Víkurfréttir


Víkurfréttir - 16.12.2021, Side 46

Víkurfréttir - 16.12.2021, Side 46
Verkalýðs- og sjómannafélag Keflavíkur og nágrennis sendir félagsmönnum sínum og landsmönnum öllum bestu óskir um gleðileg jól og farsælt komandi ár. Sigrún Ýr Hjörleifsdóttir heldur í margar jólahefðir en eftirminnilegasta jólagjöfin sem hún hefur fengið er lítil kisa. Hún þurfti að vera í sóttkví um síðustu jól og vonast til að sleppa við það núna. Hún fer með foreldrunum á rölt á Þorláksmessukvöld en hefur tekið inn jólaandann að hluta til á Courtyard by Marriott Reykjanesbæ hótelinu í Reykjanesbæ en þar eru hún sölu og markaðsstjóri. Nafn og starf/staða: Sigrún Ýr Hjörleifsdóttir – Sölu & Markaðsstjóri á Hvernig hagar þú jólagjafainn- kaupum? Ég reyni að byrja snemma, kaupi mikið á netinu og svo nýti mér mið- næturopnanir og fer seint á kvöldin þegar það er ekki eins mikið að gera. Hvað með jólaskreytingar, eru þær fyrr í ár? Síðustu jólum eyddum við í sóttkví þannig það var ekki mikið um jóla- stúss hjá okkur. Ætlum að reyna að bæta okkur það upp núna og settum jólaljósin upp fyrstu aðventuhelgina. Skreytir þú heimilið mikið? Ég hef ekki verið mikið jólabarn þótt jólin hjá fjölskyldunni hafi verið mjög hátíðleg, en ég hef oftast látið jóla- ljósin duga en nú eigum við eina sem er að verða þriggja ára sem sýnir öllu jólatengdu mjög mikinn áhuga þannig skreytingarnar fara fljótlega upp og bætt verður í skreytingarnar. Bakarðu fyrir jólin og ef hvað þá helst? Áttu þér uppáhaldssmá- köku? Já ég elska að baka, ég er mest í lakk- rístoppunum, öðruvísi útfærslu af sörum og svo finnst mér gaman að prófa nýjar uppskriftir. Uppáhalds jólanammið mitt er nammi sem ég bý til úr dökku og hvítu súkkulaði með jólabrjóstsykri eða svokallað súkkulaði „bark“. Eru fastar jólahefðir hjá þér? Ferð í kirkjugarðinn með foreldr- unum að leiði ástvina snemma á aðfangadegi, hangikjöt hjá ömmu á jóladag og kalkúnn hjá afa. Síðan keyrðum við út jólakortin og fannst mér það mjög skemmtilegt, en nánast allir eru hættir að senda kort þessa dagana, ég ætla þó að senda kort í ár eins og síðustu tvö ár, sér- staklega þar sem maður hefur hitt ættingja og vini minna sökum Covid. Þorláksmessan er oftast tekin í bæj- arrölti með foreldrum mínum sem endar á góðum veitingarstað. Hvernig er aðventan - hefðir þar? Ég reyni að fara á allavega eina tón- leika og svo finnst mér notalegt að nýta streymismöguleikann og horfa á góðan viðburð í stofunni heima. Ný aðventuhefð verður klárlega að búa til jólakerti fyrir heimilið, og í gjafir fyrir vini og vandamenn. Ég hef unnið í samstarfi við móðursystir mína við gerð kertaföndurkassa sem er í sölu á www.bykrummi.is og geta nú allir búið til kerti heima á ein- faldan og auðveldan hátt Neitaði að borða jólamat- inn og fékk upphitaða pizzu 46 // VÍKurFrÉttir á suÐurNesJum Í 40 ár

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.