Víkurfréttir


Víkurfréttir - 16.12.2021, Síða 12

Víkurfréttir - 16.12.2021, Síða 12
Kæri lesandi. Nú þegar líður að jólum þá kvikna svo margar minningar tengdar þessum göldrótta árstíma þegar sólin dregur sig í hlé og gefur myrkrinu eftir sviðið að mestu. Á síðari tímum hafa orðið til minningar sem margar tengjast löngum setum í þinghúsinu við Austurvöll. Það er alltaf eitthvað hátíðlegt við störfin í þinghúsinu á þessum tíma og orðaskak þingmanna á einhvern hátt innilegra og blíðara þótt hart sé oft tekist á. Árið 2021 kveður nú brátt. Það hefur tekið á fyrir okkur flest en far- aldurinn hefur breytt lífi okkar um stund. Það er þó ánægjulegt að betur hefur gengið en við áætluðum að koma hjólum atvinnulífsins á stað þrátt fyrir ýmsar brekkur. Það er alltaf ánægjulegt að taka þátt í kosningum til Alþingis. Kosn- ingabaráttunni fylgja ferðalög um allt land þar sem ég hef notið þess að hitta fólk sem hefur brennandi áhuga á samfélaginu okkar og sterkar skoðanir á því hvert það stefnir og hvaða leiðir séu ákjósanlegastar. Ég er virkilega þakklátur fyrir þann stuðning sem við í Framsókn fengum um land allt. Framtíðin er spennandi þótt mörg krefjandi verkefni séu framundan. Í stjórnarsáttmálanum eru lofts- lagsmálin áberandi enda er lofts- lagsváin það verkefni sem brýnast er í heiminum í dag og næstu ára og áratugi. Fólk hefur áhyggjur og á það sérstaklega við um unga fólkið sem sér framtíð sinni ógnað. Heiminum verður ekki bjargað með því að hafa áhyggjur. Óttinn getur haft lamandi áhrif. Þess vegna er sá tónn sem sleginn er í nýjum stjórnarsáttmála tónn vonar og bjartsýni. Við ætlum að nýta þær einstöku aðstæður sem við búum við á Íslandi, þá þekkingu sem við höfum á endurnýjanlegum orkugjöfum og þann kraft sem býr í fólki og atvinnulífi til að leysa þau verkefni sem að okkur snúa og gefa öðrum verkfæri til að draga úr notkun jarðefnaeldsneytis. Við leggjum áherslu á að orkuskiptin eru sameiginlegir hagsmunir og að þeim verði náð með jöfnuði og réttlæti að leiðarljósi. Ég hef þá bjargföstu trú að næstu ár verði okkur gjöful á Íslandi. Tæki- færin eru víða. Síðustu ár hef ég lagt mikla áherslu á að byggja upp öruggari og greiðari samgöngur á atvinnusóknarsvæðinu í kringum höfuðborgina. Haldið verður áfram stöðugri uppbyggingu Reykjanes- brautarinnar til að styrkja tengingar Suðurnesja við höfuðborgarsvæðið. Framkvæmdir við Njarðvíkurhöfn eru að bresta á og spennandi hug- myndir á lofti á Helguvíkursvæðinu. Það er bjart framundan. Í stjórnarsáttmálanum er sleginn nýr tónn þegar kemur að uppbygg- ingu atvinnutækifæra hringinn í kringum landið. Það á einnig við um hið opinbera en síðustu fjögur árin hefur hugmyndin um störf án staðsetningar náð miklu flugi enda mikilvægur þáttur í því að gefa fólki aukna möguleika á því að velja sér hvar það vill búa. Í stjórnarsátt- málanum segir að „til að styðja við byggðaþróun og valfrelsi í búsetu verði störf hjá ríkinu ekki stað- bundin nema eðli starfsins krefjist þess sérstaklega.“ Þessi orð marka að mörgu leyti tímamót í viðhorfi til starfa hjá ríkinu. Ekki er talað um störf án staðsetningar sem sérstakt atriði heldur er hugsuninni snúið við: sérstaklega þarf að rökstyðja að störf séu staðbundin. Þetta er stórt mál. Einnig ætlum við að styðja við klasasamstarf hins opinbera og einkaaðila til að búa til starfsaðstöðu á lykilstöðum á landinu en fyrsta verkefnið að þessu tagi er að hefjast á Selfossi. Lesandi góður, ég vona að að- ventan verði þér góð og að þú njótir jólahátíðarinnar með þínum nán- ustu. Nokkur orð á aðventu 2021 Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknarflokksins og innviðaráðherra. – lægra verð STARFSFÓLK APÓTEKARANS ÓSKAR VIÐSKIPTAVINUM SÍNUM GLEÐILEGRAR HÁTÍÐAR Keflavík S: 421 3200 Fitjar S: 534 3010 24. des kl. 9–12 25. des LOKAÐ 26. des kl. 10–14 27. des kl. 10–19 31. des kl. 9–12 1. jan LOKAÐ 2. jan kl. 10–14 3. jan kl. 10–19 Keflavík 24. des kl. 10–12 25. des LOKAÐ 26. des LOKAÐ 27. des kl. 10–18 31. des kl. 10–12 1. jan LOKAÐ 2. jan LOKAÐ 3. jan kl. 10–18 Fitjar Afgreiðslutími um jól og áramót: Jólatré - norðmannsþinur - fura - greni - leiðiskrossar - skreyttar greinar Allur ágóði af sölunni rennur til líknarmála Jólatréssala mánudaga til föstudaga 17–20 laugardaga og sunnudaga 12–18 Opið: Kiwanis er í porti Húsasmiðjunnar á Fitjum í Njarðvík 12 // VÍKurFrÉttir á suÐurNesJum Í 40 ár
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.