Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2019, Side 24

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2019, Side 24
Ég vil byrja á að þakka hildi Vattnes kristjánsdóttur, hjúkrunarfræðingi hSu í Vest- mannaeyjum, fyrir að skora á mig að rita Þankastrik. Ég útskrifaðist sem hjúkrunar- fræðingur árið 2011 og minn aðalstarfsvettvangur hefur verið í gjörgæsluhjúkrun. Síðan fór ég í framhaldsnám í skurðhjúkrun og útskrifaðist sem skurðhjúkrunar - fræðingur árið 2015. Í dag starfa ég á skurðstofum Landspítalans við hringbraut í barnateymi ásamt því að vera ljúka diplómanámi í hjúkrunarstjórnun með áherslu á forystu og frumkvöðlastarf við háskóla Íslands. Í þessu Þankastriki mun ég fjalla um skurðstofurnar á Landspítalanum. Þverfagleg teymisvinna á skurðstofum Skurðstofurnar þykja gjarnan vera hulinn heimur fyrir langflestum nema inn- anbúðarmönnum, en fæstir hafa hugmynd um hvað fer fram í þessu hátæknilega og steríla umhverfi — nema kannski þeir sem hafa fylgst eitthvað af viti með hinum geysivinsælu sjónvarpsþáttum grey’s anatomy. Þar sjást hjúkrunarfræðingar að vísu ekki nema í mýflugumynd því athyglin beinist fyrst og fremst að störfum skurðlækna. Það fer því lítið fyrir þeirri þverfaglegu teymisvinnu sem er einmitt einkennandi fyrir starfsemi skurðstofanna á Landspítalanum, en þar eru framkvæmdar hátt í 15.000– 16.000 skurðaðgerðir árlega og enginn dagur er eins, og tilfellin geta verið eins ólík og þau eru mörg. Til að hægt sé að framkvæma skurðaðgerð í svæfingu þarf sérstakt þverfaglegt aðgerðateymi. Í slíku teymi eru að jafnaði 8–10 meðlimir, til að mynda skurðhjúkrunarfræðingar, skurðlæknir, deildarlæknar, svæfingahjúkrunarfræðingar og svæfingalæknir auk ýmissa nema í verknámi. Það er því ljóst að margir fagaðilar taka þátt í hverri skurðaðgerð og það skiptir miklu máli að allir þekki sitt hlutverk vel og viti til hvers er ætlast. hver og einn teymismeðlimur er því mikilvægur hluti af liðsheildinni svo að allt gangi sem best fyrir skjólstæðinga okkar. Áhersla lögð á öryggismál alvarlegar uppákomur á borð við hjartastopp og ofnæmislost eru heldur fátíðar á skurðstofum en allt getur þó gerst því ýmis hætta getur fylgt því að gangast undir 24 tímarit hjúkrunarfræðinga • 3. tbl. 95. árg. 2019 Þankastrik Öryggismál á skurðstofum Landspítala Rut Sigurjónsdóttir skurðhjúkrunarfræðingur Þankastrik er fastur dálkur í blaðinu og höfundur hvers pistils stingur upp á þeim næsta. Í þankastriki gefst hjúkrunarfræðingum færi á að tjá sig um ýmislegt er varðar hjúkrun og er þeim hjartfólgið. Pistlarnir geta allað um ákveðin málefni, sögur af kynnum við sjúklinga eða starfsfólk, eitt hvað sem hefur orðið höfundum til hugljómunar eða hvað eina annað sem tengist starfinu og hugmyndafræði þess. Skurðstofurnar þykja gjarnan vera hulinn heimur fyrir langflestum nema innanbúðarmönnum, en fæstir hafa hugmynd um hvað fer fram í þessu hátæknilega og steríla umhverfi — nema kannski þeir sem hafa fylgst eitthvað af viti með hinum geysivinsælu sjónvarps - þáttum Grey’s Anatomy. rut Sigurjónsdóttir og Þráinn rós - munds son barnalæknir.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.