Víkurfréttir - 16.12.2021, Síða 6
Baldvin Njálsson stilltur og stefnir í met hjá Grímsnesi
Síðasti pistill fjallaði að nokkru
um nýjan frystitogara Nesfisks,
Baldvin Njálsson GK. Eins og sást
í myndbandinu sem fylgdi síðasta
pistli, sigldu Víkurfréttir með
skipinu frá Keflavík og til Hafnar-
fjarðar, þar sem tekin voru veiðar-
færi og fleira. Skipið fór á miðin
og beint vestur á Hala og var þar í
nokkra daga kom aftur til Hafnar-
fjarðar. Þaðan fór hann aftur út og
þá á Reykjaneshrygg og síðan aftur
til Hafnarfjarðar.
Mikil tækni er í nýja skipinu og
þessar ferðir hafa verið farnar til
þess að stilla allan búnað sem er
um borð í skipinu.
Enn sem komið er hefur togarinn
ekki landað afla. Þó er búið að færa
á skipið kvóta, alls um 770 tonn
miðað við þorskígildi. Mestur hluti
þess kemur frá Benna Sæm GK,
eða 260 tonn af þorski, 325 tonn af
karfa og 50 tonn af ýsu. Frá Sóley
Sigurjóns GK koma 500 tonn af
ufsa.
Áhugavert verður að fylgjast með
hvernig Nesfiskur mun ráðstafa
kvótanum sínum, því við síðustu út-
hlutun fékk Nesfiskur alls um 11.200
tonn af kvóta miðað við þorskígldi
og nokkuð merkilegt er að drag-
nótabáturinn Sigurfari GK er alveg
kvótalaus, fær enga úthlutun, heldur
er kvótinn færður af hinum afla-
marksskipunum yfir á Sigurfara GK.
Nóg um þetta, lítum aðeins á
aflatölur. Netaveiðin hefur verið að
glæðast nokkuð núna síðustu daga
og eru Maron GK og Halldór Afi GK
komnir með netin utan við Sand-
gerði og gengið ansi vel. Maron GK
kominn með 21,4 tonn í sex og mest
4,4 tonn og Halldór Afi GK 18 tonn í
sex og mest 6,3 tonn í einni löndun.
Grímsnes GK er ennþá að eltast
við ufsann og er kominn með 45
tonn í þremur róðrum. Það má geta
þess að 2021 stefnir í að vera metár
fyrir áhöfnina á Grímsnesi GK,
því að aflinn hjá bátnum er núna
kominn yfir um 1.700 tonn og er nú
er svo komið að báturinn er einn af
þremur netabátum á landinu sem
eiga möguleika á að enda aflahæsti
netabáturinn á íslandi árið 2021.
Talandi um það, að þá hef ég síð-
ustu ár í gegnum síðuna mína afla-
frettir.is sett inn könnun þar sem
lesendur síðunnar geta velt fyrir sér
hvaða bátur er aflahæstur í hverjum
flokki fyrir sig og fleira. Ég set inn
tengillinn hérna inn og þið skrifið
hann inn í tölvu þá komist þið inn
í þessa könnun sem inni heldur 20
spurningar: www.surveymonkey.
com/r/GP7S9DW
Að framan er aðeins minnst á
Sigurfara GK en hann hefur átt
ansi góða byrjun núna í desember
og er búinn að landað 123 tonnum í
átta róðrum og mest 28 tonn. Þegar
þessi orð eru skrifuð þá er hann
aflahæsti dragnótabáturinn í des-
ember á landinu. Siggi Bjarna GK
er þriðji hæsti á landinu og kominn
með 50 tonn í sex og Benni Sæm
GK er þar á eftir með 31 tonn í sex.
Þessi pistill kemur í annnars mjög
stóru og flottu jólablaði Víkurfrétta
og vil ég því óska lesendum þessara
pistla gleðilegra jóla og takk fyrir
samskiptin á árinu. Miðað við þau
viðbrögð sem ég hef fengið útaf
þessum pistlum mínum þá er alveg
ljóst að þið eruð ansi duglega að lesa
þá. Bestu þakkir fyrir það.
aFlaFrÉttir á suÐurNesJum
Gísli Reynisson
gisli@aflafrettir.is
Útgefandi: Víkurfréttir ehf. Afgreiðsla og ritstjórn: Krossmói 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbæ, sími 421-0000. Ristjóri og ábyrgðarmaður: Páll Ketilsson, s. 893-3717, pket@vf.is. Fréttastjóri: Hilmar Bragi
Bárðarson, s. 898-2222, hilmar@vf.is Auglýsingastjóri: Andrea Vigdís Theodórsdóttir, s. 421-0001, andrea@vf.is Umbrot/blaðamaður: Jóhann Páll Kristbjörnsson. Dagleg stafræn útgáfa: vf.is og kylfingur.is
augNabliK meÐ JÓNi steiNari
Jón Steinar Sæmundsson
Rauð jól eða hvít jól? Þetta er
spurning sem margir spyrja sig að,
ja eða öllu heldur veðurfræðingana.
Mörgum finnst einfaldlega jólin
ekki fullkomnuð nema snjór sé yfir
jörðu.
Það er óneitanlega bjartara yfir
að líta þegar snjór hylur grund og á
köflum fallegra. Rauð eða hvít, þá
koma jólin hvort sem okkur líkar
það betur eða verr.
Kæru lesendur.
Ég vona að kærleikurinn verði
ykkur ofarlega í huga um jólin er
þið setjist við allsnægta borðið
með „jólakúlunni“ ykkar. Gleymum
samt ekki þeim sem þangað er ekki
boðið og munum að margir eiga
um sárt að binda. Hugsum fallega
til þeirra, ekki bara um jólin heldur
alltaf.
Gleðileg jól og farælt komandi ár.
Rauð jól eða hvít jól
Jólastemmning við Sandgerðishöfn fyrir nokkrum árum. Mynd: Reynir Sveinsson
6 // VÍKurFrÉttir á suÐurNesJum Í 40 ár