Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2019, Síða 36
Vorið var komið í galway þegar fyrstu ráðstefnugestir bókuðu sig inn á sérlega fallegt
aðsetur ráðstefnunnar, galway Bay hotel. Dagskráin fólst í vinnusmiðjum, fyrir-
lestrum, kynningum á rannsóknarniðurstöðum og veggspjaldakynningu. umfjöll-
unarefnið var víðfemt, í samræmi við viðfangsefnið: samþætta hjúkrun. Með
samþættri hjúkrunarmeðferð er átt við meðferð sem hefur ekki verið talin til
hefðbundinnar heilbrigðisþjónustu en sýnt hefur verið fram á með gagnreyndum
rannsóknum að geti nýst samhliða hefðbundinni meðferð. Sem dæmi um samþætta
hjúkrunarmeðferð má nefna nálastungur, nudd, dáleiðslu, slökunarmeðferð af ýmsu
tagi, jóga, svæðameðferð og hugleiðslu. En með samþættri hjúkrun er ekki einungis
átt við alls konar skilgreinda hjúkrunarmeðferð heldur felur hún í sér eftirfarandi
sex skilgreinda þætti (kreitzer og koithan, 2014):
1. Manneskjur eru heildrænar verur — líkami, hugur, andi — og verða ekki
aðskildar frá umhverfi sínu.
2. Manneskjur hafa innbyggða getu til vellíðanar og heilbrigðis.
3. náttúran býr yfir endurnærandi eiginleikum sem stuðla að heilbrigði og vellíðan.
4. Samþætt hjúkrun er einstaklingsmiðuð og byggist á samskiptum og tengslum.
5. Samþætt hjúkrun byggist á gagnreyndri þekkingu sem styður meðferðarlegar
aðferðir sem hlúa að og efla heilbrigði og miðar að því að beita allt frá áhættu-
minnsta inngripi til áhættumeira inngrips, eftir þörfum og samhengi.
36 tímarit hjúkrunarfræðinga • 3. tbl. 95. árg. 2019
Þriðja alþjóðlega ráðstefnan um samþætta hjúkrun
Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir og Þóra Jenný Gunnarsdóttir
Dagana 22.–24. maí 2019 söfnuðust hjúkrunarfræðingar hvaðan æva að úr heiminum saman
í Galway á Írlandi til að eiga samræður, kynna nýjar rannsóknarniðurstöður, hella sér út í krefj-
andi vinnusmiðjur og fræðast um árangur og aðferðir samþættrar hjúkrunarmeðferðar á
ráðstefnunni Integrative Nursing Symposium.
Sautján íslenskir hjúkrunarfræðingar úr
ólíkum sérgreinum tóku þátt í ráðstefnunni.