Víkurfréttir - 16.12.2021, Síða 50
Ein U beygjan eftir annarri
„Ég var lengi vel glímumaður hjá Mjölni, bæði sem þjálfari og
keppandi, líklega í ein tíu ár en gerði mér grein fyrir því að
þetta væri mögulega ekki starf til lengdar þar sem það reynir
mikið á líkamann og skrokkurinn ræður ekki við það enda-
laust. Ég skráði mig því í sálfræðinám við Háskóla Íslands
þar sem stefnan var sett á íþróttasálfræði en útskrifaðist svo
sem klínískur sálfræðingur. Ég hóf fljótlega störf sem slíkur
og fannst mikil viðbrigði að vera allt í einu kominn í skrif-
stofustarf – mér fannst það ekki eiga alveg við mig. Á þessum
tíma hafði pabbi gefið mér gamla filmuvél sem ég var aðeins
byrjaður að fikta með en fyrir tilstilli samstarfsmanns á Land-
spítalanum keypti ég mér svo loksins stafræna myndavél.
Þetta hefur líklega verið árið 2017 og þetta kveikti algjörlega
í mér. Áður en ég vissi var ég farinn að nýta hvert einasta
tækifæri til að taka myndir, fikra mig áfram við myndvinnslu
eða afla mér þekkingar á netinu,“ segir Þráinn.
Á þessum tíma var þetta eingöngu áhugamál hjá Þráni og
það hvarflaði ekki að honum að þetta gæti orðið að atvinnu
fyrir hann.
Ljósmyndunin verður að atvinnu
Eftir eitt og hálft ár sem áhugaljósmyndari fóru að detta
inn verkefni sem Þráinn fékk greitt fyrir. Þarna voru ekki
miklir peningar í spilinu en hann var ennþá að vinna sem sál-
fræðingur. „Fljótlega fór ég að sjá möguleikana á því að gera
meira úr ljósmynduninni. Til að byrja með hélt ég því meira
og minna fyrir sjálfan mig en ég vissi hvert mig langaði. Ljós-
myndun hentaði mér frábærlega. Þetta var eiginlega fullkomin
blanda af hreyfingu og útibrasi og svo tölvuvinnu í hlýjunni.“
Í dag er nóg að gera hjá Þráni en hann hefur unnið þó
nokkur verkefni fyrir markaðsstofur landshlutanna, m.a. Vest-
fjarða, Reykjaness, Austurlands og Íslandsstofu, ásamt ýmis
fyrirtæki. Einnig selur hann prentaðar myndir ásamt nokkrum
stafrænum vörum í tengslum við myndvinnslu en þær er hægt
að nálgast á heimasíðu hans www. thrainnkolbeinsson.com.
Verkefni fyrir Markaðsstofu Reykjaness
Stuttu eftir að Þráinn gerðist sjálfstætt starfandi ljósmyndari
fékk hann umfangsmikið verkefni í hendurnar á vegum Mark-
aðsstofu Reykjaness. „Það var ekki fyrr en árið 2018, þegar við
við fluttum til Grindavíkur, sem ég áttaði mig á hversu mikil
perla Reykjanesið er, bæði hvað varðar einstakt landslag og
sem útivistarsvæði. Á þessum tíma vorum nýbúin að eignast
strákinn okkar svo ljósmyndaferðir urðu að vera í styttri kant-
inum. Reykjanesið varð þannig sjálfkrafa aðalviðfangsefnið.
Eftir að hafa deilt töluverðu efni af svæðinu komst ég í sam-
band við Markaðsstofu Reykjaness og úr varð skemmtilegt
samstarf.
Fyrsta verkefnið gekk út á að búa til heildstætt safn af
markaðsefni af Reykjanesinu og taka myndir fyrir ljós-
myndabók sem kom svo út árið 2020. Ég er mjög þakklátur
þeim fyrir að treysta mér fyrir þessu viðamikla verkefni og
ánægður með verkefnin sem hafa unnist síðan. Rétt í þessu
erum við að leggja lokahönd á ótrúlega spennandi verkefni þar
sem verið er að fara í markaðssetningu, innviðabætingar og
almenna kynningu á hinum ýmsu gönguleiðum og fjallgöngum
sem Reykjanesið hefur upp á að bjóða. Áður en við vitum af
verða Esjan, Úlfarsfell og fleiri fjöll á höfuðborgarsvæðinu
komin með almennilega samkeppni.“
Hálendi Reykjaness í uppáhaldi
„Það er alltaf erfitt að velja einhvern einn stað svo ég ætla að
velja tvo. Sveifluhálsinn með öllum sínum toppum við Kleifar-
vatn og umhverfið þar í kring er algjör gönguparadís en það
er eiginlega ekki hægt að sleppa því að nefna Sogin og svæðið
þar í kring, vötnin þrjú ásamt Grænudyngju og Trölladyngju.
Að mínu mati er hálendi Reykjaness vanmetnasta svæðið
fyrir utan höfuðborgina, þar sem náttúran hefur skilað af sér
landslagi með fallegum vötnum, einstökum hraunborgum,
háhitasvæðum og mögnuðum fjallgörðum. Held ég hafi klárað
öll lýsingarorðin mín,“ segir Þráinn að lokum.
Jón Hilmarsson
ungo@simnet.is
50 // VÍKurFrÉttir á suÐurNesJum Í 40 ár