Rökkur - 01.12.1932, Qupperneq 108
186
R 0 K Ií U R
að uppreistarsinnar fengi mak-
leg' málagjöld. LýÖurinn fór
syngjandi um göturnar, með
blaktandi lýðveldisfána, en liér
og þar var borinn hinn rauði
fáni jafnaðarmanna. Miðstjórn
verkamannafélaganna kom
saman á fund til þess að taka
ákvarðanir um á hvern hátt
verkamenn gæti best stutt rík-
isstjórnina. Miðstjóruin gaf út
áskorun til verkalýðsins um að
vera reiðubúin til þess að
henda sér út í bardagann, ef
nauðsyn krefði.
Útkoma sumra íhaldsblað-
anna var bönnuð og aðals-
mannaklúbburinn Gran Pena
var lokaður, þar eð grunur lék
á, að þar befði verið samkomu-
staður konungssinna.“
„Zamora forseti, scm var
staddur uppi i sveit, hraðaði sér
þegar til Madrid, og var þegar
boðað til . ráðberrafundar, er
hann var kominn til borgarinn-
ar. A meðan ráðherrarnir sátu á
fundinum safnaðist múgur og
margmenni fyrir framan húsið
og hyltu menn ríkisstjórnina og
lýðveldið. Áður en fundinum
lauk, fór VI. lýðveldisherfvlkið
fram hjá höllinni, á leið til Se-
villa, og hylti múgurinn lýð-
veldishermennina.
í fyrstu tilkynningu stjórnar-
innar er þess getið, að Sevillá
væri enn í höndum uppreistar-
manna. Bifreiðaeigendum var
gert að skyldu að láta bifreiðir
sínar í hendur hersins, honum
til afnota, ef þess væri krafist.
Ráðslafanir voru gerðar til þess
að liraða lierflutningum til Se-
villa. Menn voru hvattir til þess
að safnast ekki saman í hópa á
götum og torgum. Loks tilkynti
stjórnin, að þjóðin þyrfti ekkert
að óttast. Uppreistin yrði bráð-
lega bæld niður að fullu og öllu.
Þjóðþingið kom saman á
fund seinni hluta dags, en fund-
urinn var settur klukkustund
síðar en ætlast var til, vegna
undirbúnings þess, sem fram
fór til þess að ná Sevilla frá
uppreistarmönnum. Þegar Az-
ana og ráðherrar hans gengu
inn í þingsalinn í fundarbyrjun
voru þeir hyltir ákaft af öllum
þingheimi, að undanteknum. 5
bændum. Þeir létu þess getið
síðar, að þeir hefði enga sam-
úð með uppreistarmönnum, en
þeir væri í andstöðu við ríkis-
stjórnina, og mundu því ekki
taka þátt í að hylla hana, þótt
eins væri ástatt og nú.
Azana hélt ræðu og skýrði
fyrir þinginu hvaða ráðstafanir
ríkisstjórnin liefði gert. Hann
kvað ríkisstjórnina ávalt vera
undir það búna, að tilraunir
væri gerðar til þess að koma af
stað byltingu. Kvað hann upp-
reistarmenn hafa ráðgert að