Víkurfréttir - 15.12.2022, Blaðsíða 50
og hár og við fluttum hingað ‘89 ...
og þá kynntumst við Gummi,“ segir
Anna. „Ég var látinn kynnast henni,“
skýtur Gummi inn í og Anna segist
ekki hafa vitað af því.
Var látinn kynnast henni
Gummi er uppalinn Keflvíkingur og
hann segir að það hafi verið mikið
sport á þessum tíma að vera vatns-
beri hjá karlaliðinu í körfunni. „Það
var hart barist um það að fá að vera
vatnsberi hjá körfuboltaliðinu hérna
í Keflavík, þ.e. karlaliðinu, en ég sjá
mér leik á borði og gerðist vatnsberi
hjá konunum. Þá voru þær að byrja
að vinna.
Pabbi þekkti svo margar af
þessum stelpur, bæði úr fótboltanum
og svo hafði verið að kenna þeim
líka, og hann hengdi mig svolítið á
Önnu Maríu [Sveinsdóttur, móður-
systur Önnu Pálu]. Þegar að Anna
Pála flytur þá voru náttúrlega leikj-
anámskeið á sumrin og Anna María
var leiðbeinandi þar ...“
„... og til að ég myndi kynnast ein-
hverjum krökkum var ég send með
Önnu Maríu frænku á leikjanám-
skeið. Svo kem ég á leikjanámskeið,
tíu ára, og í fyrsta nestistímanum
kemur sætasti strákurinn á nám-
skeiðinu og segir: „Hæ, hvað heitir
þú?,“ og við urðum bestu vinir upp
frá þeim degi. Ég hélt alltaf að hann
hefði fallið fyrir þessari sveitastelpu
sem var nýkomin í bæinn – en svo
frétti ég það upp við altarið árið
2008, þegar ég var að giftast honum,
þegar Sigfús prestur segir: „... og það
var Anna María, frænka Önnu Pálu,
sem bað Gumma um að vera ...“ Ég
var gapandi hissa og sagði bara:
„Ha?“
Þá var hann vatnsberi hjá liðinu
og Anna María frænka sagði við
hann: „Ég er að koma með frænku
mína, sem var að flytja í bæinn, á
námskeiðið. Ertu til í að leika við
hana og vera góður við hana?“ En
hann er kannski búinn að vera að-
eins of góður við mig.“
Anna Pála og Gummi hafa eigin-
lega verið saman síðan þá en þau
urðu kærustupar fimmtán, að verða
sextán, ára gömul – eða eins og Anna
Pála orðar það: „Við erum búin að
vera bestu vinir í 33 ár, síðan við
vorum tíu ára, og höfum verið kær-
ustupar í næstum tuttugu ár.“
Þegar maður sér til ykkar þá virðist
þið alltaf vera voðalega skotin
hvort í öðru.
„Já, ég held að við séum það,“ segja
þau bæði. „Okkur finnst líka ofsa
gaman að vera saman.“
„Ég held að lykillinn að okkar sam-
bandi sé að við erum bestu vinir,“
segir Anna Pála. „Og eigum sama
vinahóp og svoleiðis,“ bætir Gummi
við. „Við hittumst í haust, hópurinn
sem varð bikarmeistari fyrir tuttugu
og fimm árum, og ég held að ég hafi
þurft að segja henni frá því svona
fimm sinnum. Við erum svo óvön
því að gera eitthvað í sitt hvoru
lagi.“ Þau hlægja innilega og Gummi
bætir við: „Hún spurði mig alla vega
þrisvar hvort við ættum að hafa
þetta í matinn á laugardaginn.“
Ítarlegra viðtal við Gumma og
Önnu Pálu birtist á vef Víkurfrétta,
vf.is, um hátíðirnar.
Óskum viðskiptavinum og landsmönnum
öllum gleðilegra jóla og farsældar
á komandi ári.
Þökkum samstarfið á árinu sem er að líða.
Flugvallarbraut 752
262 Reykjanesbær
Sími: 415-0235
Email: asbru@asbru.is
Bókari
Ready for your next job?
Check us out at www.verneglobal.com
Verne Global gagnaver sem staðsett er á Suður-
nesjum leitar að bókara á fjármálasvið félagsins til
að sinna almennum bókhaldsverkefnum.
Við leitum að jákvæðum og áhugasömum einstakl-
ingi sem hefur reynslu af bókhaldsstörfum og/eða
nám tengt bókhaldi. Starfið er laust nú þegar og er
100% staða.
Með umsókn skal fylgja ferilskrá þar sem gerð er
grein fyrir hæfni viðkomandi til að gegna starfinu.
Umsóknarfrestur er til 23. desember næstkomandi.
https://verneglobal.bamboohr.com/careers/27
... og til að ég
myndi kynnast
einhverjum krökkum var ég
send með Önnu Maríu frænku
á leikjanámskeið. Svo kem
ég á leikjanámskeið, tíu ára,
og í fyrsta nestistímanum
kemur sætasti strákurinn
á námskeiðinu og segir:
„Hæ, hvað heitir þú?
Gummi og Anna Pála á leik með Njarðvík – þau gera allt saman.
Brúðkaupsdagurinn.
Sjálfa í sólinni. Hjónin með syni sína tvo á sólarströnd.
50 // VÍKurFrÉttir á suÐurNesJum