Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2019, Blaðsíða 97
bæði sérhæfða og almenna sjúkrahúsþjónustu. Spítalinn er
vettvangur sérmenntunar heilbrigðisgreina og rannsókna í
heilbrigðisvísindum og árlega stunda liðlega 1600 nemendur
þar starfsnám. Stefna spítalans er að markvisst sé unnið að ný -
sköpun og þróun nýrrar þekkingar (Landspítali, e.d.). Ljóst er
að störf á Landspítala kreast þess að hjúkrunarfræðingar til-
einki sér sífellt nýja þekkingu og vinnubrögð og auki þannig
hæfni sína.
hæfni er flókið fyrirbæri og fræðimenn hafa ekki komið
sér saman um ákveðna skilgreiningu á því (Cowan o.fl., 2007).
Í þessari rannsókn er stuðst við skilgreiningu Meretoja og
félaga (2004a) sem skilgreina hæfni sem getu hjúkrunarfræð-
inga til að samþætta þekkingu og færni eigin viðhorfum og
gildum og beita henni á fullnægjandi hátt við þær aðstæður
sem þeir starfa við hverju sinni. Störf í heilbrigðis þjónustu
kre ast þess að hjúkrunarfræðingar þrói stöðugt hæfni sína til
að svara þeim kröfum sem gerðar eru. Það er hvorki hægt að
ganga að því gefnu að hjúkrunarfræðingar viðhaldi hæfni sem
þeir hafa að loknu námi né að hæfni þeirra þróist með þeim
hætti sem aðstæður kreast (Takase, 2013). Því skyldi hæfni-
mat vera þungamiðja í gæðaúttektum og í mannauðs stjórn un
(Meretoja o.fl., 2004a).
kröfur um hæfni hjúkrunarfræðinga má finna í lögum um
réttindi sjúklinga (Lög um réttindi sjúklinga nr. 74/1997) og
siðareglum íslenskra hjúkrunarfræðinga (félag íslenskra hjúkr -
unarfræðinga, 2015). Þá segir í lögum um heilbrigðisstarfs-
menn (13. grein í kafla iii) að þeim beri að þekkja skyldur
sínar og siðareglur, viðhalda þekkingu sinni og faglegri færni,
tileinka sér nýjungar er varða starfið og kynna sér gildandi lög
og reglugerðir sem gilda um heilbrigðisstarfsmenn og heil-
brigðisþjónustu (Lög um heilbrigðisstarfsmenn nr. 34/2012). Í
stefnu Landspítala er lögð megináhersla á öryggi, þjónustu,
mannauð og stöðugar umbætur, og ábyrgð allra starfsmanna
stofnunarinnar að framfylgja þeim (Landspítali, e.d.). Mat
hjúkrunarfræðinga á eigin hæfni er ein leið til þess að kanna
hvernig ofangreindar kröfur eru uppfylltar.
hæfni hjúkrunarfræðinga hefur verið metin með ýmsum
hætti. nurse Competence Scale (nCS) (Meretoja o.fl., 2004b)
er það mælitæki sem einna oast hefur verið notað í rann-
sóknum á hæfni þeirra (flinkman o.fl., 2017) og er það notað
í þessari rannsókn. Við notkun mælitækisins meta hjúkrun-
arfræðingarnir sjálfir eigin hæfni. Sjálfsmat er almennt talin
heppileg leið til að meta hæfni (Edwards o.fl., 2011) en vís-
bendingar eru um að hjúkrunardeildarstjórar meti hæfni hjúkr -
unar fræðinga meiri en þeir gera sjálfir (Meretoja og Leino-
kilpi, 2003). niðurstöður nýlegrar kerfisbundinnar saman-
tektar sýna að hjúkrunarfræðingar meta hæfni sína yfirleitt
frekar eða mjög góða og oast eykst hæfnin með hækkandi
lífaldri, starfsreynslu, þátttöku í starfsþróun og hærra mennt-
unarstigi (flinkman o.fl., 2017). nCS-mælitækið byggist á
hugmyndaramma Benner (1981) um þróun hjúkrunarfræð-
ings frá því að vera nýgræðingur yfir í sérfræðing og skiptist í
sjö hæfniþætti: umönnunarhlutverk, kennslu- og leiðbein-
endahlutverk, greiningarhlutverk, stjórnun á aðstæðum, hjúkr -
unaríhlutanir, tryggingu gæða og starfshlutverk (Meretoja o.fl.,
2004b). Mismörg atriði eru í hverjum þætti mælitækisins (sjá
töflu 1).
af ofangreindu má sjá að margháttaðar kröfur eru gerðar
til hæfni, ábyrgðar og hlutverka hjúkrunarfræðinga á ýmsum
sviðum og úr mörgum áttum en þær eru þó að mestu sam-
ritrýnd grein scientific paper
tímarit hjúkrunarfræðinga • 3. tbl. 95. árg. 2019 97
Tafla 1. Mat hjúkrunarfræðinga á hæfni sinni og hversu algengir þeir hæfniþættir eru í starfi þeirra
a-hlutia B-hlutib
hæfniþættir Lýsing M (sf)* M (sf)*
umönnunarhlutverk aðstoða sjúklinga við að takast á við aðstæður með einstaklingsmiðaðri 7,9 (0,9) 2,7 (0,3)
(7 atriði) hjúkrun byggðri á siðfræðilegum gildum.
greiningarhlutverk
(7 atriði) koma auga á og greina ástand sjúklinga í tíma. 7,4 (1,4) 2,4 (0,4)
hjúkrunaríhlutanir Taka ákvarðanir og skipuleggja umönnun sjúklinga samkvæmt klínísku 7,3 (1,4) 2,4 (0,3)
(10 atriði) ástandi þeirra. ráðfæra sig við samstarfsfólk.
Starfshlutverk koma fram við samstarfsfólk sitt af virðingu. Vera ábyrgur og sjálfstæður
(19 atriði) í störfum. Bera ábyrgð á eigin faglegri starfsþróun. 7,2 (1,3) 2,4 (0,3)
Stjórnun á aðstæðum koma auga á breytilegt ástand og forgangsraða starfinu á viðeigandi
(8 atriði) og sveigjanlegan hátt. Stuðla að samfellu í hjúkrun sjúklinga. 7,2 (1,4) 2,3 (0,4)
kennslu- og leiðbeinendahlutverk koma auga á fræðsluþarfir sjúklinga og ölskyldna þeirra með það
(16 atriði) að markmiði að stuðla að sjálfsumönnun. Leiðbeina samstarfsfólki. 7,1 (1,3) 2,3 (0,3)
Trygging gæða Meta árangur. Stuðla að frekari úrbótum við umönnun. 6,7 (1,6) 2,2 (0,5)
(6 atriði)
heildarhæfni 7,2 (1,1) 2,4 (0,3)
* M=Meðaltal; sf= staðalfráviki. aMat á hæfni (valmöguleikar frá 0= mjög lítil hæfni til 10=mjög mikil hæfni). balgengi hæfniþátta í starfi (valmöguleikar
frá 1=mjög sjaldan til 3=mjög o).