Þjóðmál - 01.06.2016, Page 91

Þjóðmál - 01.06.2016, Page 91
séð um kynjaaðskilnað í íslam, þvingaða notkun á slæðum eða annað sem miðaði að kúgun kvenna.9 Medínu-moskur Lundúnarborgar munu einnig hafa breitt þetta hugtak kerfisbundið út í herferðum gegn rithöfundinum Salman Rushdie eftir að íranska klerkastjórnin kvað upp fdfivo-úrskurð gegn honum 1989 sem fól í sér dauðadóm gegn honum, útgefendum hans og öðrum sem komu að bókinni. Rushdie og verjendur tjáningarfrelsisins mættu ásökunum um„glæpsamlega íslamófóbíu" og var hótað Iffláti.„Hugtakið íslamófóbía er þannig upphaflega vopn skap- að af íslamistum til að þjóna þeirra mark- miðum við að neyða alræðissýn sinni upp á umheiminn, hverrar rætur er að finna í algerri andlegri myrkvun," skrifar franski heimspeki- kennarinn Robert Redeker.10 Hugtakið var þannig vígorð í fyrstu og er nú orðið sam- merkjandi með rasisma. Ólýðræðisleg ríki á borð við Sádi-Arabíu eru ráðandi innan Samtaka um íslamska samvinnu (Organization of Islamic Coopera- tion, OIC). Þau hafa barist af alefli á vettvangi Sameinuðu þjóðanna fyrir því að múlbinda gangrýni á íslam um heim allan. Sú gagn- rýni hefur af þeim verið skilgreind sem íslamófóbía og„rasismi nútímans." Mark- miðið með þessu er að gera gagnrýni á íslam glæpsamlega.* 11 Fólksem notar hugtakið íslamófób í því augnarmiði að ná undirtökum í umræðunni er þannig gengið í félagsskap og lið með sjeikunum. Fólk verður að spyrja sig hvort það sé rasismi að benda á misnotkun valdbeitingar innan íslams, hvort heldur hún á sér stað í Afganistan eða Ósló? Er það rasismi að hafna stofnanavæddri mismunun á konum og 9 Sjá greinina„Hvad er islamofobi?" eftir Robert Redeker á information.dk, 4. október 2006. 10 Robert Redeker: Op. cit. 11 Til dæmis skipulagði OIC ráðstefnuna„The First International Conference on Islamophobia: Law and Media" árið 2012. Þar var rætt um að gera gagnrýni á trúarbrögð að glæpsamlegum verknaði. Augljóst er að tilgangurinn með þessu er að slá upp vörn gegn gagnrýni á íslam. Það er stórhættulegt að gangast við því athugasemdalaust að bannað sé að gagnrýna trúarbrögð. Slíkt getur haft hrikalegar afleiðingar fyrir Evrópu framtíðar. Afleiðingarnar verða þó ekki síst verstar fyrir mann- réttindastöðu þess hóps sem stækkar hraðast innan álfunnar í dag en það eru múslimar sjálfir. samkynhneigðum eða vísa guðdómlegum sharía-lögum á bug? Er það rasismi að leggja staðreyndir á borð sem sýna að virðingin fyriralþjóðlegum mannréttindum Sameinuðu þjóðanna er mjög oft fyrir borð borin í lönd- um múslima? Rasismi er algerlega óþolandi í mínum huga og gegn honum verður að berjast með öllum löglegum ráðum. Baráttan gegn innleiðingu lagalegra trúarbragða ívestræn samfélög er hins vegar langt frá því að vera óþolandi. Sú barátta er algerlega nauðsynleg ef takast á að færa frjálsa siðmenningu okkar áfram til komandi kynslóða. Það er jafn eðlilegt að gagnrýna íslam eins og hverjar aðrar kennisetningar, nema fólktelji í alvöru að íslömsktrúarbrögð séu svo einstök og heilög að þau séu hafin yfir hverja rökhyggjulega nálgun og rannsókn. Að sjálfsögðu verða þau sem aðhyllast þessa trú og félagar þeirra að fá að trúa því að íslam sé bæði hreint og óhreyfanlegt, en leggja þá skyldu á herðar annarra að þeir séu sama sinnis er fullkomlega óásættanlegt og stang- ast algerlega á við hugmyndir upplýsinga- aldarinnar. Útspilinu íslamófóbía er beitt markvisst af Medínu-múslimum og velgjörðarfólki þeirra sem ekki eru múslimar. Þannig fá Medínu- múslimar að halda áfram ótruflaðir við sitt kúgandi stjórnmálaverkefni og vinnu við að auka þrýsting á veraldlegar stofnanir okkar á Vesturlöndum. Það er stórhættulegt að gang- ast við því athugasemdalaust að bannað sé að gagnrýna trúarbrögð. Slíkt getur haft ÞJÓÐMÁL sumarhefti 2016 89

x

Þjóðmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.