Víkurfréttir - 15.12.2022, Page 39
„Jólasýningin er í raun svona þakkir
til minna viðskiptavina. Það er
gaman að hitta fólkið í léttri jóla-
stund með smá rauðvíni og ostum
og jólasöng,“ segir Sossa myndlistar-
kona en margir mættu á vinnustofu
hennar í Keflavík fyrstu helgina í
desember.
Það er áratugahefð fyrir myndlist-
arsýningu hjá Sossu á aðventunni.
Hún segir það alltaf skemmtilegt en
hvað segir hún um myndirnar núna?
„Ég er svolítið að fara til baka, eig-
inlega allt frá því ég byrjaði að mála.
Ég er að reyna að vera aftur villingur.
Þá leyfi ég mér meira,“ segir Sossa og
hlær. Bætir síðan við að það sé gott
að hafa sýningu, þá sjái hún hvar hún
standi en þurfi þó alltaf að spyrja sig,
- hvert hún sé að fara í listinni.
„Þegar maður er orðinn gamall þá
getur maður leyft sér meira. Nálgast
eitthvað markmið sem ég er búin að
vera að stefna að. Maður getur leyft
sér að vera frjálsari. Ég var komin í
svolítinn þægindaramma og nauð-
synlegt að færa sig út úr honum. Í
nýjustu myndunum mínum er ég
að nota liti sem ég hef ekki notað
mjög lengi. Ég hef t.d. lengi verið
hrædd að nota grænan lit. Svo hef
ég verið að nota önnur verkfæri. Ég
hef alltaf notað eingöngu spaða í
mínum myndum, en nú hef ég verið
að nota fleiri tæki eins og pennsla,
tuskur, fingurna og jafnvel ermina á
skyrtunni minni.“
En hvernig var tíminn í heimsfar-
aldri hjá listakonunni?
„Mér gekk bara vel í Kóvid. Þetta
var ekki svo mikil breyting hjá mér
því ég vinn nær alltaf bara ein. Mér
gekk eiginlega betur að selja í far-
aldrinum. Fólk var meira að huga
að húsakynnum sínum, búa til fleiri
Sossa bætti við litum og tólum sem hún var hrædd við að nota í
myndunum sínum. Skyrtuermin, fingur og tuskur notuð á strigann.
veggi og svoleiðis og þá kem ég til
sögunnar. Faraldurinn var held ég
ekki svo slæmur fyrir margt lista-
fólk þó svo kannski tónlistarfólkið
hafi verið í verri málum,“ sagði Sossa
Björnsdóttir.
Út úr þægindarammanum
Tónlistarskonan Magga Stína er góð vinkona
Sossu og hefur mætt í síðustu jólaboð og
sungið af innlifun, eins og hún gerir svo vel.
Vinkonurnar Magga Stína og Sossa.
Margir vina Sossu mættu
á vinnustofu hennar í
upphafi aðventu.
Hvaða hús er jólahús
Reykjanesbæjar 2022?
Tekið er við tilnefningum í gegnum heimasíðu
Reykjanesbæjar (www.reykjanesbaer.is) til 20. desember 2022.
Menningar- og atvinnuráð fer yfir tilnefningar og velur jólahús
Reykjanesbæjar. Verðlaun verða veitt í Aðventugarðinum á
Þorláksmessu í samstarfi við Húsasmiðjuna.
VÍKurFrÉttir á suÐurNesJum // 39