Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1959, Side 121
— 119 —
1959
colli femoris. 18 ára karlmaður var
í kindaleit, er hann hrapaði í fjalli í
mikilli hálku. Mun hafa runnið eftir
flughálli snjóbreiðu í stórgrýtisurð.
Hinn slasaði var einn í þessari leit, og
leið alllangur timi, þangað til hann
fannst. Það tók langan tíma að koma
honum til bæja, en flytja varð hann
á sjúkrabörum frá slysstaðnum til bæj-
ar. Við slysið hlaut hann fract. radii
og fract. pelvis et ossis sacri og einnig
fract. corporis vertebrae lumbalis II.
16 ára piltur féll niður af heyvagni og
hlaut fract. colli humeri. 31 árs her-
maður svaf í setuliðsbíl, er bíllinn fór
út af vegi og valt ofan í árgil. Her-
maðurinn hlaut commotio cerebri,
contusiones variae og vulnera varia. 7
ára stúlka varð fyrir bifreið og hlaut
fract. tibiae og vulnus pedis. 3 ára
örengur varð fyrir dráttarvél með
þeim afleiðingum, að hann fékk fract.
radii og fract. costae. 45 ára karlmað-
ur fékk ruptura tendinis Achillis. 66
ára kona lenti í bílaárekstri og fékk
contusio capitis et fract. columnae. 8
ára drengur hlaut fract. humeri. 22
ára kona datt af reiðhjóli og fékk
fract. malleolaris medialis. 85 ára kona
fékk svima yfir höfuðið og datt á gólf-
inu heima hjá sér og fékk fract. colli
femoris. 70 ára karlmaður hrasaði i
stiga heima hjá sér og féll niður all-
margar tröppur og fékk fract. colum-
nae og fract. radii. 87 ára kona hras-
uði á gólfi heima hjá sér og félck
fract. colli femoris. 14 ára stúlka datt
heima hjá sér og kom svo harkalega
uiður, að hún hlaut fract. humeri. 16
ara drengur var í knattspyrnukapp-
leik og hlaut svo harkalegt spark fram-
an á v. legg, að hann fékk fract. tibiae.
81 árs karlmaður datt niður stiga
heima hjá sér og fékk fract. radii,
vulnus frontis og haemorrhagia cere-
bri. Dó 10 dögum eftir slysið. 28 ára
togarasjómaður fékk höfuðhögg úti á
>ió og við það fract. cranii. 21 árs
karlmaður rann til á hálku og fékk
fcact. ulnae. 30 ára kona varð fyrir
bíl og fékk commotio cerebri, fract.
Hbiae, fract. claviculae og fract. proc-
essus transversi lumbalis. 35 ára
kona varð fyrir bíl og fékk fract.
eranii, commotio cerebri og fract.
processus transversi lumbalis. 71 árs
kona datt á gólfi heima hjá sér og
fékk fract. mandibulae. 31 árs floga-
veikur karlmaður fékk fract. cranii og
fract. mandibulae við fall í kasti. 92
ára kona datt á gólfi heima hjá sér og
fékk fract. colli femoris. 18 ára karl-
maður var að stökkva þristökk og
fékk við það rupt. menisci medialis.
31 árs karlmaður fékk commotio
cerebri og fract. cranii við það, að
línustaur féll á höfuð hans. 20 ára
stúlka datt af hestbaki og fékk com-
motio cerebri. 53 ára karlrnaður datt
á hálku og fékk fract. malleolaris. 22
ára karlmaður datt á tröppum heima
hjá sér og fékk fract. cruris. 14 ára
drengur féll niður af vinnupalli ca.
4 m ofan á steingólf. Fékk við það
fract. radii. 19 ára stúlku og kærasta
hennar varð eitthvað sundurorða, er
þau sátu að sumbli síðla nætur, og
greiddi kærastinn stúlkunni svo vel
úti látinn kinnhest, að hún kjálka-
brotnaði.
Grenivíkur. Nokkuð um minna hátt-
ar slysfarir. Roskin kona datt á þvotta-
balarönd og rifbeinsbrotnaði. Drengur
var að setja rusl í miðstöðvarketil,
skvetti síðan olíu í hann. Glóð hefur
verið í honum, þvi að um leið stóð
eldblossinn fram úr honum. Drengur-
inn brenndist í andliti, en þó ekki
djúpt, og roði kom á háls. 15 ára telpa
datt á sléttu túni og handleggsbrotn-
aði. Kona datt í tröppum og snerist
illa um ökla á báðum fótum. 7 ára
drengur var að taka bein af hundi.
Beit hundurinn hann í efri vör og
fékk drengurinn djúpan skurð í hana,
sem gapti mikið. Ungur bóndi brennd-
ist á öllum fingrum hægri handar og
3 á þeirri vinstri. Vildi það þannig
til, að kona hans var að kveikja upp
undir þvottapotti. Olíubrúsi, er hún
var að nota, fór um koll, og flóði olían
út um gólfið. Kviknaði í henni og
brenndist bóndinn við slökkvistarfið.
Munaði mjóu, að ekki kviknaði i hús-
inu. Auk framan talins: sár 23, mör 6,
tognanir 6, mör og tognanir 2, stungur
4, skurðir 3, aðskotahlutir í holdi 5,
öngulstungur 2, aðskotahlutir í auga
1 og viðbeinsbrot 1.
Breiðumýrar. Engin dauðaslys.