Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1959, Page 103
— 101 —
1959
Flateyrar. Migraine ekki óalgengur
kvilli hér. Morbus Meniére: 1 tilfelli,
kona um fimmtugt. Neurasthenia er
fremur algeng. Konur eru í miklum
meiri hluta þessara sjúklinga.
Suðureyrar. Epilepsia: 2 drengir, 7
og 11 ára. Mjög i rénun hjá þeim eldri,
en hinn notar phenemal + phenantoin.
Psychoneurosis: 1 tilfelli á svo háu
stigi, aS sjúklingur varð rúmliggjandi.
Nokkur tilfelli af vœgari neurosis.
Sclerosis disseminata: Greining sér-
fræðings, kona 65 ára, liklega ekki
skráð sem slik fyrr. Hefur kennt sjúk-
dómsins á annan tug ára. Progredier-
andi lömun á neðri útlimum. Radi-
culerandi verkir út i mjöðm og gang-
limi. Getur þó enn eitthvað borið sig
um innanhúss og fer um í hjólastól
utanhúss. Migraine 2 tilfelli.
Súðavíkur. Apoplexia cerebri 1,
hysteria 1, migraine 2. Tumor cerebri
1 (sama tilfelli og i fyrri skýrslu).
Hólmavíkur. Epilepsia 2, sclerosis
disseminata 1.
Hvammstanga: Epilepsia: Sjúklingn-
um, sem verið hefur á skrá undan-
farin ár, virðist vera batnað, en 6 ára
stúlkubarn virðist hafa vægt stig af
epilepsia, sem lýsir sér þannig, að
hún virðist algerlega gleyma sér í 15
fil 30 sekúndur og starir þá út i tóm-
ið. Ógerningur er að komast í sam-
band við hana á meðan, og veit hún
ekkert af þessu. 67 ára gamall karl-
niaður, sem er orðinn algerlega ósjálf-
bjarga, hefur verið haldinn þessum
sjúkdómi síðast liðin 10 ár. Parkin-
sonismus á hæsta stigi. Getur gengið
nokkur skref, ef hann er studdur.
Annar karl um áttrætt hefur sjúkdóm-
inn á lágu stigi og tvær konur aldraðar.
Blönduós. Epilepsia hafa hér 5 kon-
ur, allar á heldur lágu stigi nema ein,
sem fluttist úr héraðinu á árinu.
Paralysis agitans hafði roskinn bóndi
ur Skagafirði, sem var lagður hér inn
u spitalann mjög langt leiddur og dó
Par eftir skamma dvöí. Sclerosis later-
nlis amyotrophica hefur kona á
iertugsaldri, sem legið hefur i nokk-
ur ár hér á spítalanum, en verið skráð
undir greiningunni sclerosis disse-
niinata, þangað til i ár, er sérfræðing-
ur skoðaði hana hér og komst að nýrri
niðurstöðu. Hún er algerlega ósjálf-
bjarga og skilst varla nú orðið. Tumor
cerebri, sennilega glioma, hefur bóndi
á fertugsaldri. Fyrstu sjúkdómsein-
kennin voru heiftarleg höfuðverkja-
köst, sem komu nokkrum sinnum á sól-
arhring og lagði niður i hægri öxl, en
stóðu stutt. Eg gat fyrst um hann í
skýrslu minni fyrir 1957 og kallaði
þetta þá Hortons cephalatgia. Hann
var sendur á Landsspítalann 1958, og
var niðurstaðan þar helzt sú, að um
sclerosis disseminata væri að ræða.
Maðurinn fór svo til Kaupmannahafn-
ar og var þar til athugunar hjá próf.
Busch, sem óskaði að fá liann aftur
til athugunar og meðferðar á síðast
liðnu hausti, og sigldi hann þá i ann-
að sinn. Enn lék greining sjúkdóms-
ins nokkuð á reiki, og var gerður á
honum heilaskurður, en án árangurs
og með þeirri niðurstöðu, að um
óskurðtækan tumor cerebri væri að
ræða. Sjúklingur þessi hefur verið hér
á spítalanum síðan heim kom og fær
eftir sem áður kvalaköst i höfuðið og
hægri öxl, mörg á sólarhring hverjum
og stutt í einu.
Ólafsf]. Morbus Meniére 1.
Grenivikur. Eldri kona fékk heila-
blæðingu, sem hún lézt af.
Breiðumýrar. Morbus Meniére: 3 til-
felli ný, konur um sextugt. Stress:
Ekki býst ég við, að hið margum-
rædda fyrirbrigði „stress“ (eða „álag“,
eins og ég nefni það með sjálfum mér)
sé algengara hér í fámenni og fá-
breytileika daglegs lífs i atskekktum
byggðum en annars staðar, nema sið-
ur sé. Af þeim sjúklingum að dæma,
sem ég kynntist utan héraðs, hef ég
fulla ástæðu til að ætla, að það sé víða
meira áberandi en hér. Og þó flykkj-
ast dæmin um það og áhrif þess á
liðan manna og heilsu svo að, að ég
hika ekki við að telja það eina mestu
sjúkdómsorsök hér um slóðir.
Kópaskers. Chorea familtaris (Hun-
tington): Þrir sjúklingar sem áður,
tvö systkini og einn frændi þeirra.
Ekki getið i skýrslu fyrir tiðast liðið
ár. Epilepsia: Einn sjúklingur sem
áður.
Raufarhafnar. Neurosis: Algengur
kvilli.