Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1952, Page 175
173
1952
cn slíkt er bannað samkvæmt 11. gr.
laga um ónæmisaðgerðir.
Búðardals. Kúabólusetningar fóru
fram í öllum umdæmum á árinu.
Reijkhóla. Kúabólusetning fór ekki
fram í héraðinu, meðal annars vegna
utanfarar héraðslæknis, en bólusett
rnun verða á vori komanda.
Flateyjar. Héraðslæknir ferðaðist
um héraðið og bólusetti. Hafði ekki
verið gert í 4 ár.
Flateyrar. Bólusetning fór fram í
sambandi við skólaskoðanir, en mikil
óánægja til sveita með að þurfa að
lcoma með börnin, þvi að venjulega
gekk ljósmóðir bæ frá bæ. Um 15
börn mættu ekki til frumbólusetn-
ingar.
ísafj. Kúabólusetningar fóru fram,
eins og til er ætlazt. Má árangur telj-
ast góður. Allmörg barnanna fengu
hita nokkra daga, en fylgikvillar voru
engir nú, og ekkert barnanna fékk
útsæði. Nokkur börn voru bólusett við
kikhósta, en þar sem læknar höfðu
ekki skrifað niður nauðsynlegar upp-
lýsingar um hina bólusettu, verður
það ekki sett á skýrslur að þessu
sinni.
Súðavikur. Kúabólusetning utan
skólanna fór fram aðeins í Snæfjalla-
hreppi, en þar hafði ekki verið bólu-
sett í mörg ár.
Hólmavíkur. Kúabólusetning fór
fram, eins og lög mæla fyrir. Árangur
æðimisjafn.
Hvammstanga. Hafði oftast kúabólu-
efni með í ferðum minum og bólu-
setti ungu börnin, þar sem þess þurfti.
Allflest skólabörn, er til þess höfðu
aldur, endurbólusett samhliða skóla-
skoðun. Að beiðni minni bólusetti
íjósmóðir nokkur börn á Hvanims-
tanga. Nokkuð gert að bólusetningu
gegn kikhósta og barnaveiki. Annars
hafa nú velflest börn, eldri en 2—3
ára, verið bólusett gegn þessum sjúk-
dómum.
Sauðárkróks. Endurkúabólusetning
fór fram í sambandi við skólaskoðan-
ir. Auglýsti ég svo bólusetningu einu
sinni í viku á Sauðárkróki fyrir yngri
börn. Fólki hættir til að trassa bólu-
setningar, nema eitthvað reki á eftir,
og vill gleyma að koma með ónæmis-
skírteini, en ég hef lika spjaldskrá
yfir þau börn, sem bólusett eru, og
færi þar inn ónæmisaðgerðir.
Ólafsfj. Kúabólusetning var fram-
kvæmd, og kom ágætlega út á frum-
bólusettum börnum, en engu endur-
bólusettu. Allflest frumbólusetningar-
börn fengu mikinn hita og sum mjög
mikla reaktion. Fólk hliðrar sér hjá
að láta bólusetja börn sín, vegna þess
að bóluefni er alloftast mjög sterkt,
og vill helzt losna við að stunda þau
i veikindum af þeim sökum.
Grenivikur. Bólusett voru bæði
yngri og eldri börn, og kom bólan vel
út á frumbólusettum börnum, en illa
á hinum endurbólusettu. Á sumum
frumbólusettu barnanna kom bólan
mikið út. Mikill bólguþroti í kringum
hana og töluverður lasleiki með henni.
Húsavíkur. Frumbólusetning féll
niður á Húsavík vegna erfiðrar veðr-
áttu að vorinu og síðar vegna kvef-
faraldurs og kikhósta. Endurbólusetn-
ing fór fram i skólunum að haustinu.
Seyðisfj. Kúabólusetning féll niður
á árinu, vegna mislingafaraldursins í
sumar og kvefsóttar, sem lá hér í
landi meira hluta ársins.
Nes. Kúabólusetning framkvæmd af
miklum dugnaði (frumbólusetning í
marz, endurbólusetning í mai) af
fyrirrennara mínum.
Djúpavogs. Margt barna var að
þessu sinni kúabólusett, og kom bólan
sæmilega út. Nokkur fengu þó allháan
hita; 1 drengur fékk morbilliform út-
brot og var nokkuð veikur með.
21. Mannskaða-
rannsóknir.
Frá rannsóknarstofu Háskólans hef-
ur borizt eftirfarandi skýrsla um rétt-
arkrufningar stofnunarinnar 1952:
1. 5. janúar. N. P., 56 ára karlm.
Fannst örendur á götu í Reykja-
vík. Við krufningu reyndist hjarta
mjög stækkað (625 g) og vinstri
kransæð þess svo að segja alveg
lokuð skammt frá upptökum.
2. 21. janúar. R. Þ-dóttir, 28 ára.
Hneig skyndilega niður hjá móð-
ur sinni og var þegar örend. Við