Víkurfréttir - 15.12.2022, Síða 14
Óskum Suðurnesjamönnum
gleðilegra jóla
og farsældar á nýju ári.
Þökkum samstarfið á árinu.
Íbúar og starfsmenn
Hrafnistu Reykjanesbæ
Bestu jóla- og nýárskveðjur
sendum við til ættingja og vina með
þakklæti fyrir liðnar stundir
Það sem stendur helst upp úr árið 2022 hjá Nóa Gunnarssyni
er þegar hann gekk frá Keflavík til Hafnarfjarðar með Bennsa
vini sínum en gangan tók um tólf tíma. Nói telur sig vera jóla-
barn og finnst skemmtilegast að horfa á jólamyndir, borða
piparkökur og drekka jólaöl um hátíðarnar.
Hvað stendur upp úr hjá þér
árið 2022?
Að ég labbaði frá Keflavík til
Hafnarfjarðar með Bennsa vini
mínum, við tókum tæpa tólf tíma
í þetta. Að ógleymdri Evrópuferð
með móður minni þar sem við
keyrðum um allt í heilan mánuð,
það var magnað.
Ert þú mikið jólabarn?
Já, ég tel mig að vera jólabarn þar
sem ég hlakka alltaf til er styttist
til jóla.
Hvað er það skemmtilegasta við
jólin að þínu mati?
Jólastund með fjölskyldunni, jóla-
boðin öll eru yndisleg og fegurðin
frá jólaskreytingunum og ljósa-
dýrðin er svo gefandi.
Átt þú einhverjar skemmtilegar
jólaminningar?
Minnistæðasta er að baka með
ömmu Fríðu sem mér þykir af-
skaplega vænt um.
En skemmtilegar jólahefðir?
Að horfa á jólamyndir með Má
bróður mínum, borða fullt af
piparkökum og drekka jólaöl er
ómissandi.
Hver er eftirminnilegasta jóla-
gjöfin sem þú hefur fengið?
Eftirminnilegasta jólagjöfin sem
ég man eftir er dróninn sem mér
tókst aldrei að koma á flug sama
hvað ég reyndi. Massey Ferguson
traktor er ein besta jólagjöfin sem
ég hef fengið, ég var fimm ára
gamall og bjó út í Luxemburg.
Traktor sem ég gat keyrt á út um
allt!
Hvað er á óskalistanum þínum
fyrir jólin í ár?
Cool föt og góðir skór eru efst á
óskalistanum mínum.
Hvað er í matinn hjá þinni fjöl-
skyldu á aðfangadag?
Við fjölskyldan höfum undanfarin
ár verið með Wellington steik frá
Soho sem er algjört lostæti, mæli
með henni.
Hvað ætlar þú að gera í kringum
jólahátíðina í ár?
Eitthvað er um útskriftir sem
ég mun mæta í og hefðbundin
jólaboð, svo ætla ég að nýta jóla-
fríið á milli þess í að borða pipar-
kökur og horfa á jólamyndir. Ég
ætla ég að mæta í Sporthúsið og
hlaða byssurnar og tek nýju ári
fagnandi með bros á vör, gleðileg
jól!
Labbaði frá
Keflavík til
Hafnarfjarðar
N
ói
G
un
na
rs
so
n
Næsta tölublað Víkurfrétta
kemur 28. desember.
Gleðilega Hátíð
VIÐ ÓSKUM VIÐSKIPTAVINUM, BÆJARBÚUM & SAMSTARFSAÐILUM
GLEÐILEGRA JÓLA & FARSÆLS KOMANDI ÁRS
VANTAR ÞIG FUNDARAÐSTÖÐU FYRIR NÆSTA FUND, VINNUSTOFU EÐA VIÐBURÐ Í
JANÚAR & FEBRÚAR? ALLT AÐ 50% AFSLÁTTUR AF LEIGU Á FUNDARHERBERGJUM
HAFÐU SAMBAND VIÐ SALES@COURTYARDKEFLAVIKAIRPORT.IS
@courtyardkef
@thebridge.courtyardkef
W
W
W
.M
A
RRIO
TT.C
O
M
/KEFC
Y
W
W
W
.TH
EBRID
G
E.IS
20% afsláttur
af gjafabréfum
15.-23. desember í
jólabásnum okkar í
andyri hótelsins
14 // VÍKurFrÉttir á suÐurNesJum