Víkurfréttir


Víkurfréttir - 16.12.2021, Page 40

Víkurfréttir - 16.12.2021, Page 40
Nafn og starf/staða: Hanna Björg Konráðsdóttir, lögfæð- ingur í raforkueftirliti Orkustofnunar. Hvernig hagar þú jólagjafainn- kaupum? Ég reyni nú yfirleitt að byrja eins snemma og ég get, safna því sem ég veit að fjölskyldumeðlimi vantar yfir árið og reyni að vera praktísk. Ég keypti eitthvað á netinu á Black Friday en ég hef ekki alveg komist upp á lagið með þennan singles day. Síðan keypti ég eitthvað erlendis í haust en svo eru alltaf nokkrar gjafir sem fá að bíða fram á Þorláksmessu og ég versla þær í Keflavík. Mér finnst dásamlegt að labba Hafnar- götu á Þorláksmessu. Þetta er sem- sagt mjög skipulögð óreiða hjá mér. Hvað með jólaskreytingar, eru þær fyrr í ár? Nei alls ekki, í fyrra var ég komin mun fyrr í ágætis jólaskap og skreytti snemma í desember. Þetta er í seinna lagi hjá mér í ár. Skreytir þú heimilið mikið? Ég skreyti það fullkomlega mátulega eins og tími gefst til. Desember er mjög annasamur tími í vinnunni og jólaseríur hafa ekki verið í forgangi til að mynda en ég skreyti frekar mátulega inni svo allir komist nú í jólaskap. Annars finnst mér einfaldar skreytingar fallegastar, greni, könglar og hnotubrjótar svo skreytingarnar mínar eru nú frekar einfaldar. Bakarðu fyrir jólin og ef hvað þá helst? Áttu þér uppáhaldssmá- köku. Í fyrra náði èg að baka mikið, held ég hafi náð að baka 8 eða 9 sortir. Í ár hef ég ekki bakað nema eina, og ég á ekki von á því að ná að baka mikið meira. Næstu helgi er Bikarkeppnin í sundi og öll helgin fer í það og tón- listarnám hjá eldri dótturinni svo að ég býst fastlega við að ég endi með restar af Ikea smákökunum. Ég er búin að baka sörurnar sem eru í for- gangi enda nauðsynlegt með kaffinu þegar gjafirnar eru opnaðar. Allt annað er aukaatriði. Ég held samt mikið upp á súkkulaði og möndlu- kökur frá mömmu sem kallast þrí- hyrningakökurnar. Hrikalega einföld og góð uppskrift. Eru fastar jólahefðir hjá þér? Hrikalega, jólin koma ekki nema ég fái grafinn villtan lax, rjúpur og komist í messu. Ég er blessunarlega svo vel gift að manninum mínum leiðist ekkert að ná í rjúpur fyrir mig. Ég held að Baggalútur hafi samið jólalagið, Rjúpur, um mig. Jólin koma ekki án rjúpnalyktar hvað sem fólki finnst um slíka þrjósku. Í ár er ég samt frekar stolt af því að laxinn í forrétt er veiddur af mér. Ég hef fengið foreldra mína og tengdafor- eldra í mat á aðfangadag og það er notalegt. Á jóladag höfum við mjög oft farið í brunch til mömmu og þá er jólagrauturinn og borinn fram ásamt öðru dásamlegu góðmeti. Aðrar hefðir eru breytilegar. Hvernig er aðventan - hefðir þar? Nei engar fastar hefðir þar en við reynum að gera eins notalegar stundir og við getum með stelpunum okkar á milli jólatónleika og sund- móta. Hver eru fyrstu jólin sem þú manst eftir? Áttu skemmtilega jólaminn- ingu? Ég get ekki sagt að ég muni eftir einni ákveðinni jólaminningu úr barnæsku en jólin voru bara alltaf dásamlegur tími með fjölskyldunni. Mamma sá um að gera allt notalegt