Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2009, Page 157

Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2009, Page 157
„Um stundarsakir settir af Guði í þennan heim...“ sjálf til að flýta fyrir. Og það er meira. Enginn gæti beitt kraptinum sem hann leggur í hvert áratog, ef hann fengi ekki þrótt til þess frá hvíldinni á milli. [Einnig hefur verið strikað yfir þessar síðustu málsgreinar í handritinu.] Sama lögmál kemur fram á ferðinni yfir lífsins haf. Reglubundið starf og hvíld fleytir þar best áfram og veitir mestan árangurinn, hjálpar til að ná höfninni farsællegast. Og þegar þannig er lifað verður hvíldin sönn blessun, krapta uppspretta og gleðiefni. Hinn þreytti fagnar því að hvílast, af því að hann veit, að það lífgar og gjörir hvem mann eins og nýjan aptur. En það er ekki sama hvað unnið er, eða hvernig unnið er. Hvíldin er ekki sama gleðiefni fyrir þann, sem er þreyttur eptir eitthvert syndsamlegt starf, eins og fyrir þann sem þreyttur er eptir heiðarlegt og gagnlegt starf. Samviskan rís upp eptir syndarinnar þreytu með sína dóma og ásakanir og eyðileggur hvíldarinnar gleði og endurlífgun meira og minna. Eins og það aptur eykur gleði og endurlífgun hvíldarinnar, þegar samviskan er róleg og ánægð yfir því sem unnið hefur verið. Sá sem starfar samviskusamlega í guðsótta og góðum tilgangi að því, sem nytsamlegt er - það er hann sem nýtur hvíldarinnar gleði og endurlífgunar í fullurn mæli. Honum verður hvíldin sönn hvíld, honum reynist hún sannarleg Guðs blessun. Hún verður honurn alltaf stig áfram á lífsins vegi. En hann þreytist samt, þegar til lengdar lætur, meira og minna því að líkami hans er eyðileggingunni háður eins og annarra. Og þó að það sje vísandi vegurinn til að ná háum aldri, að vinna með samviskusemi og skyldu- rækt skynsamlega að því sem nytsamlegt er I guðsótta og ráðvendni, og njóta hvíldarinnar blessunar hæfilega á milli, þá hrökkur hvildin þó aldrei til að bæta upp allt sem vinnur að því að eyðileggja líkamann. Og svo rennur lífið hjer allt að síðustu saman í einn starfsdag, þegar litið er til æfilokanna. Æfin öll verður að síðustu með öllu því sem þreytir, starfi, sjúkdómum, sorg og stríði þrátt fyrir alla hvíldarinnar blessun, að einum einasta starfs- degi, sem hefur þreytt mann svo, ef æfin er orðin löng, og opt miklu fyrr, að hann þráir meiri hvíld en hina vanalegu, þráir að hvílast frá öllu lífinu á þessari jörð eins og það er. Þó að hann hafi unnið trúlega og vel I Guðs ótta, alla æfi, og notið blessunar hvíldarinnar í fullum mæli., þá finnur hann þó allt af betur og betur, að hann á ekki hjer heima, en er hjer að eins starfsmaður um tíma, sem þarf aðra hvíld en fæst hjer á jörðunni. Það er sú hvíld sem dauðinn veitir, sem þeir þrá, hvíld sem endumýjar alla þeirra tilveru, gjörir þá að nýjum mönnum, lausa við öll eyðileggingaröfl þessarar jarðar. Til þeirrar hvíldar horfa þeir með því meiri gleði, sem æfidagurinn verður lengri og tilfellin, sem mæða, fleiri. Og þegar þeir hafa varið lífi sínu vel og samvisku- samlega eptir Guðs fyrirmælum, lagt alla stund á að verja sínum kröptum sem best til þess sem nytsamlegt er I guðrækni, þá er dauðinn þeirn ekki einungis eins mikið gleðiefni eins og þreyttum rnanni er næturhvíldin, heldur miklu meira gleðiefni, svo miklu meira fagnaðarefni sem eilíf sæla í Guðs föðurhúsum er meira fagnaðarefni en hinn líkamlegi vanalegi svefn. Það er um slíka menn og slíka hvíld, að ritningin segir þessi orð: „Sælir eru þeir framliðnu sem I Drottni eru dánir; þeir geta hvílt sig eptir sitt erfiði, því að þeirra verk fylgja þeim. Æfistarfið sem þeir hafa unnið í trú og von og elsku til Guðs og manna og óskað að yrði sem fullkomnast, fylgir þeim og friðar þá og gjörir þeim dauðans hvíld bæði rjettmæta og kæra. Og vjer segjum þessi orð um þá með virðingu og heilagri gleði I hjartanu, enda þótt vjer söknum þerra opt mjög sárt. Þeir sem í Drottni eru dánir, þeir sem dánir eru í trúnni á Hann og 155
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180

x

Múlaþing: byggðasögurit Austurlands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Múlaþing: byggðasögurit Austurlands
https://timarit.is/publication/1153

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.