Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2019, Page 80
Útdráttur
Tilgangur: Íbúar á íslenskum hjúkrunarheimilum eiga við margvís-
leg andleg og líkamleg vandamál að stríða, m.a. þunglyndi og hegð -
unarvanda. rannsóknir hafa sýnt að um helmingur íbúa eyðir litlum
eða engum tíma í virkni og að stjórnendur hjúkrunarheimila eru
meðvitaðir um mikilvægi þess að örva virkni íbúa en úrræði og þekk-
ing eru ekki alltaf fyrir hendi. Yfirlit yfir hvaða virkni er í boði á
hjúkrunarheimilum er ekki til. Viðbótarmeðferð virðist hafa jákvæð
áhrif til að draga úr vanlíðan og til að bæta líðan og ánægju íbúa á
hjúkrunarheimilum. Engar upplýsingar eru til um hvaða tegundir
viðbótarmeðferðar eru í boði á íslenskum hjúkrunarheimilum. Mark -
mið þessarar rannsóknar var að kanna hvaða virkni og viðbótar -
meðferð er í boði á íslenskum hjúkrunarheimilum og hverjir skipu -
leggja og veita meðferð. Einnig var spurt hvort hjúkrunarheimili
þurfi stuðning til að efla þessa meðferð.
Aðferð: Tveir spurningalistar, annar um meðferð til að auka virkni
og hinn um notkun viðbótarmeðferðar, voru samdir og sendir til
allra hjúkrunarheimila á Íslandi, 59 talsins. fimmtíu og tvö hjúkr-
unarheimili (88%) svöruðu listanum um virkni og afþreyingu og 45
heimili (76%) svöruðu listanum um viðbótarmeðferð.
Niðurstöður: niðurstöðurnar sýndu að öll hjúkrunarheimili (n=52;
100%) buðu upp á meðferð til að auka virkni og 43 hjúkrunarheimili
(96%) upp á viðbótarmeðferð. Margar ólíkar starfsstéttir áttu þátt í
því að skipuleggja og veita þessa meðferð, en helst eru það hjúkr-
unarfræðingar og sjúkraliðar. algengasta meðferð til að auka virkni
var upplestur og að horfa saman á myndir og hlusta á tónlist. algeng-
ustu gerðir viðbótarmeðferðar voru heitir bakstrar, leikfimi og nudd.
hjúkrunar stjórnendur vildu flestir fá aðstoð við að efla þessa þætti í
þjón ustu við íbúa, t.d. með fræðslu eða aukinni samvinnu við aðrar
stofnanir.
Ályktanir: Virkni og viðbótarmeðferð er mikilvægur þáttur í þjón-
ustu á íslenskum hjúkrunarheimilum en hjúkrunarheimilin þurfa
stuðning til að auka þekkingu starfsmanna á þessari meðferð og að
efla hana enn frekar.
Lykilorð: virkni, viðbótarmeðferð, aldraðir, hjúkrunarheimili
Inngangur
Ástæður þess að fólk flytur inn á hjúkrunarheimili eru oftast
minnkandi færni, hrumleiki, heilabilun (andel o.fl., 2007),
minnkandi hreyfigeta, hjartasjúkdómar, fjöllyfjanotkun og það
að búa einn (Luppa o.fl., 2010). Breytingar á aldurssamsetn-
ingu og fjölgun fjölveikra íbúa á hjúkrunarheimilum (hjalta-
dottir, hallberg, Ekwall og nyberg, 2012) hefur aukið hjúkr-
unar þyngd þeirra sem þar dvelja. Það er því mikilvægt að
starfsfólk sé faglært og geti veitt einstaklingsmiðaða meðferð
og umönnun.
rannsóknir hafa sýnt að það skipti máli að íbúar séu hvattir
til og hafi tækifæri til að vera virkir (agahi og Parker, 2008)
og að það viðhaldi vellíðan og stuðli að lífsánægju þeirra
(Björk o.fl., 2017). Með virkni er átt við það sem einstakling-
urinn hefur fyrir stafni sér til ánægju og stuðlar að vellíðan
hans. Þetta geta verið hvort sem er félagsleg samskipti, verk
sem hann tekur sér fyrir hendur og einhvers konar afþreying
eða atburður sem hann tekur þátt í (adams o.fl., 2011). fram
kemur í rannsóknum að þátttaka í félagslegum athöfnum teng-
ist lengri lífaldri (agahi og Parker, 2008) og er spáþáttur fyrir
dánartíðni (hjaltadottir o.fl., 2011). Ýmsar aðferðir hafa verið
80 tímarit hjúkrunarfræðinga • 3. tbl. 95. árg. 2019
ingibjörg hjaltadóttir, Landspítala, háskóla Íslands
rúnar Vilhjálmsson, háskóla Íslands
Þóra jenný gunnarsdóttir, háskóla Íslands
Virkni og viðbótarmeðferð
á íslenskum hjúkunarheimilum
Nýjungar: niðurstöðurnar sýna að íslensk hjúkrunarheimili
bjóða bæði upp á ýmiss konar meðferð til að efla virkni og
marg háttaða viðbótarmeðferð fyrir íbúa.
Hagnýting: Yfirlit þessarar rannsóknar gefur starfsfólki á
hjúkrunarheimilum hugmyndir að möguleikum í meðferð.
jafnframt er það grunnur að frekari vinnu við að setja upp
fræðsluefni og námskeið fyrir þær mörgu stéttir sem skipu-
leggja og veita þessa meðferð í þeim tilgangi að bæta almenna
líðan íbúanna.
Þekking: aðstandendur og sjálfboðaliðar taka ekki mikinn
þátt í því að veita meðferð til að auka virkni og viðbót-
armeðferð. hér er því tækifæri fyrir hjúkrunarheimilin til að
hvetja og styðja aðstandendur og sjálfboðaliða sem eru til-
búnir til þátttöku í starfi heimilanna.
Áhrif á störf hjúkrunarfræðinga: jákvæð afstaða fram-
kvæmdastjóra hjúkrunarheimilanna til þess að auka meðferð
sem eflir virkni og viðbótarmeðferð er hvatning til rannsak-
enda og stjórnvalda að styðja heimilin svo hægt sé að bjóða
öfluga þjónustu í þessu skyni.
Hvers vegna ættir þú að lesa þessa grein?