Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2019, Page 81
notaðar til að auka virkni íbúa á hjúkrunarheimilum og er
þeim þá beitt sem markvissri meðferð. Tónlistarmeðferð getur
til dæmis dregið úr einkennum þunglyndis (Werner o.fl.,
2015) og óróa ef hún er notuð sem hópmeðferð (ridder o.fl.,
2013). Einnig hefur verið sýnt fram á að hjá fólki með heila-
bilun stuðlar aukin virkni að því að draga úr hegðunarvanda
en lítil virkni og skortur á örvun tengist hins vegar aukinni
árásargirni, óróleika, þunglyndi og sinnuleysi (Scherder o.fl.,
2010).
Margir þættir í umhverfi hjúkrunarheimila og hvernig
þjónusta er veitt hefur einnig áhrif á hversu virkir íbúar eru.
Meðal þessara þátta er þekking starfsfólks á hvaða aðferðum
er hægt að beita til að efla virkni, sem og heilsa og færni hvers
einstaklings og geta hans til að taka þátt (Demers o.fl., 2009).
Þeir íbúar sem eru lítið virkir eru líklegri til að vera með al-
varlega heilabilun, sýna hegðunartruflanir og vera með þung-
lyndi eða færniskerðingu í athöfnum daglegs lífs (Dobbs o.fl.,
2005). Íslenskar rannsóknir benda til að auka þurfi virkni íbúa
á hjúkrunarheimilum en rannsókn frá 2004 sýndi að aðeins
26,1% af íbúum á íslenskum hjúkrunarheimilum tók þátt í
einhverju sem örvaði virkni (Dagmar huld Matthíasdóttir
o.fl., 2009). Tölur frá íslenskum hjúkrunarheimilum frá árinu
2009 sýndu einnig að 55% af íbúum íslenskra hjúkrunarheim-
ila taka lítinn eða engan þátt í virkum athöfnum og að hjúkr-
unarheimilin þurfa að efla og auka þátttöku íbúa (hjaltadottir,
hallberg, Ekwall og nyberg, 2012). Skýrsla Velferðar ráðu -
neytisins sýnir að stjórnendur hjúkrunarheimila eru meðvit -
aðir um mikilvægi þess að örva virkni íbúa en á sama tíma
eru úrræði og þekking ekki alltaf fyrir hendi um hvernig hægt
sé að bæta úr því (halldóra Pálsdóttir og Sigríður jónsdóttir,
2011).
Viðbótarmeðferð er meðferð sem veitt er til viðbótar hefð -
bundinni meðferð til að draga úr einkennum og bæta líðan
(nCCih, 2019). Meðal þess sem boðið er í viðbótar meðferð
má nefna meðferð með dýrum, nudd og ilmolíur. Erlendis
hafa verið gerðar rannsóknir á notkun viðbótar meðferðar á
hjúkrunarheimilum og hafa þær meðal annars sýnt að við -
bótar meðferð getur dregið úr óviðeigandi hegðunarein-
kennum (Cooke o.fl., 2010). notkun dýra í meðferðartilgangi
hjá íbúum hjúkrunarheimila sem eru með hrörnunarsjúk-
dóma eins og heilabilun sýnir að dýrin tengjast þeim oft vin-
áttuböndum og draga úr einmanaleika (Wood o.fl., 2015).
nudd er talsvert notað af hjúkrunarfræðingum og sjúkralið -
um til að efla heilbrigði og vellíðan og hægt er að nota það til
að auka blóðflæði, draga úr verkjum, bæta svefn, draga úr
kvíða eða depurð og bæta almenna líðan (rose, 2010). ilmolíur
hafa verið taldar gagn legar við að draga úr svefnvandamálum
og kvíða hjá íbúum á hjúkrunarheimilum (johannessen, 2013).
