Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1959, Side 117
— 115 —
1959
ur varð fyrir bíl á götu og lézt í
sjúkrahúsi 6 sólarhringum siðar án
þess að komast til meðvitundar. Dán-
arorsök var blæðingar í heila. 18 ára
karlmaður varð fyrir bíl á götu og lézt
eftir 3 klst. dvöl í sjúkrahúsi. Dánar-
orsök var blæðing inn á heilann, en
auk þess hafði hann hlotið fótbrot og
áverka á lifur. 59 ára karlmaður varð
fyrir bíl á götu og lézt samstundis
vegna höfuðkúpubrots. Flugslys:
Sjúkraflugvél var á leið til Reykjavík-
ur með öldruð hjón úr Skagafirði.
Flugvélin lenti í þoku yfir Snæfells-
nesi, rakst á hæð, og flugmaðurinn,
sem átti heimili í Reykjavík, og far-
þegarnir biðu samstundis bana. Önnur
banaslys: 31 árs karlmaður féll fram
af tröppum niður á steinsteyptan pall,
hlaut höfuðkúpubrot og lézt í sjúkra-
húsi tæpum 2 sólarhringum síðar. 48
ára kona hvarf frá heimili sínu og
fannst látin við geymsluskúr tæpum
2 sólarhringum siðar, köld og stirðn-
uð. Mun hafa tekið svefnlyf, setzt fyr-
ir, sofnað og króknað í hei. 5 vikna
barn kafnaði i rúmi móður sinnar,
sem lagðist ofan á það í svefni. 62
ára karlmaður lézt svo að segja sam-
stundis eftir höfuðkúpubrot, er hann
hlaut við það, að bóma á krana féll
á höfuð honum. 36 ára karlmaður sást
síðast hinn 21. nóvember 1958, og
fannst lík hans í Reykjavíkurhöfn hinn
14. marz 1959. Krufning var talin
óframkvæmanleg og dánarorsök óupp-
lýst. 6 mánaða barn kafnaði i svefni
af völdum slímuppgangs frá maga. 42
ára kona lézt af kolsýrlingseitrun i
*húð sinni, sem var full af reyk, er
að var komið, en kviknað hafði í iegu-
hekk út frá vindlingi. í blóði og þvagi
fannst verulegt magn áfengis. 53 ára
karimaður lézt af kolsýrlingseitrun frá
híl sinum. Ríllinn var inni í bílskúr,
°g maðurinn sat örendur við stýrið,
Þegar að var komið. 10 mánaða barn
fórst í eldsvoða í íbúðarhúsi. Bana-
uiein var köfnun og kolsýrbngseitrun.
4 mánaða barn fórst i sama eldsvoða
°g banamein hið sama. 70 ára karl-
maður varð fyrir þvi slysi í lyftu, að
höfuð hans rakst i og klemindist með
þeim afleiðingum, að maðurinn lézt
rett á eftir. Banamein reyndist köfnun,
sem stafaði af því, að efra kjálkabein-
ið brotnaði alveg frá beinunum aftan
við það og lagðist aftur á við fyrir
kokið. 31 árs karlmaður hvarf að
heiman, og hefur ekki spurzt til hans
síðan. 42 ára karlmaður hlaut höfuð-
högg við fall á bryggju erlendis og lézt
i sjúkrahúsi skömmu síðar. 47 ára
karlmaður féll í tröppu um borð i
ferju erlendis og lézt af völdum höfuð-
kúpubrots. 92 ára karlmaður fannst
drukknaður í fjöruborði í Reykjavík.
84 ára karlmaður datt á götu, lær-
brotnaði, fékk upp úr því þvageitrun
og lézt í sjúkrahúsi tæpum mánuði
síðar. 93 ára kona lærbrotnaði við að
fara fram úr rúmi sínu, varð karlæg
og lézt í sjúkrahúsi 5 mánuðum síðar
úr ellikröm. 82 ára kona datt og lær-
brotnaði, var lögð inn á sjúkrahús, en
komst aldrei á fætur, fékk þvageitrun
og lézt einu og hálfu ári eftir slysið.
87 ára kona datt á gólfi beima hjá
sér, lærbrotnaði og lézt mánuði sið-
ar úr blóðtappa i lungum. Sjálfsmorð
eru talin 4 og framin þannig: 2
drekktu sér (kona 47 ára og karlmað-
ur 61 árs), 1 tók inn svefnlyf (kona
37 ára), 1 drakk lýsól (kona 54 ára).
Akranes. Mér er kunnugt um þessi
brot og liðhlaup: Lux. digiti 3, sublux.
radii perannularis 3, fract. mandibulae
1, claviculae 5, costae 3, humeri 8,
antebrachii 7, radii 16, ulnae 2, meta-
carpi 6, digiti manus 7, ossis navi-
cularis manus 2, corporis vertebrae
lumbalis 1, processus transveri lum-
balis 1, ossis pubis 1, colli femoris 2,
femoris 1, cruris 1, tibiae 3, malleoli
interni 2, malleoli externi 3, fibulae 1,
calcanei 4, metatarsi 2, digiti pedis 2.
43 ára kona á Akranesi var myrt
(kyrkt). Þrír menn heimilisfastir á
Akranesi drukknuðu, er botnvörpung-
urinn Júlí frá Hafnarfirði fórst.
Patreksfj. 23 lagðir í sjúkrahús
vegna ýmissa slysa, þar af rúmlega
helmingur innlendir og erlendir sjó-
menn. Aðeins eitt umferðarslys. Vegir
i héraðinu eru seinfarnir og viða
hrikalegir. Fáir aka hratt eftir þessum
vegum, og auk þess er umferð ekki
mikil. Eitt slys af völdum landbún-
aðarvéla. Allmörg minna háttar slys,
flest í sambandi við fiskvinnslu.