Víkurfréttir


Víkurfréttir - 16.12.2021, Síða 82

Víkurfréttir - 16.12.2021, Síða 82
Hlynur Þór Valsson er kennari og tónlistarmaður í Covid-dvala. Hann væri sáttur að fá góðan skeggsnyrti eða rakspíra. „Annars hef ég aldrei viljað fá stórar gjafir heldur frekar að vera bara með fólkinu mínu og eiga góða stund saman,“ segir hann í skemmti- legu jólaspjalli við Víkurfréttir. Hvernig hagar þú jólagjafainn- kaupum? Betri helmingurinn á heimilinu er yfirleitt löngu búin að kaupa allar gjafir löngu áður en ég ranka við mér korter í jól. Áður voru þetta þungar og langar verslunarferðir í borg óttans en mikið pantað af netinu núna. Aðeins minna stress. Hvað með jólaskreytingar, eru þær fyrr í ár? Skreytingarnar eru svo sem ekkert mikið fyrr, við miðum yfirleitt við að byrja að skreyta í vikunni fyrir fyrsta í aðventu. Skreytir þú heimilið mikið? Alls ekki mikið, við á heimilinu erum bara nokkuð róleg í skreytingum innandyra og reglan minna er meira yfirleitt við lýði. Við vorum reyndar að flytja í einbýli og ég finn að það er stutt í Griswald gírinn núna þegar kemur að skreytingum utanhúss. Ég veit að einn góður nágranni minn vill endilega að ég bæti meira við. Bakarðu fyrir jólin? Áttu þér uppá- haldssmáköku? Ég baka ekki fyrir jólin en ég er svo heppinn að elskuleg móðir mín laumar yfirleitt til mín kökudalli með engiferkökum og appelsínuspesíum sem hverfa fljótt með ískaldri mjólk. Eru fastar jólahefðir hjá þér? Það eru svo sem ekki margar fastar venjur en margt hefur samt einhvern veginn alltaf verið gert á svipaðan hátt t.d. jólagjöfunum er alltaf pakkað inn á Þorláksmessu og keyrt út á aðfangadagsmorgni. Svo höfum við skipst á að verja jólunum hjá foreldrum mínum annarsvegar og tengdaforeldrum mínum hinsvegar annaðhvert ár. Ég stakk uppá að við vísitölufjölskyldan værum heima hjá okkur þessi jól en heimasætan hún Bergrún Embla tók það ekki í mál. Hvernig er aðventan - hefðir þar? Við höfum reynt að hafa sem minnst stress í desember og notið þess að vera heima hjá okkur. Það er þó einn viðburður sem er orðinn hefð en það er jólasíldin sem við og tvenn vinahjón okkar hafa haldið síðustu ár með pomp og prakt en Covid skemmdi það fyrir okkur síðustu jól og þá fann maður hvað það er mikil- vægur viðburður til að koma manni í jólaskapið. Vonandi náum við að hittast í ár. Hveru eru fyrstu jólin sem þú manst eftir? Áttu skemmtilega jóla- minningu? Ég er með ferlega lélegt minni. Eitt- hvað rámar mig þó að það hafi verið skrautlegt á jólunum þegar ég var barn á Hringbrautinni í Keflavík og rafmagnið var alltaf að detta út sem truflaði heldur betur eldhússtörfin. Málunum var reddað með prímus og öðrum hundakúnstum. Hefurðu sótt messu um jólahátíð- irnar í gegnum tíðina? Ég hef ekki sótt í það að sitja messur nema að ég sé að spila eða syngja við einhverja athöfn. Eftirminnilegasta jólagjöfin? Það er eflaust gjöf sem að Ari Lár bróðir minn gaf mér eitt árið. Pakkinn undir trénu var veglegur og þungur. Þegar ég opnaði hann blasti við mér heljarinnar úrval af vel völdum bókum. Með þeim var miði. Á miðanum var ég beðinn að skila bókunum ekki seinna en í lok janúar þar sem að Ari væri svo blankur núna að hann hefði ekki efni á að borga bókasafns sektina. Er eitthvað sérstakt sem þig langar að fá í jólagjöf? Ég væri sáttur að fá góðan skegg- snyrti eða rakspíra. Annars hef ég aldrei viljað fá stórar gjafir heldur frekar að vera bara með fólkinu mínu og eiga góða stund saman. Hvað verður í jólamatinn hjá þér á aðfangadagskvöld? Eru hefðir í mat? Það er ekkert verið að flækja það og yfirleitt er það hamborgarhryggur en í raun er það bara eitt sem mestu máli skiptir en það er sósan hennar mömmu. Án hennar eru engin jól. Mamma laumar yfir- leitt til mín kökudalli með engiferkökum og appelsínuspesíum Kaupfélag Suðurnesja sendir félagsmönnum sínum bestu óskir um gleðileg jól, farsælt nýtt ár og þakkar samfylgdina í 76 ár 82 // VÍKurFrÉttir á suÐurNesJum Í 40 ár
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.