Þjóðmál - 01.12.2019, Blaðsíða 8
6 ÞJÓÐMÁL Vetur 2019
AF VETTVANGI STJÓRNMÁLANNA
Eftir að fluttar voru fréttir af því í þættinum
Kveik í ríkissjónvarpinu að óhreint mjöl væri
í pokahorni útgerðarrisans Samherja í Namibíu
hófu samtök um nýja stjórnarskrá hér á landi,
Stjórnarskrárfélagið, að efna til útifunda
á Austurvelli. Fyrsti fundurinn var haldinn
laugardaginn 23. nóvember 2019 og var
kynntur á þennan hátt:
„Stjórnarskrárfélagið, Efling stéttarfélag,
Öryrkjabandalagið, Samtök kvenna um
nýja stjórnarskrá, Gegnsæi, samtök gegn
spillingu, og hópur almennra borgara og
félagasamtaka hefur tekið sig saman og
flautað til mótmælafundar á Austurvelli nk.
laugardag, 23. nóvember, klukkan 14.
Almenningur í Namibíu er rændur af
íslenskri stórútgerð. Almenningur á Íslandi
er rændur arðinum af auðlindum sínum.
Tugir milljarða eru færðir árlega í vasa
stórútgerða sem ættu að renna í sjóði
almennings til uppbyggingar samfélagsins.
Óréttlætið þrífst í skjóli úreltrar stjórnar skrár
og pólitískrar spillingar. Stjórnmála flokkar
standa auðsveipir gagnvart sérhagsmunum
örfárra sem náð hafa heljartaki á þjóðlífinu
í skjóli lögverndaðs arðráns og ofsagróða.
– Fjárhagsleg samskipti stórútgerða og
stjórnmálamanna og stjórnmálaflokka
þarf að rannsaka og skera upp herör gegn
skatta skjólum og peninga þvætti.“
Björn Bjarnason
Stjórnarskrárfélag í kreppu –
hálmstrá stjórnarandstöðu
Rithöfundurinn Bragi Páll Sigurðarson var aðalræðumaður á fundi Stjórnarskrárfélagsins á Austurvelli 7. desember. Af
ræðu hans að dæma virðist hann lítið vita um stjórnarskrármálið og gang þess. (Mynd: Skjáskot af visir.is)