Fréttablaðið - 26.01.2023, Blaðsíða 49
Mark-
þjálfa-
námið er
svo magn-
að, það
kennir
manni
meðal
annars að
hlusta upp
á nýtt.
Erlen Björk
Trausti Björgvinsson framkvæmdastjóri: „Það er ekkert í eðli starfs verkfræðinga sem segir að
því þurfi að vera sinnt af karlmönnum.“
Erlen Björk Helgadóttir mannauðsstjóri: „Sem mannauðsstjóri þá sé ég mikla kosti í því að vera
með fjölbreyttan hóp starfsmanna og ekki síður stjórnenda.“
Ásta Logadóttir sviðsstjóri: „Markþjálfun er verkfæri sem kom mér mjög á óvart.“
Ólöf Helgadóttir sviðsstjóri: „Konur eru enn í minnihluta í verkfræðistörfum þannig að mér
finnst þarna vera tækifæri fyrir fullt af stelpum.“
starfsumhverfið hjá okkur orðið
annað og við til dæmis höfum lagt
mikla áherslu á það á okkar vinnu-
stað að vera ekki mikið í yfirvinnu
og með því opnum við tækifæri
fyrir starfsfólk, hvort sem það eru
karlar eða konur, að vera með jafn-
vægi í vinnulífi og einkalífi.“
Ólöf: „Við erum með sveigjan-
legan vinnutíma hjá Lotu og
hvetjum líka fólk til að vinna
heima ef að hentar og mér finnst
það eiginlega vera frekar karlarnir
hjá okkur en konurnar þeirra sem
fara heim til veikra barna ef svo
ber undir. Af því vinnustaðurinn
býður upp á það. Við lærðum fullt
af Covid um að vinna heima, og
þó það hafi ekkert endilega verið
skemmtilegur tími og flestir hafi
verið mjög til í að snúa aftur í hefð-
bundna vinnuviðveru þá er mjög
gott að geta boðið upp á það.“
Ásta: „Og svo kemur fólk
stundum með börnin sín í vinnuna
og gæludýrin líka og það er ekkert
mál, mjög yndislegur staður til að
vera á.“
Leyfi til að hlæja að mistökum
Eitt af þeim tækjum sem notuð
eru á Lotu til að bæta líðan starfs-
fólks er berskjöldun eða „vulne-
rability“ sem felur í sér að fólk
viðurkenni og ræði opinskátt um
líðan sína og þau mistök sem óhjá-
kvæmilega eiga sér stað einhvern-
tíma. Hvernig virkar að vinna með
berskjöldun á verkfræðistofu?
Trausti: „Ég lenti í veikindum
fyrir tveimur árum og mín leið
út úr þeim var mikil berskjöldun
og að tengjast sjálfum mér og
öðrum á annan hátt. Þetta hefur
gagnast mér svo mikið að ég held
að það hljóti að gagnast öðrum og
vinnuumhverfinu. Berskjöldun
gefur til dæmis leyfi til að hlæja
að vitleysunni í sjálfum sér sem
verður þá ekki eins alvarleg. Það
er mín upplifun að fólk dafnar
miklu betur ef það leyfir sér að
vera eins og það er.“
Ásta: „Við erum að æfa okkur
í að viðurkenna þegar við gerum
mistök sjálf og gefa þannig gott
fordæmi. Við gerum öll mistök
og það sem við ætlum að gera
er að læra af þeim og koma í veg
fyrir að þau gerist aftur. Og það er
meira að segja kominn ákveðinn
vinnustaðahúmor í kringum
þetta sem skapar stemningu
og dregur úr pressu og streitu á
vinnustaðnum.“
Erlen: „Við leggjum áherslu á
hrein og bein samskipti, ef þarf
að ræða við einhvern þá ræðum
við beint og opið við viðkomandi
frekar en að koma skilaboðum
eftir krókaleiðum. Við erum bara
eins og við erum og við leysum
vandamál strax þegar þau koma
upp.“
Trausti: „Við ræðum á starfs-
mannafundum hvað sé ber-
skjöldun fyrir okkur og hvað þarf
að vera til staðar í umhverfinu
til að við leyfum okkur að fara
þangað, þannig að allir starfs-
menn séu í takt. Og viðbrögðin
eru undantekningalaust jákvæð.
Við vitum það verkfræðingarnir
að já, við höfum gott af því að vera
ekki alveg pottþétt alltaf. Hjá Lotu
starfar fólk á öllum aldri sem tekur
þátt í því og kann að meta haginn
í því að koma fram eins og maður
er .“
Berskjöldun skilar betri
vinnuanda
Er þessi berskjöldunarvinna að
skila sér í betri verkfræðistofu?
