Víkurfréttir


Víkurfréttir - 16.12.2021, Blaðsíða 14

Víkurfréttir - 16.12.2021, Blaðsíða 14
GLEÐILEGA HÁTIÐ og farsælt komandi ár Fyrsta áfanga Hlíðahverfis í Reykjanesbæ lýkur í júlí 2020 ÍBÚÐIR Á SÖLU HJÁ FASTEIGNASÖLUM Fyrir fjórum árum var Alexandra Chernyshova að spá í því að hafa nýárstónleika í Reykjanesbæ þegar Rúnar Þór Guðmundsson hafði samband við hana, þá tiltölulega ný- fluttur aftur frá Noregi. „Ég heiti Rúnar Þór tenórsöngvari og er að flytja í sömu götu og þú býrð í Innri Njarðvík“. Úr varð að Alexandra bauð honum í kaffi og þar kynntu þau hvort fyrir öðru hvað þau höfðu verið að gera og síðan bauð Rúnar Þór Alexöndru að ef hana vantaði tenór- söngvara í einhver verkefni þá væri hann tilbúinn. „Ég er einmitt að skipuleggja nýár- stónleika og vantar tenór,“ sagði þá Alexandra. Rúnari Þór leist vel á nýárs- tónleikana og síðan bættist við annar heimamaður, Helgi Hannesson píanóleikari. Und- irtektir á fyrstu tónleikunum voru frábærar og úr varð að þríeykið ákvað að halda tón- leika árlega eftir þetta í upp- hafi hvers árs. Á þessum fjórum tónleikum sem þegar hafa verið haldnir hafa verið áugaverðir gestir á tónleikunum, m.a. japanski fiðluleikarinn Hiroshi Itou, skólakór Stóru-Vogaskóla, stúlknakór Tónlistarskóla Grindavíkur, Steinar Krist- insson trompetleikari og Jó- hann Smári Sævarsson bassa- söngvari. Tónleikar í Fitjum í Noregi Þetta verkefni hefur undið upp á sig en árið 2019 fóru þau Rúnar Þór og Alexandra til Noregs og sungu þar á Gala-tónleikum fyrir fullu húsi gesta í gamla bænum hans Rúnars Þórs. „Ég gerði svipaða tónleika þar sem ég bjó á Fitjum í Noregi. Árlega tónleika sem voru vel sóttir og eftir að ég flutti heim til Íslands þá hef ég haldið eina tónleika þarna ytra og þá með Alexöndru. Núna bíða næstu tónleikar bara eftir því að Covid klárist svo við getum farið aftur,“ sagði Rúnar Þór. Tónleikar í sjónvarpi vegna Covid Síðustu tónleikar voru frá- brugðnir þeim fyrri að því leyti að í stað þess að halda tónleika með hefðbundnum hætti var gerð sjónvarps- dagskrá vegna Covid-19 takmarkana og úr varð skemmtileg tónleikadagskrá „Úr kirkjum Suðurnesja“ sem var sýnd í samstarfi við Víkurfréttir á Hringbraut í upphafi árs 2021. Tónleika- dagskráin tókst mjög vel og þá sérstaklega nálgunin með að nota fallegar kirkjur Suður- nesja. Nýárstónleikar í Ytri Njarðvíkurkirkju Núna er stefnt á nýárstónleika að nýju í Ytri-Njarðvíkur- kirkju. Gestir að þessu sinni verður Bjöllukór Tónlistar- skóla Reykjanesbæjar undir stjórn Karenar Sturlaugsson. Tónleikarnir verða 2. janúar kl. 17:30. Á dagskrá eru þekkt sönglög, aríur og klassískar perlur úr óperum. „Fólk á von á því að heyra lög sem það kannast við og eiga vel við í upphafi nýs árs. Vel við hæfi að byrja nýtt ár með hátíðlegum hætti og fallegri söngdagskrá. Við hvetjum Suðurnesjabúa til að koma á tónleikana. Við lofum skemmtilegum tón- leikum,“ sögðu þau Alexandra og Rúnar Þór að lokum. Söngvarar búa í sömu götu og halda nýárstónleika árlega 14 // VÍKurFrÉttir á suÐurNesJum Í 40 ár
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.