Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2019, Qupperneq 65

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2019, Qupperneq 65
5. Niðurstöður. niðurstöðukaflinn skal ritaður í þátíð og þar er skýrt frá niðurstöðum út frá tilgangi, rannsóknarspurn- ingum eða -tilgátu (ef við á). fram eiga að koma heiti töl - fræðiprófa og marktæknimörk skulu koma fram innan sviga (ef við á). Töflur og myndir eiga að geta staðið sjálf - stætt og ber að varast að endurtaka í megintexta það sem kemur fram í töflu eða mynd. heiti taflna og mynda skulu vera lýsandi fyrir niðurstöðurnar sem þar eru kynntar, einnig skal leitast við að hafa myndir skýrar. 6. Umræða. Í umræðukaflanum eru mikilvægustu niður - stöð ur ræddar og túlkaðar. forðast ber að endurtaka niður - stöður. geta skal í hverju styrkur og takmarkanir rann - sóknarinnar felast. Dregin skal ályktun í samræmi við rannsóknarniðurstöður og fræðilegan bakgrunn. 7. Hagnýting rannsóknarniðurstaðna er birt á forsíðu grein- arinnar undir yfirskriftinni: „hvers vegna ættir þú að lesa þessa grein?“ með stuttum, hnitmiðuðum punktum um eftirfarandi fjögur atriði sem koma fram í rannsóknar - niðurstöðunum. hvert atriði skal vera að hámarki ein setn ing: • hvaða nýjungar koma fram í niðurstöðum þessarar rannsóknar? • hvernig má hagnýta niðurstöður rannsóknarinnar í hjúkrun eða íslenskri heilbrigðisþjónustu? • hvaða þekkingu bæta niðurstöður þessarar rannsóknar við hjúkrunarfræði? • hver geta áhrif rannsóknarinnar orðið á störf hjúkr- unarfræðinga? 8. Þakkir eru færðar vegna sérstakrar aðstoðar við til dæmis gagnasöfnun, fjármögnun, úrvinnslu og aðstöðu. Í hand- ritinu skulu þakkir vera á titilsíðu því þar koma oft fram persónugreinanlegar upplýsingar. ritstjóri færir þakkarorð á réttan stað við lokafrágang fyrir birtingu. 9. Neðanmálsgreinar eru annars vegar skýringar eða athuga- semdir við töflur og myndir og hins vegar útskýringar eða áherslur við megin mál greinarinnar. 10. Viðauki, ef við á, byrjar á nýrri síðu. 11. Heimildaskrá byrjar á nýrri síðu með fyrirsögninni heim- ildir. heimildir í heimildaskrá eru í stafrófsröð höfunda. allar heimildir, sem vísað er til í handritinu, verður að skrá í heimildaskrá og eingöngu þær heimildir. Því er mikil- vægt að samlesa texta við heimildaskrá. fylgja skal reglum Tímarits hjúkrunarfræðinga um tilvísanir og heimilda- skrá. 12. Töflur. Töflur skulu koma á eftir heimildaskrá og aðeins ein tafla á hverri síðu. Í texta handritsins ber að tilgreina hvar höfundur ætlast til að tafla sé staðsett. númer og lýsandi titill töflu skal standa fyrir ofan töfluna. Töflur úr Excel eða sambærilegu forriti þarf að setja inn þannig að hægt sé að vinna með töflurnar í umbroti (ekki sem mynd). númer töflu skal vera feitletrað en ekki töflutexti, sbr. Tafla 1. heiti 13. Myndir. Myndir skulu koma á eftir töflum og aðeins ein mynd á hverri síðu. höfundur tilgreinir æskilega staðsetn- ingu myndar í texta handritsins. númer og lýsandi titill myndar skal standa undir mynd. Einnig þarf að skila myndum í frumgerð, prenttækar í fullri upplausn jPg 300 punkta og með birtingarleyfum rétthafa. númer myndar skal vera feitletrað en ekki myndatexti, sbr. Mynd 1. heiti Kerfisbundnar fræðilegar samantektir og yfirlitsgreinar Í handbók Sálfræðiritsins og handbók í aðferðafræði rann- sókna (Sigríður halldórsdóttir, 2013) er umfjöllun um hvernig setja skal fram kerfisbundnar fræðilegar samantektir og yfir- litsgreinar. fylgja skal eftir atvikum ábendingum sem þar koma fram. almennt skal fylgja leiðbeiningum um ritun fræðigreinar hér að ofan en eftirfarandi þætti ber sérstaklega að hafa í huga: Kerfisbundin fræðileg samantekt Aðferðafræði • Beita skýrum og vel afmörkuðum þátttöku- (val-) og útilokunarskilyrðum. • Lýsa leitaraðferð nákvæmlega. • gefa upplýsingar um leitarorð (MeSh) og tímasetningu leitar. • kynna takmarkanir á vali greina, t.d. eftir tungumáli, rannsóknarsniði eða útgáfutíma. • Tiltaka alla gagnagrunna sem leitað var í, greina frá ef notaðar voru óbirtar greinar eða bækur. • hafa í huga umfang greina og lýsa annmörkun á vali greina. • greina frá hverjir sáu um úrvinnslu og greiningu gagna. • Lýsa vafaatriðum og úrlausnum ef upp kom ágreiningur um efnið. • Lýsa og færa rök fyrir tölfræðiaðferðum ef við á. • Tilgreina fjölda greina sem uppfylltu leitarskilyrði og hve margar þeirra voru teknar í samantektina. Niðurstöður — umræður Markmið niðurstaðna er að svara tilgangi eða rannsóknar - spurningum samantektar. • Setja fram niðurstöður á skýran hátt. • gefa lýsandi yfirlit yfir greinarnar í samantektinni. • nota gjarnan flæðirit til að skýra niðurstöður leitar. • Leggja mat á vísindalegt gildi og gæði rannsókna með kerfisbundnum hætti. leiðbeiningar til höfunda ritrýndra fræðigreina tímarit hjúkrunarfræðinga • 3. tbl. 95. árg. 2019 65
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.