Rit (Vísindafélag Íslendinga) - 01.06.1923, Blaðsíða 74
70
um; ber sjórinn gröftinn og beinin inn með landi inn í vík-
ina hjá Belgsholti. Samkvæmt þessu hefir landbrotinu mið-
að rúmlega um IV2 m. á ári að meðaltali.
Víða ber á landbroti við ströndina inn frá Akranesi að
sunnan; þar eru víða leirbakkar með sjónum, er öldurnar
vinna vel á. En til nokkurrar hlífðar eru klettatangar, sem
skaga þar út í fjöruna á ýmsum stöðum. Guðmundur bóndi
Brynjólfsson á Kúludalsá sagði mjer eftir föður sínum,
Brynjólfi Brynjólfssyni, er bjó í Gerðum á Akranesi, að fyrr-
um hefði klettasker, sem er fram undan Sólmundarhöfða hjá
Akranesi, verið landfast og þangað náð graslendi. Hafði
Brynjólfur það eftir gömlum mönnum, er kunnugir voru á
þessu svæði, að sjórinn bryti þar á ýmsum stöðum að með-
altali 1 m. á ári af landinu.
F*ar sem sjórinn brýtur af landinu, eins og hjer og víða
annarsstaðar við útnesin í Faxaflóa, er mönnum gjarnt að
telja það sönnun þess, að sjávarborð sje að hækka. Svo þarf
þó alls eigi að vera. Pó að engin sjávarhækkun eigi sjer stað,
rífur sjórinn iðulega niður bakka með lausum jarðlögum,
með ströndum fram, einkum út til nesja, þar sem brima-
samt er. Eigi að síður er mjer nær að halda, að skoðun al-
mennings um breytingu sjávarstöðunnar, bæði fyrir norðan
og hjer syðra, sem jeg áður gat um, hafi við einhver rök
að styðjast.
Enda þó að örðugt sje að finna nákvæmt mál til að miða
þessar sjávarstöðubreytingar við, má þó telja víst, að breyt-
ingar þessar hafi ekki verið eins hraðfara og ýmsir halda
fram, þar sem þeir þykjast sjá verulegan mun á 40 — 50 ár-
um. Má nokkuð ráða það af fornsögum vorum.
í Egilssögu (Rvík 1892, bls. 175) er þess getið, að Egill
Ijet flytja Skallagrím látinn ofan í Naustanes hjá Borg, en
morguninn eftir „at ýlóði“ var hann lagður í skip og róið
með hann út til Digraness (=Borgarness). Enn í dag verð-
ur Borgarvogur þur um fjöru og verður að sæta flóði til
þess að komast á báti inn að Naustanesi. Og hefði vogur-
inn í þá daga náð mun skemra inn, hefði Naustanes tæp-
ast getað nes heitið.
Alt að einu hefði nokkur sjávarhækkun getað átt sjer stað