Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2019, Blaðsíða 96
Útdráttur
Tilgangur. heilbrigðisstarfsmenn, sem búa yfir tilskilinni hæfni, eru
ein af undirstöðum farsællar starfsemi háskólasjúkrahúss enda teng-
ist hæfni öryggi og afdrifum sjúklinga. Markmið rannsóknarinnar
var að kanna hvernig hjúkrunarfræðingar á skurðlækningasviði
Landspítala meta hæfni sína.
Aðferð. rannsóknin er þversniðsrannsókn og gögnum var safnað
árið 2016 með spurningalista. hjúkrunarfræðingar á sviðinu voru
beðnir að meta hæfni sína með nurse Competence Scale (nCS) sem
inniheldur 73 atriði og skiptist í 7 hæfniþætti (umönnun, kennslu-
og leiðbeinendahlutverk, greiningarhlutverk, stjórnun á aðstæðum,
hjúkrunaríhlutanir, trygging gæða og starfshlutverk). Spurt var um
hæfni á kvarðanum 0 (mjög lítil hæfni) til 10 (mjög mikil hæfni) fyrir
hvert atriði og hversu o það væri framkvæmt (1=mjög sjaldan, 2=
öðru hverju, 3=mjög o, 0=á ekki við). gögn voru greind með
lýsandi tölfræði og ályktunartölfræði.
Niðurstöður. Þátttakendur (n=66) mátu hæfni sína að meðaltali 7,2
(sf 1,1), mesta í umönnunarhlutverki en minnsta í að tryggja gæði.
hjúkrunarfræðingar með framhaldsnám/viðbótarmenntun mátu
heildarhæfni sína marktækt meiri en aðrir í umönnunarhlutverki,
starfshlutverki, kennslu- og leiðbeinendahlutverki og við hjúkrunar -
íhlutanir. Starfsaldur við hjúkrun hafði ekki áhrif á heildarhæfni en
aðhvarfsgreining sýndi að starfsaldur á deild og viðbótarnám skýrðu
14% af breytileika í hæfni. Í 22 atriðum af 73 mat yfir helmingur hjúkr-
unarfræðinga hæfni sína undir miðgildi allra þátttakenda og fólu þau
atriði í sér meðal annars fræðslu til skjólstæðinga og samstarfsfólks,
nýtingu hjúkrunarrannsókna og virka þátttöku í þróun hjúkrunar.
Ályktanir. niðurstöður rannsóknarinnar benda til þess að fram-
haldsnám/viðbótarnám ásamt starfsaldri á deild hafi áhrif á hæfni
hjúkrunarfræðinga á skurðlækningasviði. Mikilvægt er að hjúkr-
unarfræðingum sé gert klei að mennta sig frekar. auka þarf fram -
boð á sérhæfðri þjálfun og fræðslu þar sem niðurstöður varð andi
starfsaldur benda til að sérhæfing í hjúkrun hafi aukist. kanna þarf
betur hvort hjúkrunarfræðingar fá nægilega kreandi tækifæri í starfi
og hvort stofnunin nýtir starfskraa hjúkrunarfræðinga með viðbót-
armenntun eins og best verður á kosið.
Lykilorð: aðgerðasjúklingar, hæfni, hjúkrunarfræðingar, starfsþróun,
símenntun, skurðaðgerð.
Inngangur
Á undanförnum árum hefur hæfni hjúkrunarfræðinga og fag-
leg þróun þeirra í starfi hlotið mikla athygli (Takase, 2013).
hæfni í starfi er nauðsynleg til að tryggja gæði þjónustunnar
og örugga og siðlega umönnun (flinkman o.fl., 2017) og hefur
auk þess áhrif á hvort sjúklingar verða fyrir óæskilegum at-
vikum (West o.fl., 2009). alþjóðaheilbrigðismálastofnunin
(WhO) hefur bent á mikilvægi þessa málaflokks og lýst hvernig
hjúkrunarmenntun geti best uppfyllt kröfur um hæfni og gæði
hjúkrunar (World health Organisation, 2009), en rannsóknir
hafa gefið til kynna að aukin menntun hjúkrunarfræðinga hafi
áhrif á afdrif sjúklinga (Cho o.fl., 2015). alþjóða ráð hjúkrunar-
fræðinga hefur einnig bent á nauðsyn þess að hæfni hjúkr-
unarfræðinga sé ávallt tryggð almenningi til verndar og höfðað
sé til ábyrgðar vinnuveitenda um reglulegt mat á hæfni hjúkr-
unarfræðinga sem hjá þeim starfa (international Council of
nurses, 2006). Sem aðalsjúkrahús landsins veitir Landspítali
96 tímarit hjúkrunarfræðinga • 3. tbl. 95. árg. 2019
Brynja ingadóttir, hjúkrunarfræðideild háskóla Íslands og skurðlækningasviði Landspítala
hrund Sch. Thorsteinsson, hjúkrunarfræðideild háskóla Íslands og menntadeild Landspítala
herdís Sveinsdóttir, hjúkrunarfræðideild háskóla Íslands og skurðlækningasviði Landspítala
katrín Blöndal, hjúkrunarfræðideild háskóla Íslands og skurðlækningasviði Landspítala
Mat hjúkrunarfræðinga á skurðlækningasviði
Landspítala á eigin hæfni — Lýsandi
þversniðsrannsókn
Nýjungar: Mat hjúkrunarfræðinga á eigin hæfni tengdist
frekar starfsreynslu þeirra á deild en starfsreynslu í hjúkrun,
því er mikilvægt að hlúa að starfsþróun og halda í starfsfólk
innan sérgreina.
Hagnýting: rannsóknina má nýta við gerð hæfniviðmiða
innan hjúkrunar aðgerðasjúklinga enda gefur hún vísbend-
ingar um á hvaða sviðum er brýnast að forgangsraða fræðslu -
framboði og símenntun í þeim tilgangi að efla hæfni hjúkr-
unarfræðinga.
Þekking: rannsóknin bætir við alþjóðlegan þekkingargrunn
um hæfni hjúkrunarfræðinga sem sinna hjúkrun aðgerða -
sjúklinga.
Áhrif á störf hjúkrunarfræðinga: kanna þarf frekar hvernig
stjórnendur nýta starfskrafta hjúkrunarfræðinga sem aflað
hafa sér viðbótarmenntunar að loknu grunnnámi í hjúkrunar -
fræði.
Hvers vegna ættir þú að lesa þessa grein?