðinga sé einnig mikilvægt í skipulagningu og
framkvæmd meðferðar til að auka virkni í öðrum löndum þó
að erlendis starfi á hjúkrunarheimilum stéttir sem sérstaklega
hafa menntað sig til að sjá um ýmis meðferðarform til að efla
virkni á hjúkrunarheimilum (e. recreational activity Officers,
recreation therapists) (Munyisia og hailey, 2011). fram kom
að hjúkrunarstjórnendum fannst afar mikilvægt að efla virkni,
en bent hefur verið á að jákvæð viðhorf hjúkrunardeildarstjóra
til slíkrar meðferðar séu afar mikilvæg og á því hvíli hvernig
framboðið er og hvort hún sé framkvæmd (green og Cooper,
2000). nefnt hefur verið að of lítil mönnun geti verið hindrun
við framkvæmd meðferðar til að auka virkni því að líkamleg
umönnun sé alltaf í forgangi og ef starfsmenn komast ekki yfir
verk sín sé slík meðferð og afþreying afgangsstærð sem sé
sleppt (harmer og Orrel, 2008). Í því tilliti mætti ætla að það
að hafa sérstaka starfsmenn sem sjá um meðferð til að auka
virkni geti stuðlað að því að framboðið sé stöðugt.
ritrýnd grein scientific paper
tímarit hjúkrunarfræðinga • 3. tbl. 95. árg. 2019 85
Tafla 3. Þörf hjúkrunarheimila fyrir stuðning til að efla virkni íbúa og viðbótarmeðferð
Óskir um stuðning Óskir um stuðning við að
við að efla virkni íbúa efla viðbótarmeðferð
n (%) n (%)
Aðferð
já, hjúkrunarheimilið hefur þörf fyrir stuðning til að
efla virkni og viðbótarmeðferð 49 (94) 42 (98)
Form stuðnings
námskeið 49 (77) 31 (69)
heimsóknir á aðrar stofnanir 39 (75) 32 (71)
ráðgjöf 37 (71) 35 (78)
Samvinna við aðrar stofnanir 32 (62) 24 (53)
fyrirlestur 31 (60) 31 (69)
Tæki og búnaður 30 (58) 23 (51)
aðgangur að sérmenntuðu starfsfólki 24 (46) 27 (60)
húsnæði og aðstaða 21 (40) 15 (33)
aukið fjármagn 4 (8) 3 (7)
aukin mönnun 3 (6) 3 (7)