Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2019, Side 38
nýja menningin felst í að aldraðir fái notið valfrelsis og sjálfræðis þrátt fyrir skerta
færni og séu ekki upp á pakkalausnir stofnanaþjónustu komnir. Með því er átt við
að fólk fái notið stuðnings til að fá að ráða hvernig það býr og hagar lífi sínu. Í því
felst líka ákveðið frelsi til að taka áhættu í lífinu og þar með hugsanlega að slasast
eða veikjast á einhvern hátt. Það að finna til öryggis er ekki endilega það sama og að
vera komið fyrir á stað þar sem eftirlit og öryggisráðstafanir eru miklar. höfundur
rekur rætur hugmynda um nýja menningu vestur um haf og lýsir heimilum eða keðj -
um heimila, sem hafa verið stofnuð eða þróuð í þeim anda, bæði í Bandaríkjunum
og Evrópu, t.d. Eden alternative, Leve Bo og Sóltúnsheimilið. hér á landi hefur upp-
bygging nærþjónustu og stuðningur við búsetu í heimahúsum ekki náð að haldast í
hendur við fjölgun aldraðra sem þurfa á margvíslegri þjónustu að halda. not-
endastýrð heimaþjónusta hefur rutt sér til rúms í nágrannalöndum okkar en er
nýmæli hér á landi. Spyrja má hvers vegna hún hafi einkum staðið fólki með fötlun
til boða en ekki öldruðum.
Kosningaloforð og aðgerðir stjórnmálamanna
Eins og bent er á í seinni köflum bókarinnar eru þessar hugmyndir í hróplegu ósam-
ræmi við kosningaloforð og aðgerðir stjórnmálamanna. Á síðustu metrunum fyrir
kosningar keppast þeir við að lofa því að byggja fleiri hjúkrunarrými án þess að
gera ráð fyrir fjármagni í rekstur. Þar með er stefnt að dýrasta þjónustustiginu þegar
margir gætu nýtt sér léttari þjónustu í heimahúsi eða annars konar búsetuúrræði.
höfundur varpar ljósi á að það er ekki nóg að byggja, það þarf að huga að innihald-
inu líka, þ.e. hvernig öldruðum er sinnt, burtséð frá staðsetningu, og af hverjum.
Ef ráðamenn átta sig ekki á þessu er hætta á að þróunin bíti í skottið á sjálfri sér.
Það er ekki fyrr búið að leggja niður stofnanir sem þykja óæskilegt úrræði fyrir fólk
með fötlun en byrjað er að hrúga upp stofnunum fyrir aldraða sem fáa langar að
flytja á.
Sigrún huld er hjúkrunarfræðingur, sérmenntuð í öldrunarhjúkrun og hefur víðtæka
þekkingu á viðfangsefninu og reynslu af starfi bæði innanlands og erlendis. framtak
hennar með útgáfu þessarar bókar er aðdáunarvert og fengur fyrir alla sem hafa
áhuga á málefnum aldraðra. af lestrinum er ljóst að henni liggur mikið á hjarta og
38 tímarit hjúkrunarfræðinga • 3. tbl. 95. árg. 2019
Ný menning í öldrunarþjónustu
Bókarýni eftir Þorgerði Ragnarsdóttur
Framtak hennar með útgáfu þessarar bókar er aðdáunarvert og
fengur fyrir alla sem hafa áhuga á málefnum aldraðra. Af lestrinum
er ljóst að henni liggur mikið á hjarta og vill miðla hugmyndum
um hvernig hægt er að sinna þessum málaflokki á annan veg en nú
er gert með sjálfræði aldraðra að leiðarljósi.
höfundur: Sigrún huld Þorgrímsdóttir.
kilja, 357 bls.
Sigrún Huld skrifar um öldrunarþjónustu, hvernig henni hefur verið sinnt í fortíð og nútíð og
hugmyndir um hvernig hægt væri að gera öðruvísi og hugsanlega betur í framtíðinni. Yfirlýstur
ásetningur höfundar er að kynna fyrir lesendum nýja menningu í öldrunarþjónustu.