Víkurfréttir


Víkurfréttir - 16.12.2021, Page 67

Víkurfréttir - 16.12.2021, Page 67
sem hann er að vinna innan. „Áhugi minn liggur í þessu menningarsögu- lega, sögunni og tengslum fólks við umhverfið og samfélagið.“ „Ég hef gaman af ummerkjum um fólk í landinu og af landinu. Við fórum oft saman í ljósmyndaferðir, ég, Páll og Raxi, og í þessum ferðum tókum við gjörólíkar myndir. Páll, þessi stórkostlegi formræni lands- lagsljósmyndari, tók myndir af fjöll- unum fyrir framan okkur. Raxi var síðan tíu metra frá honum með hest í forgrunn sem var skellihlægjandi og ég tók síðan myndir af þeim tveimur á meðan þeir voru að mynda. Þannig gátum við allir náð áhugaverðum myndum en samt gjörólíkum.“ Samhliða öllum þessum verk- efnum hefur Einar Falur kennt í Ljósmyndaskólanum frá því hann kom frá New York og er einnig reglu- lega með ljósmyndanema frá Tækni- skólanum í starfsnámi. Margs að minnast eftir langan ferli Ýmislegt eftirminnilegt hefur gerst hjá Einari Fal á þessum langa starfs- ferli sem ljósmyndari og í ferðum hans hérlendis sem erlendis. „Einu sinni var ég að mynda í verkefninu með Johannes Larsen og var staddur við Goðafoss þar sem ég var með stóru spýtuvélina og með rauðan flauelsdúk yfir höfðinu að finna rétta rammann og stilla fókusinn. Ég var að einbeita mér að þessu þegar dóttir mín bankar á bakið á mér og segir mér að líta aftur fyrir mig. Þar standa tíu Asíu- búar sem bíða eftir því að ég klári svo þeir komist á staðinn sem ég var á því auðvitað hlaut ég að hafa fundið gott sjónarhorn með þessa stóru myndavél. Ég hlaut að hafa fundið besta staðinn til að mynda.“ Einn stórkostlegasti dagur sem Einar Falur hefur upplifað var á stærstu trúarhátíð heims á Ind- landi. Það var mikið mál að komast á staðinn sem krafðist töluverðs undirbúnings. „Mig hafði dreymt um það í átta ár að komast á þessa stærstu trúar- hátíð Indverja, 24. janúar árið 2001, Kumbh Mela hátíðina. Tveimur árum áður hafði ég pantað pláss í tjaldbúðum fréttamanna. Ég lagði af stað í ferðina innan Indlands viku fyrir hátíðina og var ferðin á áfanga- staðinn mjög erfið. Aldrei í sögunni hefur jafn margt fólk verið saman komið á einum stað á einum tíma og degi. Ég var mjög þakklátur fyrir að fá að upplifa atburð sem þennan, forréttindi sem ljósmyndari að fá að vera á þessum stað með öllu þessu fólki,“ segir Einar Falur. „Myndavélin hefur leitt mig í mikil ævintýri og fyrir það er ég þakklátur.“ Ég vinn eins og kvikmynda­ gerðarmaður og fylgi eftir tökuhandriti. Ég leggst í nördarannsókn fyrir stóru verkefnin. Finn réttu nálgunina fyrir hvert skot, finn rétta tóninn – finn minn tón ... Gamall og fátækur námumaður Felix að nafni puðar djúpt í námum Cerro Rico-fjallsins í Bólivíu, 1985. Í því voru auðugustu silfurnámur sögunnar en á valdatíð Spánverja létust milljónir þræla í námunum. Sagan er rakin í einum kafla bókarinnar Án vegabréfs. Bus4u Iceland ehf. I info@bus4u.is I www.bus4u.is @bus4uiceland #bus4u_iceland VÍKurFrÉttir á suÐurNesJum Í 40 ár // 67

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.