Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2019, Blaðsíða 34
fyrstu kynni mín af manneskju sem ég tengdi við hjúkrun voru af ömmusystur
minni fríðu sem var hjúkrunarkona (eins og það var þá kallað) á kleppsspítala. hún
var svo yndisleg manneskja, hlý, úrræðagóð, umhyggjusöm og æðrulaus. Snör var
hún þó til allra ákvarðana og bjó yfir þeim sjaldgæfa mannlega eiginleika að geta
„stýrt“ án þess að nokkur fyndi fyrir því að hún væri að stjórna, að hún væri að skipta
sér af flæði alheimsins. hún starfaði án strits og krafðist engrar umbunar.
Eftir að hún hætti að vinna sem hjúkrunarkona man ég eftir því að hafa í ófá
skiptin komið í heimsókn til hennar og þegið manneldisráð og ábendingar um
heilsusamlegan lífstíl. Þetta var áður en undirritaður gerði tilraunir í gegnum alls
kyns orð, eins og tíu geðorð og fjórtán lífsorð, að hafa áhrif á skilyrta og vandlega
félagsmótaða vitund, hugsun og hegðun fólks á Íslandi. En flestir eru sammála um
að það sé fátt erfiðara en að hafa áhrif á vitund, hugsun eða hegðun manna, í þessari
röð, nema þá kannski að hafa áhrif á eigin vitund, hugsun og hegðun.
Skynsamleg regla á öllu sköpunarverkinu
Í bók françois-Marie arouet, sem hann skrifaði undir pennanafninu Voltaire, Birt-
ingi, segir frá ferðalagi Birtings, kúnigúndar, ungrar ástar hans, og læriföðurins, pró-
fessors altúngu, um heiminn. Boðskapur bókarinnar snýst að stærstum hluta um
gagnrýni á löghyggju 18. aldar. að sögn altúngu hefur verið sýnt fram á að hlutirnir
geti ekki verið öðruvísi en þeir eru því að allt sé miðað við einn endi sem hljóti þar
með að vera hinn allra besti endir. Það er því að hans mati skynsamleg regla á öllu
sköpunarverkinu og vel það því guð hlýtur að hafa skapað hinn besta mögulega heim
allra hugsanlegra heima, jafnvel þótt íbúar þessa heims komi ekki endilega alltaf auga
á það. Við þurfum því ekkert að vera skipta okkur af flæði alheimsins.
Við ættum því e.t.v. ekkert að reyna að hafa of mikil áhrif á aðra og láta fulltrúa -
lýðræðinu eftir að hámarka almannaheill á kostnað frjáls vilja í gegnum lög og reglu-
gerðir, leggja línur okkar mannlegu tilvistar í samfélaginu, treysta okkar kjörnu full -
trúum til að vita best. En einhvern veginn hefur það nú æxlast þannig að við treystum
kjörnum fulltrúum okkar minna en áður, heimurinn hefur tæknivæðst hratt og ein-
staklingsrétturinn hefur vaxið og við sem notendur þjónustu viljum hafa áhrif á hana.
Við sem áður hlýddum prestum, læknum, lögfræðingum og embættismönnum eigum
nú aukinn rétt og hlustum á aðra áhrifavalda, fólk sem er jafningjar okkar, fólk sem
hefur valdeflst og fundið boðskap sínum farveg í hinni rafmögnuðu tækni sem hefur
gerbreytt og á margan hátt endurskilgreint samfélög okkar. Áhrifavaldar.
34 tímarit hjúkrunarfræðinga • 3. tbl. 95. árg. 2019
Áhrifavaldar
Héðinn Unnsteinsson
héðinn unnsteinsson.
„Við sem áður hlýddum prestum, læknum, lögfræðingum og emb-
ættismönnum eigum nú aukinn rétt og hlustum á aðra áhrifavalda,
fólk sem er jafningjar okkar, fólk sem hefur valdeflst og fundið
boðskap sínum farveg í hinni rafmögnuðu tækni sem hefur gerbreytt
og á margan hátt endurskilgreint samfélög okkar. Áhrifavaldar.“