Þjóðmál - 01.12.2019, Page 29
ÞJÓÐMÁL Vetur 2019 27
Það verður ekki horft framhjá því að þrátt
fyrir að Lífskjarasamningurinn bæti hag
heimilanna er hann kostnaðarsamur fyrir
fyrirtækin í landinu. Aðspurður um þetta
bendir Halldór Benjamín á að 98% atvinnu
rekenda innan vébanda SA hafi samþykkt
samninginn í atkvæðagreiðslu.
„Laun á Íslandi eru vissulega há og hagkerfið
stendur ekki undir frekari launahækkunum
með góðu móti,“ segir Halldór Benjamín og
vísar þar til atvinnulífsins í heild sinni en ekki
bara nýjustu samninga.
„Í alþjóðlegum samanburði eru laun á Íslandi
ein þau hæstu í heimi. Það er ákveðinn ventill
í hagkerfinu og loftið mun fara út um þann
ventil ef við hækkum laun of mikið. Á undan
förnum árum hefur ventillinn verið verðbólga
í gegnum fall krónunnar. Því er ekki að heilsa
núna, verðbólga er undir verðbólgumarkmiði
og gengið er stöðugt. Sennilega hefur raun
gengið styrkst varanlega og við erum enn
með viðskiptaafgang í utanríkisviðskiptum
þótt hagvöxtur sé hverfandi. Raunaðlögun í
hagkerfinu er öðruvísi en áður. Það á sér stað
ákveðin hagræðing í atvinnulífinu, fyrst og
fremst með framleiðniaukandi aðgerðum,
lækkun kostnaðar og tækniþróun. Þetta er
einfaldlega fórnarkostnaður þess að vera með
há laun í landinu. Við þurfum að vera raunsæ,
bæði forystumenn SA og verkalýðshreyfingin.
Upp á hið síðara virðist oft vanta. Það er rúmt
ár síðan ég lýsti því yfir að það ríkti svikalogn
í hagkerfinu. Hagtölurnar á þeim tíma studdu
ekki þá fullyrðingu og ég var gagnrýndur
harðlega. Við höfðum nýlokið fundaherferð
um landið þar sem við fórum og ræddum við
atvinnurekendur og fólk á landsbyggðinni
um hvernig gengi. Þá var fólk byrjað að
finna fyrir því að aðstæður voru að breytast.
Síðastliðna átján mánuði hef ég verið sann
færður um að kólnun væri fram undan, eins
og er að koma í ljós um þessar mundir. Það
er ekkert í líkingu við það sem átti sér stað
haustið 2008; þetta er þvert á móti eðlileg
aðlögun í hagkerfinu en hún er sársaukafull
meðan á henni stendur. En spáin reyndist
hárrétt.“