Erlen: „Já, ekki spurning!“
Ólöf: „Við höfum farið í gegnum
alls konar rekstraráskoranir í
fyrirtækinu, lentum í erfiðum
dal fyrir nokkrum árum síðan og
höfum verið að byggja upp starfs-
andann síðan. Nú erum við með
góðan hóp, erum mikil liðsheild og
finnum svo vel fyrir því í öllu sem
við erum að gera. Við erum að ráða
inn fólk þessa dagana og fyrsta
pælingin er: Hvernig fellur við-
komandi inn í hópinn? Og það er
að mínu mati af því að við höfum
verið í þessari vinnu.“
Trausti: „Starfsfólkið hefur líka
sagt, og mér þykir vænt um það, að
það sé ekki nein höfðingjamenn-
ing í Lotu. Og það hefur þau áhrif
að fólk þorir að berskjalda sig, því
það veit að það verður ekki dæmt
eða þurfi að passa inn í einhverja
staðlaða ímynd til að fá framgang í
starfi eða eitthvað svoleiðis og það
held ég að hafi líka góð áhrif.“
Erlen: „Og þessi vinna skilar sér
líka í betri vináttu milli starfsfólks.
Við erum með ýmsa klúbba starf-
andi innan fyrirtækisins, göngu-
klúbb, sjósund og hlaupaklúbb,
sem reyndar hefur ekki verið mjög
virkur í vetur og það taka allir þátt,
sama á hvaða fagsviði þeir eru.
Við erum með mjög öflugt starfs-
mannafélag og svo erum við með
áhugabruggara sem bjóða upp
á heimabruggaðan bjór í starfs-
mannaherberginu okkar. Það þarf
aldrei að kalla eftir neinu frum-
kvæði, það kemur bara af sjálfu
sér.“
Markþjálfun í vinnunni
Trausti: „Varðandi berskjöldunina
þá má líka koma fram að þrjú
okkar í stjórnendateyminu eru
að klára markþjálfanám og við
nýtum okkur það í starfinu.“
Erlen: „Markþjálfanámið er svo
magnað, það kennir manni meðal
annars að hlusta upp á nýtt. Það
á að vera svo einfalt, en að hlusta
af alvöru athygli og hjálpa fólki að
komast að sínum kjarna þarfnast
þjálfunar.“
Trausti: „Starfsfólkið er mjög
viljugt að koma til okkar í mark-
þjálfun og deila alls konar hlutum
sem fólk á mörgum öðrum vinnu-
stöðum væri ekkert endilega til
í að deila. Við erum svo þakklát
fyrir að það sé svona mikið traust
til staðar.“
Ásta: „Ég var með mjög mikla
fordóma gegn markþjálfun og vissi
ekki hvað það var, fannst að fólk
ætti bara að geta fundið mark-
miðin sín sjálft. En svo var Trausti
kominn í námið og bauð okkur
líka og ég fann hvað þetta hjálpaði
ótrúlega mikið. Svo núna þegar
við erum að skipuleggja fundi
notum við aðferðir markþjálfunar,
til dæmis til að spegla sig og finna
út hvað manni finnst vera rétt,
og í staðinn fyrir að nenna varla
á fundi þá hlakka ég til að skipu-
leggja fundinn þannig að fólk komi
orkumikið út af fundinum og til í
slaginn. Og það gerir vinnudaginn
svo miklu skemmtilegri. Þannig að
þetta er verkfæri sem kom mér á
óvart og ég þurfti að éta ofan í mig
fordómana.“
Starfsánægja er lykilatriði
Ólöf: „Það er líka magnað að
hvetja hóp af verkfræðingum til
að tala um veikleika sína og vinna
með þá. Í staðinn fyrir að fela
veikleikana og troðast áfram í því
sem þau eru að gera þá erum við að
vinna með þá og grípa fólk áður en
það er til dæmis komið í kulnun.“
Erlen: „Og það þurfa heldur ekki
endilega að vera veikleikar, bara
ef fólk er fast í einhverju fari og
sér ekki leiðina út, vantar samtal
um leiðina áfram og hvert það vill
stefna. Og ekki bara um vinnuna
heldur líka persónulega hagi, það
er mikið traust. Við gerum vinnu-
staðakönnun árlega og þar kemur
fram að það er mikil starfsánægja
hjá okkur. Fólki verður að líða vel
í vinnunni, ef þér líður ekki vel
í vinnunni þá þarf að byrja á að
tala opinskátt um það og við sem
vinnustaður að hafa hugrekki til
að skoða það.“ n
kynningarblað 33FIMMTUDAGUR 26. janúar 2023 Félag kvenna í atvinnulíFinu