en oft var stressið ansi mikið. Hún sett mjög háan standard fyrir mig, ég þarf stundum að segja sjálfri mér hvað er mikilvægast í undir- búningnum og forgangsraða því sem skiptir máli. Það er svo auðvelt að ætla sér um of, við þurfum alltaf að finna rétta milliveginn í amstri dagsins. Ég verð einhvern tímann orðin hrikalega góð í því. Þóranna K. Jónsdóttir, nýráðin leiðtogi markaðsmála hjá BYKO segir jólin hjá henni snúast um sam- veru með sínum nánustu og hún nýtir netið til að kaupa sem flestar jólagjafir. Þá eru margar jóla- hefðir hjá fjölskyldunni í mat og fleiru. Jólagrauturinn er til dæmis lögbundinn. Hvernig hagar þú jólagjafainn- kaupum? Ég vil helst geta verslað allt fyrir jólin sitjandi uppi í sófa í nátt- fötunum og með teppi við tölvuna. Netið er algjörlega málið. Ég reyni eins og ég get að beina öllum mínum viðskiptum til innlendra verslana enda mikilvægt að halda íslenskri verslun blómstrandi, ekki síst til að halda í dýrmæt störf og efla ís- lenskan efnahag. Hvað með jólaskreytingar, eru þær fyrr í ár? Úff nei. Það er ekki síst þar sem maður er á haus að koma sér inn í nýtt starf. Svo er ég líka í dag með tvo unglinga sem breytir hlutunum töluvert. Áður settu krakkarnir pressu á að skreyta snemma en þetta er ekki jafn mikið mál fyrir þeim núna og það smitast um allt heimilið. Skreytir þú heimilið mikið? Ég hef síðustu jólin verið að minnka verulega og velja frekar færri hluti og fallegri. Þessi jólin er ég að fara í gegnum allt saman og henda fullt af dóti. Svo ætla ég að sjá hvað eftir stendur og hvort ég fæ mér eitthvað smá meira, en mig grunar að það sé nóg til nú þegar. Fjárfesti reyndar í fjórum Georg Jensen óróum í ár en ekki þessum klassísku gylltu heldur silfurlitum og einfaldari í hönnun (hjarta, bjalla, kúla og stjarna). Bakarðu fyrir jólin og ef hvað þá helst? Áttu þér uppáhaldssmá- köku? Nei. Ég hef verið sykur, glútein og gerlaus í mörg mörg ár og mjög mjólkurlítil. Á nokkrar góðar upp- skriftir sem samræmast því en aftur, þetta árið hef ég ekki gefið mér tíma í það. Krakkarnir eru hinsvegar dug- legir, sérstaklega 13 ára guttinn minn og gerir þá helst gúmmelaði súkku- laði smákökur - og svo er nú fínt að styrkja íslenskan efnahag og leyfa bara atvinnufólkinu að gera þetta og kaupa tilbúið deig í búðinni. Eru fastar jólahefðir hjá þér? Það eru nokkrar. Við fjölskyldan, við, foreldrar mínir, bróðir minn og fjölskyldan hans, förum alltaf út að borða saman kvöldmat á Þor- láksmessu, sem er yndislegt. Á að- fangadag förum við til tengdaforelda minna í hádeginu. Þar er boðið upp á heitt hangikjöt með kartöflum og uppstúf, af því að það er jú svo penn kvöld- verður framundan e ð a þ a n n i g . Svo er alltaf h u m a r m e ð djúsí rjómasósu í forrétt á að- fangadag. Þetta eru svona þessar helstu. Og spilakvöld - sem flest spilakvöld með fólkinu mínu. Elska þau! Hvernig er aðventan - hefðir þar? Frú Grinch hérna ha ha ha ... það eru helst jólaviðburðir í vinnunni en svo reyni ég meira að hafa kósý, kerti og afslappelsi. Nenni ekki að detta í