Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2019, Side 48
mikilvægt að ná til þeirra meðan þeir eru í skóla. kennslan
þarf að vera í formi fyrirlestra, verklegra æfinga og umræðna
til að árangur verði sem bestur. Þess utan þarf netfræðsla að
vera aðgengileg þar sem farið er yfir mikilvæga þætti sýkinga-
varna, eins og handhreinsun og handskartsleysi, vinnufatnað
og hlífðarbúnað og fleira. Leiðbeinendur og kennarar nema á
sjúkrahúsum þurfa að vera vel að sér í sýkingavörnum og geta
svarað spurningum nemanna og rætt við þá um sýkingavarnir
og mikilvægi réttra vinnubragðra á heilbrigðisstofnunum.
alþjóðaheilbrigðismálastofnunin tekur fram að mikilvægt sé
að það sé að minnsta kosti einn starfsmaður sem er sérfræð -
ingur í sýkingavörnum á hver 100–250 rúm á hverju bráða -
sjúkrahúsi.
alþjóðaheilbrigðismálastofnunin leggur áherslu á að heil-
brigðisstarfsfólk geti sótt framhaldsnám í sýkingavörnum sem
gefur diplóma- eða meistaragráðu. Slíkt nám er nú í boði í há-
skóla gautaborgar og geta Íslendingar sótt það. Í löndum
Skandinavíu er nú krafa um framhaldsnám í sýkingavörnum
samkvæmt fyrrnefndum leiðbeiningum alþjóðaheilbrigðis-
málastofnunarinnar en sú krafa hefur ekki enn komið fram á
Íslandi.
Sýkingavarnir og framtíðin
Sýkingavarnir eru einn af hornsteinum hverrar stofnunar hvað
varðar öryggi sjúklinga og starfsmanna. framtíðarsýnin hlýtur
að vera sú að allir heilbrigðisstarfsmenn kunni og fylgi alltaf
leiðbeiningum sýkingavarna og vinni samkvæmt grundvall-
arsmitgát í störfum sínum á heilbrigðisstofnunum. Á þann hátt
rjúfa þeir smitleiðir milli sjúklinga og einnig milli starfsmanna.
Til að svo geti orðið þarf kennsla heilbrigðisnema í sýkinga-
vörnum að vera góð sem og endurmenntun heilbrigðisstarfs-
fólks. umhverfið þarf að styðja við sýkingavarnir, til dæmis
með rétt staðsettri handhreinsiaðstöðu, umhverfi og búnaði
sem hægt er að þrífa og sótthreinsa á einfaldan hátt, nægum
einbýlum sem uppfylla kröfur til einangrunar smitandi sjúk-
linga, rétt hannaðri loftræstingu og fleiru.
Til að sýkingavarnadeild á bráðasjúkrahúsi geti sinnt hlut-
verki sínu af kostgæfni þarf mannskap sem hefur þekkingu,
kunnáttu og reynslu á sviði sýkingavarna, eins og alþjóðaheil-
brigðismálastofnunin nefnir. reynslan sýnir að hlutfall hjúkr-
unarfræðinga á sýkingavarnadeild á bráðasjúkrahúsi þarf að
vera um 1 hjúkrunarfræðingur á hver 75 rúm ef mikið er um
dagdeildaraðgerðir, en afar tímafrekt er að fylgja eftir sjúk-
lingum og skrá spítalasýkingar í kjölfar meðferðar á sjúkrahúsi.
rafræn skráningarkerfi geta vissulega flýtt fyrir og auðveldað
eftirfylgd en það þarf alltaf að fara yfir og staðfesta og meta
vafaatriði og slíkt er tímafrekt og tölvukerfi geta ekki gert það.
Í viðleitni til að auka öryggi sjúklinga og starfsmanna er hverju
sjúkrahúsi því mikilvægt að fjárfesta í öflugum sýkingavörnum
en það skilar sér margfalt til baka með fækkun spítalasýkinga
og styttri legu sjúklinga.
Heimildir
alþjóðaheilbrigðismálastofnunin. (2016). guidelines on core components of
infection prevention and control programmes at the national and acute
health care facility level. genf: World health Organization; 2016. Licence:
CC BY-nC-Sa 3.0 igO. Sótt á https://apps.who.int/iris/bitstream/handle/
10665/251730/9789241549929-eng.pdf;jsessionid=13f738a63D60
f23f5ECafD10D6f50a73?sequence=1
Ducell, g., fabry, j., og nicolle, L. (2002). Prevention of hospital-acquired
infection. a practical guide, 2. útgáfa. alþjóðaheilbrigðismálastofnunin.
Sótt á https://www.who.int/csr/resources/publications/drugresist/en/who
cdscsreph200212.pdf?ua=1
nixon, k. (2011). The World of florence nightingale. Pitkin unichrome,
Bretlandi.
O’neill, j. (2016). Tackling drug-resistant infection globally: final report and
recommendations. The review on antimircobial resistance. Sótt á https://
amr-review.org/sites/default/files/160518_final%20paper_with%20cover.
pdf
Smith, P. W., Watkins, k., hewlett, a. (2012). infection control through the
ages. American Journal of Infection Control, 40(1), 35–42.
ásdís elfarsdóttir jelle
48 tímarit hjúkrunarfræðinga • 3. tbl. 95. árg. 2019
Framtíðarsýnin hlýtur að vera sú að allir heil-
brigðisstarfsmenn kunni og fylgi alltaf leiðbein-
ingum sýkingavarna og vinni samkvæmt grund -
vallarsmitgát í störfum sínum á heilbrigðis-
stofnunum. Á þann hátt rjúfa þeir smitleiðir
milli sjúklinga og einnig milli starfs manna.