Víkurfréttir - 16.12.2021, Page 2
HREINSUM
RIMLAGARDÍNUR OG
MYRKVUNARGARDÍNUR
NÁNARI UPPLÝSINGAR Á ALLTHREINT.IS
ÓSKUM SUÐURNESJABÚUM
GLEÐILEGRA JÓLA OG
FARSÆLS NÝS ÁRS
ÞÖKKUM SAMFYLGDINA
Á ÁRINU SEM ER AÐ LÍÐA
Um helgina bætist glæný og
spennandi viðbót við Aðventu-
garðinn í Reykjanesbæ þegar
Aðventusvellið verður tekið í
notkun en það verður staðsett í
skrúðgarðinum í Keflavík. Þar
gefst fjölskyldum einstakt tæki-
færi til að upplifa saman gleði-
legar stundir með hressandi úti-
vist og hreyfingu. Til stendur að
hafa svellið opið fyrir almenning
frá laugardeginum 18. desember
og fram í mars á næsta ári ef vel
gengur. Það er Orkustöðin ehf.
sem hefur tekið að sér reksturinn
á svellinu í samstarfi við Reykja-
nesbæ.
Síðastliðið sumar fór fram hug-
myndasöfnun á íbúavefnum Betri
Reykjanesbær þar sem hugmyndin
um ævintýralegt leiksvæði í skrúð-
garðinum hlaut gott fylgi. Með til-
komu skautasvellsins má segja að
sú hugmynd sé að raungerast og nú
verði dálitlu ævintýri bætt við Að-
ventugarðinn.
Skautasvellið er 200 fermetrar
að stærð og er umhverfisvænt þar
sem það þarfnast hvorki raforku
né vatns en svellið samanstendur
af sérhönnuðum plötum sem hafa
sömu eiginleika og venjulegur ís. Þá
er einnig minni slysahætta á þessu
svelli þar sem það gefur aðeins eftir
ólíkt hefðbundnum ís.
Til stendur að skautasvellið
verði opið fimmtudaga til sunnu-
dags og þurfa gestir að bóka heim-
sókn á vefsíðunni adventusvellid.
is eða í sérstöku appi sem verður
klárt innan tíðar og nánar er hægt
að kynna sér á vefsíðunni. Hægt
verður að fá lánaða skauta eða
koma með sína eigin svo framarlega
sem þeir eru ekki með tönn. Stök
ferð á svellið í 50 mínútur kostar
800 krónur. Á vefnum verður
einnig hægt að versla áskriftir að
skautasvellinu og geta áskrifendur
þá skautað eins oft og þeir vilja
eigi þeir bókaðan tíma. Þarna er
því komin hugmynd að upplagðri
jólagjöf í jólapakkann. Mánaðará-
skrift fyrir einn kostar kr. 2500 og
fyrir fjölskylduna kr. 5000. Þess
má geta að þeir sem kaupa áskrift
skauta frítt í desember. Allar nánari
upplýsingar verður að finna á vef-
síðunni adventusvellid.is
Nú er um að gera að taka þátt í
ævintýrinu og hafa gaman saman
á Aðventusvellinu.
Bílaviðgerðir
Smurþjónusta
Varahlutir
Brekkustíg 38 - 260 Njarðvík
sími 421 7979
www.bilarogpartar.is
Við óskum viðskiptavinum okkar
gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári.
Með þökk fyrir viðskiptin á liðnu ári.
Bæjarins beztu Pylsur hafa opnað
á tveimur stöðum á Suðurnesjum,
í komusal Flugstöðvar Leifs Eiríks-
sonar og í Orkustöðinni á Fitjum í
Reykjanesbæ. Pylsuvagninn er
gamalgróið fyrirtæki úr Reykjavík
sem er búið að bjóða svöngum
höfuðborgarbúum og nærsveita-
mönnum upp á pylsur síðan 1937
„Reykjanesbær er öflugt bæjar-
félag sem á bara eftir að stækka í
framtíðinni með sterk tengsl við
flugvallasvæðið og Reykjavík, og
vonumst við til að Bæjarins beztu
eigi eftir að vera ánægjuleg viðbót
við matarflóru Suðurnesja,“ segir í
tilkynningu frá Bæjarins beztu. Eins
og sjá má annars staðar í blaðinu eru
veglegt opnunartilboð frá Bæjarins
bezstu.
Bæjarins beztu Pylsur opna í Reykjanesbæ
Aðventusvellið opnar í Aðventugarðinum
Skautasvellið er 200 fermetrar að stærð og er umhverfisvænt þar
sem það þarfnast hvorki raforku né vatns en svellið samanstendur af
sérhönnuðum plötum sem hafa sömu eiginleika og venjulegur ís. Hér
er unnið að uppsetningu á svellinu í vikunni. VF-mynd: Hilmar Bragi
FIMMTUDAG KL. 19:30
HRINGBRAUT OG VF.IS
Rétturinn
Ljúengur heimilismatur
í hádeginu
Opið:
11-13:30
alla virka daga
Þökkum viðskiptin á árinu
Hlökkum til að elda ljúengan heimilismat
í hádeginu fyrir Suðurnesjamenn árið 2022
Gleðileg jól
2 // VÍKurFrÉttir á suÐurNesJum Í 40 ár