Víkurfréttir - 16.12.2021, Page 59
Gleðileg jól og farsælt komandi ár.
Þökkum ánægjuleg samskipti á árinu sem er að líða
Sendum íbúum Grindavíkur
okkar bestu óskir um gleðileg jól
og farsælt komandi ár
SI fjölskyldan afhenti á dögunum Krafti - félagi ungs
fólks sem greinst hefur með krabbamein og aðstand-
endum 500.000 kr. Styrkurinn er veittur ár hvert í
minningu um Sigga sem var sonur hjónanna Sigurðar
Ingvarssonar og Kristínar Erlu Guðmundsdóttur.
Sigurður Ingvarsson hefur í áratugi séð um jólaljósin í Útskála-
kirkjugarði og gjald það sem greitt er fyrir ljósin fara í góð
málefni. Sóley Björg Ingibergsdóttir kom fyrir hönd Krafts og
tók við styrknum, en Sóley greindist ung með krabbamein.
„Við höfum öll hrifist af jákvæðni hennar og dugnaði í þessu
erfiða verkefni,“ sagði Jóna Sigurðardóttir þegar styrkurinn
var afhentur.
Styrkurinn frá SI fjölskyldunni afhentur. F.v.: Jóna Sigurðardóttir, Sigurður Ingvarsson, Sóley Björg
Ingibergsdóttir, Kristín Erla Guðmundsdóttir og Guðlaug Sigurðardóttir. VF-mynd: Hilmar Bragi.
tengigjald ljósa-
krossa í garði til
góðs málefnis
REYKJANESBÆR
ÓSKAR BÆJARBÚUM
GLEÐILEGRA JÓLA OG
FARSÆLDAR Á NÝJU ÁRI
Eigendur 240 ehf. / Harbourview
hafa óskað eftir þróunarsamningi
um uppbygginu smáhýsabyggðar
við smábátahöfnina Grófinni
Reykjanesbæ. Erindið hefur
verið tekið fyrir í umhverfis- og
skipulagsráði Reykjanesbæjar.
Hugmyndin er að reisa 12 til 24
smáhýsi og leigja til ferðamanna.
Lagður var fram samningur í
ráðinu þar sem settir eru fram
skilmálar um nýtingu, skipulag og
framkvæmd. Umhverfis- og skipu-
lagsráð samþykkir að gerður sé
þróunarsamningur í samræmi við
samningsdrög. Einnig þarf þróun
svæðisins að vera í samráði við
þróun Grófar 2 sem er í útboðsferli.
Uppbygging smáhýsa
við Gróf til skoðunar
Smáhýsi sem leigð eru til ferðamanna við höfnina í Grindavík.
VÍKurFrÉttir á suÐurNesJum Í 40 ár // 59