Áhrif alls konar viðbótarmeðferðar hafa ekki verið rannsökuð
á íslenskum hjúkrunarheimilum. Viðbótarmeðferð er talsvert
not uð á Landspítala, en könnun frá 2016 leiddi í ljós að notkun
hennar hafði aukist um 20% miðað við könnun frá árinu 2000
(Þóra jenný gunnarsdóttir o.fl., 2016). helstu tegundir með -
ferðar, sem eru veittar, eru slökun og nudd og eru hjúkrunar-
fræðingar fjölmennasti hópurinn sem veitir þess konar með -
ferð.
hjúkrunarheimili á Íslandi beita margs konar viðbótar -
meðferð og aðferðum til að örva virkni íbúanna. Lítið er vitað
um umfang þessara úrræða og hvaða árangri þau skila og
finnst rannsakendum mikilvægt að afla þekkingar um það.
aukin þekking á viðfangsefninu er forsenda þess að hægt sé
að leita leiða til að efla og styrkja þessa þjónustu við íbúa hjúkr-
unarheimila. rannsóknin sem hér er sagt frá er hluti af stærra
verkefni í fjórum áföngum. Við undirbúning þessarar rann-
sóknar hittu rannsakendur framkvæmdastjóra hjúkrunar
þriggja hjúkrunarheimila til að ræða fyrirhugaða rannsókn og
kom þar fram að mikilvægt væri að byrja á að fá yfirsýn yfir
þessa þjónustu og kanna hvað væri í boði. Með því væri hægt
að skoða hvað má betur fara og hvaða aðstoð hjúkrunarheim-
ilin þarfnast til að efla þessa þjónustu með það að markmiði
að auka virkni og vellíðan íbúa. fyrsti áfangi rannsóknarinnar
var því að gera spurningalistakönnun og senda á öll hjúkrunar -
heimili til að fá upplýsingar um hvaða virkni- og viðbótar -
meðferð væri veitt, hvernig sú þjónusta væri skipulögð og
einnig hvort hjúkrunarheimilin óskuðu eftir frekari aðstoð eða
fræðslu til að efla þessa þjónustu. annar áfangi rannsóknar-
innar verður að fá rýnihópa frá fjórum hjúkrunarheimilum til
að ræða þessi mál nánar og fá betri mynd af því hverju þessi
þjónusta skilar íbúunum. Í þriðja áfanga verður settur fram
fræðslupakki fyrir hjúkrunarheimilin sem byggður er á niður -
stöðum úr spurningalistakönnuninni og rýnihópunum. Í fjórða
áfanga rannsóknarinnar verður hjúkrunarheimilum boðin
þátttaka í að nýta sér fræðslupakkann og innleiða nýja með -
ferð. Árangur þeirrar innleiðingar verður metinn með megind -
legri aðferð, með mælingum fyrir og eftir íhlutun bæði hjá
innleiðingarhópi og viðmiðunarhópi. Í þessum samanburði
verður skoðuð niðurstaða interrai-gæðavísa, sem gefa vís-
bendingar um gæði, sem og valdar breytur úr interrai-mati,
sem lýsa heilsufari íbúa. heildarniðurstöður þessarar rann-
sóknar geta síðan nýst til áframhaldandi stuðnings við íslensk
hjúkrunarheimili til að auka virkni íbúanna og bjóða upp á
fjölbreytta meðferð.
Markmiðið með spurningalistunum var að svara eftirfar-
andi spurningum: hvaða meðferð til að auka virkni er í boði
á íslenskum hjúkrunarheimilum? hvaða viðbótarmeðferð er í
boði á íslenskum hjúkrunarheimilum? hverjir sjá um að skipu -
leggja þessa meðferð? hver er þátttaka aðstandenda og sjálf -
boðaliða í að aðstoða íbúa við að auka virkni sína? hver er
þátttaka aðstandenda og sjálfboðaliða í að veita viðbótarmeð -
ferð? hversu stórt hlutfall íbúa má ætla að geti nýtt sér slíka
meðferð? Er þörf á að fá frekari aðstoð eða upplýsingar til að
bæta þessa þjónustu á íslenskum hjúkrunarheimilum?
Aðferð
Rannsóknarsnið og úrtak
könnunin var megindleg og lýsandi og náði til allra hjúkr -
unar heimila á Íslandi sem eru 59 talsins. Ákveðið var að senda
framkvæmdastjórum hjúkrunar spurningalistana sem fulltrú -
um heimilanna vegna auðvelds aðgengis að þeim og þar sem
talið var að þeir vegna stöðu sinnar hefðu þessar upplýs ingar
ritrýnd grein scientific paper
tímarit hjúkrunarfræðinga • 3. tbl. 95. árg. 2019 81