Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2019, Side 85

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2019, Side 85
erfitt fyrir þá sem eru með verulega skerta vitræna getu að fylgjast með framvindu sögu eða sjónvarpsefnis. hins vegar hefur verið bent á gagnsemi þess að ættingjar lesi fyrir þá sem eru með heilabilun og hafa sérstakar bækur verið skrifaðar til að lesa fyrir fólk með heilabilun (Lucero, 2004). rannsóknir hafa einnig sýnt að upplestur og umræður um efnið geta bætt minni og dregið úr neikvæðum áhrifum heilabilunar um leið og það að njóta nærveru hvors annars í uppbyggilegu umhverfi getur veitt þátttakendum vellíðan (Billington o.fl., 2013). Eins og í þessari íslensku rannsókn kom fram í sænskri rannsókn að algengt var að sjónvarpsáhorf væri leið til að auka virkni íbúa. Þar kom fram að algengasta meðferð til að auka virkni á 172 hjúkrunarheimilum (2013–2014; n=4831) var að tala við vini eða ættingja (85%), taka á móti gestum (84%), spjalla við starfsmenn (82%), horfa á sjónvarp (82%) og hlusta á tónlist (80%) (Björk o.fl., 2017). niðurstöðurnar sýna að algengasta viðbótarmeðferðin er að veita hitabakstra. Sú meðferð er yfirleitt veitt til að draga úr vöðvaverkjum og bæta líðan. Þótt algengara sé að veita þessa meðferð í sjúkraþjálfun er einnig algengt að hún sé veitt af hjúkrunarfólki, en rannsóknir hafa sýnt að 22% af hjúkrunar- fræðingum nota bakstra til að meðhöndla verki (Stewart og Cox-Davenport, 2015). Verkir eru algengt vandamál á hjúkr- unarheimilum en þeir þjaka um 40–60% íbúanna (Takai o.fl., 2010) og því ekki óeðlilegt að meðferð með hitabökstrum sé algeng. Þótt notkun bakstra sé venjulega ekki talin til viðbót- armeðferðar nota hjúkrunarheimilin þetta til viðbótar til að bæta líðan íbúa. Íbúar á hjúkrunarheimilum glíma við margs konar heilsu- og færnivandamál, svo sem skerta vitræna getu (39–71%), þunglyndi (16–31%) og þörf fyrir aðstoð við athafnir daglegs lífs (32–58%) (hjaltadottir, hallberg, Ekwall og nyberg, 2012). hreyfing er því mikilvægur þáttur í meðferð íbúanna en leik- fimi var í boði á 98% hjúkrunarheimila í þessari rannsókn. Í nýlegri fræðilegri samantekt og safngreiningu, þar sem skoðuð voru áhrif hreyfingar á íbúa hjúkrunarheimila, kom í ljós að hreyfing getur verið góð fyrir íbúa með heilabilun, dragi úr hegðunarvanda og hefði jákvæð áhrif á skaplyndi, hreyfigetu og virkni (Brett o.fl., 2016). Skipulag og framkvæmd meðferðar til að auka virkni og viðbótarmeðferð Ýmsar stéttir taka þátt í því að skipuleggja og framkvæma meðferð til að auka virkni og viðbótarmeðferð. algengustu stéttirnar í þessari rannsókn eru hjúkrunarfræðingar og sjúkra - liðar en þær eru jafnframt ábyrgar fyrir umönnun íbúanna allan sólarhringinn. Önnur íslensk rannsókn varpar einmitt ljósi á yfirgripsmikið starf hjúkrunarfræðinga á hjúkrunar - heimilum og að þeir hafi alla þræði starfseminnar í hendi sér (jónbjörg Sigurjónsdóttir o.fl., 2013). ætla má að hlutverk hjúkrunarfræðinga sé einnig mikilvægt í skipulagningu og framkvæmd meðferðar til að auka virkni í öðrum löndum þó að erlendis starfi á hjúkrunarheimilum stéttir sem sérstaklega hafa menntað sig til að sjá um ýmis meðferðarform til að efla virkni á hjúkrunarheimilum (e. recreational activity Officers, recreation therapists) (Munyisia og hailey, 2011). fram kom að hjúkrunarstjórnendum fannst afar mikilvægt að efla virkni, en bent hefur verið á að jákvæð viðhorf hjúkrunardeildarstjóra til slíkrar meðferðar séu afar mikilvæg og á því hvíli hvernig framboðið er og hvort hún sé framkvæmd (green og Cooper, 2000). nefnt hefur verið að of lítil mönnun geti verið hindrun við framkvæmd meðferðar til að auka virkni því að líkamleg umönnun sé alltaf í forgangi og ef starfsmenn komast ekki yfir verk sín sé slík meðferð og afþreying afgangsstærð sem sé sleppt (harmer og Orrel, 2008). Í því tilliti mætti ætla að það að hafa sérstaka starfsmenn sem sjá um meðferð til að auka virkni geti stuðlað að því að framboðið sé stöðugt. ritrýnd grein scientific paper tímarit hjúkrunarfræðinga • 3. tbl. 95. árg. 2019 85 Tafla 3. Þörf hjúkrunarheimila fyrir stuðning til að efla virkni íbúa og viðbótarmeðferð Óskir um stuðning Óskir um stuðning við að við að efla virkni íbúa efla viðbótarmeðferð n (%) n (%) Aðferð já, hjúkrunarheimilið hefur þörf fyrir stuðning til að efla virkni og viðbótarmeðferð 49 (94) 42 (98) Form stuðnings námskeið 49 (77) 31 (69) heimsóknir á aðrar stofnanir 39 (75) 32 (71) ráðgjöf 37 (71) 35 (78) Samvinna við aðrar stofnanir 32 (62) 24 (53) fyrirlestur 31 (60) 31 (69) Tæki og búnaður 30 (58) 23 (51) aðgangur að sérmenntuðu starfsfólki 24 (46) 27 (60) húsnæði og aðstaða 21 (40) 15 (33) aukið fjármagn 4 (8) 3 (7) aukin mönnun 3 (6) 3 (7)
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.