Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1959, Page 148
1959
— 146 —
Hvammstanga. Skólaskoðun fór fram
á venjulegan hátt. Fylgzt var með
heilsu skólabarna, eftir þvi sem ástæða
þótti til. Öngþveiti er hér mikið i
skólamálum, einkum á Hvammstanga.
Laugarás. í desember 1959 var tek-
in upp neyzla gerilsneyddrar mjólk-
ur frá MBF í mötuneytum framhalds-
skólanna að Laugarvatni, að Hús-
mæðraskóla Suðurlands einum undan-
skildum. Um þetta mál spunnust
nokkrar blaðadeilur. Kom þar einna
mest við sögu rannsókn á mjólkur-
sýnishornum frá skólabúinu. Rann-
sókn þessi var raunar hvorki upphaf
þessa máls né réð neinum úrslitum
þess. Gerilsneydd mjólk i mötuneytið
hafði lengi verið áhugamál margra
nemenda, eins og lesa má i greinum
i skólablaði menntaskólans á undan-
förnum árum. Fram kom gagnrýni
nemenda á umgengni i fjósi búsins,
og fékk héraðsdýralæknir á skólaár-
inu 1958—59 bréf frá nemendum, þar
sem kvartað var yfir mjólkinni. Megn
óánægja hafði gosið upp öðru hverju
með mjólkina i mötuneytinu, en mun
þó hafa verið einna mest síðustu
mánuði ársins 1959. Ég get með engu
móti láð nemendum, þótt þeir tækju
af skarið og hryndu þessu áhugamáli
sinu, og að mínu áliti velferðarmáli,
i framkvæmd. Niðurstöður nefndrar
rannsóknar lét ég framleiðanda og
skólastjórum allra skólanna í té, með
vissum fyrirvara vegna fjarlægðar frá
rannsóknarstað. Taldi þó næga sönn-
un fyrir því, að nokkuð af óneyzlu-
hæfri mjólk hafi borizt frá skólabúinu
umræddan dag. Ágæti fjóss skólabús-
ins á Laugarvatni hefur verið mjög
rómað. Mætir menn hafa fullyrt, að
hér sé um að ræða eina alfullkomn-
ustu stofnun sinnar tegundar hér-
lendis. Aðbúnaður kúnna og fjósa-
manns óaðfinnanlegur og aðstæður
til þrifnaðar með ágætum. Þetta skal
sizt dregið i efa, og ber að fagna því
af heilum huga. Því miður er ekki
hægt að bera aðbúð nemenda á staðn-
um sömu sögu, og mætti benda þar
á marga hluti, sem betur mættu fara,
hafa verið gerðir af vanefnum í
byrjun eða viðhakl þeirra vanrækt,
en féleysi borið við. Sömu sögu er að
segja af að minnsta kosti fjórum barna-
skólum héraðsins.
Kópavogs. Unnið að stækkun barna-
skólans á Kársnesi, einnig við ieik-
fimishús við barnaskólann á Digra-
neshálsi, og var það að mestu full-
gert í árslok. Hafin bygging nokkurs
hluta fyrirhugaðs gagnfræðaskóla.
11. Barnauppeldi.
Rvík. Barnaverndarnefnd hafði stöð-
ugt eftirlit með 78 heimilum á árinu.
Enn fremur hefur starfsfólk nefndar-
innar komið á fjölmörg önnur heimili,
ýmissa orsaka vegna, og veitt marg-
vislegar leiðbeiningar og aðstoð,
Nefndin hefur haft til meðferðar mál
nokkurra einstaklinga og stofnana
vegna afskipta þeirra af börnum og
unglingum. Þá fékk nefndin til með-
ferðar 8 hjónaskilnaðarmál vegna
deilna um forræði barna og gerði
tillögur um forræði 19 barna. Nefnd-
in mælti með 48 ættleiðingum á ár-
inu, og fer þeim fjölgandi ár frá ári.
Nefndin útvegaði 141 börnum og ung-
lingum dvalarstaði, og fóru 3 þeirra
í fóstur á einkaheimili. Auk þess var
138 börnum komið fyrir á barna-
heimilum eða einkaheimilum liér í
bæ eða á sveitaheimilum. Bókuð voru
392 afbrot hjá 194 börnum á aldr-
inum 7—16 ára, 130 piltum og 64
stúlkum. Afbrotin voru sem hér seg-
ir: Hnupl og þjófnaður 186 (hjá pilt-
um 180, hjá stúlkum 6), innbrot 71
(allt piltar), flakk og útivist 59 (pilt-
ar 23, stúlkur 36), skemmdir og spell
30 (allt piltar), lauslæti og útivist
25 (stúlkur), ölvun 9 (piltar 5, siúlk-
ur 4), svik og falsanir 5 (piltar 3,
stúlkur 2), annað 7 (piltar).
Kvenlögreglan hefur á árinu haft
afskipti af 89 stúlkum á aldrinum
13—18 ára, aðallega vegna útivistar,
lauslætis, þjófnaðar eða áfengisncyzlu.
Ólafsfj. í ólestri, enda virðist fólk
ekki hafa orðið tima til að sinna þvi.
Segðisfj. Nokkuð almennt álit, að
hegðun barna sé verri en áður fyrr.
Enginn vill sína æsku muna.
J