Fréttablaðið - 26.01.2023, Blaðsíða 16
Jóhanna María
Einarsdóttir
jme
@frettabladid.is
Ása segir að
í lokalínunni
sinni hafi mikill
tími farið í rann-
sóknarvinnu
um hvernig
hún geti unnið
í jafnmengandi
iðnaði og fata-
iðnaðurinn er,
og hvernig hægt
sé að gera betur.
Mynd/Árni Skeng
Gegnsætt prjón með perlum.
Hér heima er Sólveig Dóra
að gera mjög spennandi hluti í
fatahönnun og mig dreymir um
listaverk eftir Loja Höskulds. Svo
er Magnea alltaf að gera spennandi
hluti með íslensku ullina.
Minn stíll myndi ég segja að
sé áferðarmikill en ég er líka
með auga fyrir nákvæmni. Ég er
ryth mísk með rómantískum blæ,
hávær en samt svo hljóðlát. Áferð
veitir mér innblástur og ég tengi
áferð mjög mikið við tilfinningar.
Ég fæ líka innblástur frá fólki sem
ég sé í kringum mig, myndlist
og tónlist. Að hlusta á tónlist og
upplifa tónlist á klúbbi með fólki í
kringum mig sem dansar í takt við
tónlistina veitir mér mikinn inn-
blástur og tengist aftur við þessar
tilfinningar og áferð sem ég yfir-
færi inn í taktfasta vinnu í textíl.“
Er einhver sérstakur áratugur í
tískunni sem þú heillast af?
„Ég fæ ekki beint mikinn inn-
blástur frá sérstökum áratug, en
ætli ég sé ekki bara mest heilluð af
því að í „gamla daga“ klæddi fólk
sig meira upp hversdagslega og
notaði sparifötin sín meira en nú.“
Hefur þú sjálf gaman af tísku og
að klæða þig í fallegar f líkur?
„Já algjörlega, ég kaupi helst
flíkur í „second hand“ búðum,
nytjamörkuðum eða á mörkuðum
þegar ég ferðast. Svo finnst mér
mjög gaman að leika mér að setja
saman mismunandi áferð í lögum.
Svo var áramótaheitið mitt að
leika mér meira með flíkurnar
sem ég á, breyta þeim eða bara að
stílísera þær öðruvísi en áður.“
Lokalínan er upphafið
Ása Bríet hefur verið að vinna í
lokalínunni sinni síðan í ágúst í
fyrra. „Það hafa nokkrir mánuðir
farið í rannsóknarvinnu og þróun
á textíl. Ég fékk nú á dögunum
skólastyrk frá skartgripafyrir-
tækinu Swarovski sem er með pró-
gramm fyrir unga upprennandi
hönnuði sem vinna í kringum
sjálfbærni í sinni hönnun. Það er
mikill heiður að fá þennan skóla-
styrk og hjálpar mér mjög við gerð
á lokalínunni minni.
Í mínu ferli hefur farið mikil
rannsóknarvinna í að skoða
hvernig hægt sé að vinna í
iðnaði sem er mjög mengandi fyrir
umhverfið, hvernig megi hanna
á sjálfbærari máta og koma inn í
þennan iðnað með það sjónarmið
að það er hægt að gera betur. Að
það sé hægt að koma fram ein-
hverjum breytingum á því hvernig
framleiðsluferli er hagað og varð-
andi ákvarðanir um uppruna efnis
í hönnuninni og fólkið sem vinnur
í tísku. Ég er núna að komast að
lokaniðurstöðum með flíkurnar
sem ég mun sýna sem hluta af
lokalínunni minni. Það er mikil
vinna fram undan þar sem flest
allar flíkurnar krefjast mikillar
handavinnu, en það er bara spenn-
andi verkefni að takast á við. Það
getur verið frekar yfirþyrmandi að
hugsa til þess að loksins sé komið
að því að gera lokalínuna sína eftir
öll þessi ár sem ég hef verið að
læra einhvers konar hönnun.
En ég reyni að minna
mig á að þetta verður alls
ekki „lokalínan“ mín,
þetta er bara upphafið á
einhverju frábæru sem
ég mun takast á við eftir
útskrift í vor,“ segir Ása
Bríet. n
Flík úr
Pre Collec-
tion eftir Ásu
Bríeti.
Balenciaga
Project, sýnt
á Balenciaga
safninu í Getaria
2022.
Mynd/Viðar
Logi
Skór úr
íslenskri
ull.
K
A
V
IT
A
2 kynningarblað A L LT 26. janúar 2023 FIMMTUDAGUR