Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2019, Qupperneq 31
hjálparstarf. Eftirlætisleikfangið? Eldavélin mín. Stóra ástin í lífinu? Maðurinn
minn. Hvaða eiginleika vildirðu helst hafa? Þolinmæði. Þitt helsta afrek? Börnin.
Eftirlætisdýrið? Öll. Hvar vildir þú helst búa? nokkuð sátt í borginni en væri til í
afdrep í sveit. Hvað er skemmtilegast? fátt skemmtilegra en borða saman með ætt-
ingjum og vinum, maður er jú manns gaman. Svo get ég alveg gleymt mér við alls
kyns handverk. Dýrka allt gamalt og er svolítill safnari. Þegar ég kem með eitthvað
gamalt heim segir maðurinn minn gjarnan: „já, fer þetta inn á byggðasafnið?“ en þá
vísar hann til handavinnuherbergis míns. Hvaða eiginleika metur þú mest í fari vina?
Tryggð. Eftir lætiskvikmyndin? Stella í orlofi. Markmið í lífinu? að umvefja heiminn
í ást og umhyggju. Hvað starfsvettvang myndirðu kjósa annan en núverandi? Lista -
maður, fornmunavörður, húsgagnasmiður, gullsmiður eða … það er svo margt sem
mig langar. Eitthvað að lokum? Lífið er lærdómur, kúnstin er bara að finna út úr því.
„Traust og heiðarleiki eru stærstu eiginleikar
sem til eru“
— Garðar Örn Þórsson
Fullkomin hamingja er … að vera heilbrigður og sáttur í eigin skinni. Hvað hræðist
þú mest? Margt sem ég hræðist, en ég hugsa að ég hræðist mest að fá einhvern af
þeim hræðilegu sjúkdómum sem maður hefur séð sjúklingana sína þurfa að glíma
við. Fyrirmyndin? innan hjúkrunar langar mig að nefna tvær konur. Önnur var
hjúkrunarfræðingur á krabbameinsdeildinni þegar ég byrjaði þar sem nemi og ég
leit alltaf upp til og ætlaði að verða nákvæmlega eins og hún. hún heitir Sigrún anna
jónsdóttir og er núna starfandi á líknardeildinni. Í seinni tíð er hjúkrunarfræðingur
sem ég hef mikið litið upp til og heitir nanna friðleifsdóttir og er sérfræðingur í
krabbameinshjúkrun. Eftirlætismáltækið? að gera ekki úlfalda úr mýflugu. Hver er
þinn helsti kostur? Ég myndi halda að það sé að ég er góður að hlusta og fólki finnst
gott að leita til mín með sín vandamál. Hvað vildirðu verða þegar þú varst ungur?
Það var nú svo margt en lengi vel langaði mig mjög mikið að verða jarðfræðingur.
Eftirlætismaturinn? Það er fátt ef nokkuð sem slær við grillaðri nautalund „medium
rare“ með geggjaðri bernais-sósu og meðlæti og gott hvítvín með. Hvaða löst áttu
erfiðast með að þola í fari annarra? Óstundvísi og falskt fólk gerir alveg út af við
mig. Hverju ertu stoltastur af að hafa áorkað? að hafa lokið háskólanámi á sínum
tíma í jafnkrefjandi námi og hjúkrunarfræði er. Eftirminnilegasta ferðalagið? Ég
ferðast alveg gríðarlega mikið og á til dæmis aðeins eftir að heimsækja eitt land í
Evrópu. Það er erfitt að velja eitthvað eitt eftirminnilegt þótt það séu nokkur sem
standa upp úr. fyrir tveimur árum ferðaðist ég um Ísrael og Palestínu og það var
mjög áhugavert. Eitt skemmtilegasta ökuferðalag sem ég hef farið í var í Wales þar
sem við keyrðum í gegnum æðislega smábæi og skoðuðum kastala og aðrar
magnaðar byggingar. Í vor fór ég til úsbekistans og Túrkmenistans og það var alveg
mögnuð ferð, full af andstæðum og magnað að koma til lands líkt og Túrkmenistan
þar sem lokað er á alla samfélagsmiðla. Mörg frábær ferðalög og eflaust mörg frábær
eftir. Ofmetnasta dyggðin? Stundvísi. Hver er þinn helsti löstur? Á það kannski til
að verða stundum aðeins of fljótfær. Hverjum dáist þú mest að? Ég held að í dag
dáist ég mest af forsetanum okkar, honum guðna. hann er landi og þjóð til sóma,
mikill baráttumaður mannréttinda og fleira. forsetafrúin er líka frábær þannig að
þau saman eru það fólk sem ég dáist mest að í dag. Eftirlætishöfundurinn? Einn af
betri erlendum höfundum er sá sem skrifaði meðal annars bókina alkemistinn og
heitir Paulo Coelho, margar magnaðar sögur eftir hann. hvað varðar íslenska
glæpahöfunda ætla ég ekki að gera upp á milli arnaldar og Yrsu. Ofnotaðasta orðið
eða orðatiltækið? Þetta reddast! Mesta eftirsjáin? Sé ekki eftir mörgu í gegnum
tíðina en ef ég ætti að velja eitthvað eitt þá er það að hafa ekki enn þá lagt í að flytjast
setið fyrir svörum …
tímarit hjúkrunarfræðinga • 3. tbl. 95. árg. 2019 31
garðar Örn Þórsson.