jólastressið og hef staðið mig vel í því í ansi mörg ár núna. Eitt af fáu sem ég sakna er að fá mér jóla- glögg sem er í miklu uppáhaldi, en er að reyna að finna útúr því að geta gert góða slíka án áfengis og sykurs. Get ekki sagt að Covid hafi sett neitt strik í reikninginn. Hveru eru fyrstu jólin sem þú manst eftir? Áttu skemmtilega jóla- minningu? Veit sosum ekki hvort ég man eftir þeim per se, en hef séð myndir sem kveikja minningarbrot. Þau eru hjá ömmu og afa vestur á Ísafirði, í sparistofunni í bláum kjól með hvítu munstri sem mamma saumaði, stýri í afar stuttu ljósu hári (kom seint) og að hella upp á kaffi fyrir allt fólkið mitt í nýja kaffistellinu sem ég fékk í jólagjöf. Allar minningar frá ömmu og afa á Ísafirði eru sérstakar og í miklu uppáhaldi. Hefurðu sótt messu um jólahátíðirnar í gegnum tíðina? Ég er ekki trúuð og fyrir mér snúast jólin ekki um það heldur notalegan tíma með fjölskyldu og vinum. Hef þess- vegna ekki sótt messu um hátíðarnar, en efast ekki um að það er mjög falleg stund. Eftirminnilegasta jólagjöfin? Eggjasuðutæki frá kærastanum mínum og svo eiginmanni til 20 ára, fyrstu jólin okkar saman. Getur ímyndað þér hvað ég var glöð ha ha ha ... hélt að það væri bara gjöfin! Vissi ekki alveg hvað ég átti að segja þegar hann hringdi um kvöldið. Þá hafði hann unnið það í happdrætti á einhverju jólakvöldi og fannst hrika- lega fyndið að gefa mér það. Hann kom svo seinna um kvöldið til mín með falleg nærföt í pakka. Þessi saga er mjög oft rifjuð upp í minni fjöl- skyldu og mikið hlegið. Er eitthvað sérstakt sem þig langar að fá í jólagjöf? Hmmmm…. samverustundir með fjölskyldunni. Einhverja upplifun saman. Þarf ekki að vera merkilegt - saman er aðalmálið. Hvað verður í jólamatinn hjá þér á aðfangadagskvöld? Eru hefðir í mat? Humarinn í forrétt, eins og ég nefndi fyrr. Annars höfum við ekki fylgt hefðum mikið í þó nokkur ár. Ef við erum hjá mömmu og pabba eru þau almennt með kalkún, en þegar við sjáum um þetta sjálf þá förum við nú helst í Kjötkompaní og fáum þar eitthvað gúmmelaði og allt með. Þetta snýst ekki um að standa sveitt í eldhúsinu allan daginn heldur bara að njóta þess að borða góðan mat saman. Aftur látum við bara atvinnufólkið um málið. En svo er jólagrauturinn lögbundinn. Grjóna- grautur, kældur og svo hrært út í hann þeyttum rjóma. Hitt fólkið er svo með súkkulaðisósu sem er Mars brætt í rjóma. Ég föndra mitt eigið sykurlausa súkkulaði - en annars finnst mér grauturinn bara hrikalega góður eintómur. Eggjasuðutæki frá kærastanum Hanna Björg Konráðsdóttir reynir að vera praktísk í jólagjafainn- kaupum en endar alltaf á því að kaupa þær síðustu á Hafnargötunni í Keflavík á Þorláksmessu. Hún er með fastar hefðir í jólamánuðinum, misdugleg að baka en er mikil rjúpukona. Samdi Baggalútur rjúpu- lagið um lögfræðinginn hjá Orkustofnun? Jólin koma ekki án rjúpulyktar Hanna og Jói hamfletta rjúpu fyrir jólin. Mæðgurnar eru tilbúnar í jólin 2021. 40 // VÍKurFrÉttir á suÐurNesJum Í 40 ár

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.