Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2019, Page 11
fundur og er áratugahefð fyrir að hafa hangikjöt á beini og uppstúf. Dagskrá afmælis -
ársins hefur þó verið með nokkru öðru sniði vegna ölda viðburða og hafa félagar verið
hvattir til að sækja þá. Þannig var haustlitaferð í september í stað sumarferðar. Þátttaka
á viðburðum hefur verið góð og mæta á bilinu 60 til 150 manns og elstu félagarnir sem
mæta eru yfir 90 ára gamlir. flestir mæta á jólafund félagsins en vegna hátíðardagskrár-
innar í hörpu í tilefni aldarafmælis félagsins verður jólafundi sleppt í ár.
Mikil þörf að ræða saman og rifja
upp gamla tíma
Oar en ekki eru fundir deildarinnar með of stífa dagskrá og of lítinn tíma til að
spjalla. „Við í stjórninni gerum oar en ekki þau mistök að hafa of lítinn tíma í
umræður,“ segir Steinunn. félagarnir hafa mjög mikla þörf fyrir að setjast niður og
ræða saman og ria upp gamla tíma enda margir bekkjarfélagar og fyrrum sam-
starfsfélagar. „fólk kann vel að meta að hittast fyrir fundi til að hafa nægan tíma til
að spjalla og ria upp gamla tíma.“
fyrir utan að styrkja innbyrðis tengsl og njóta góðra stunda saman eru helstu
markmið deildarinnar þau að veita félögum upplýsingar, fræðast, standa vörð um
réttindi og skyldur félaga í deildinni, virkja tengsl við deildir eldri hjúkrunarfræðinga
erlendis, taka þátt í stjórn og að vera nefndum fíh til ráðgjafar.
Þá hefur félagið unnið að tveimur verkefnum undanfarin ár. annars vegar að
skora á stjórn að setja á fót muna- og minja nefnd í kjölfar þess að hjúkrunarminja-
safnið, sem var hluti af Læknaminjasafninu, var lagt niður. að sögn Steinunnar höfðu
margir félagar í deildinni áhyggjur af því að unga fólkið myndi ekki safna og halda
„við erum búin að fræðast nóg, nú viljum við frekar skemmta okkur“
tímarit hjúkrunarfræðinga • 3. tbl. 95. árg. 2019 11
haustlitaferð á Þingvöllum sem farin var í
september.