Fréttablaðið - 26.01.2023, Blaðsíða 92
Ýmsir áhorfendur geta
eflaust tengt við hug-
myndina að klippa
alfarið á samskipti við
einhvern sem maður á
ekki lengur samleið
með.
Svíar gapandi yfir
gleðigeðveikinni
KviKmyndir
The Banshees of
Inisherin
Leikstjórn: Martin McDonagh
Leikarar: Colin Farrell, Brendan
Gleeson, Kerry Condon
Arnar Tómas Valgeirsson
The Banshees of Inisherin er fjórða
mynd leikstjórans Martin McDo-
nagh sem getið hefur sér gott orð
fyrir kolsvartan húmor í bland við
vel skrifað drama. Myndin á sér stað
á írsku eyjunni Inisherin og segir
frá þeim Pádraic og Colm sem voru
einu sinni bestu vinir þar til einn
daginn þegar sá síðarnefndi slítur
vináttunni.
Engin ástæða virðist vera fyrir
vinslitunum en Colm ber því við
að honum líki hreinlega ekki við
Pádraic lengur. Colm biður Pádraic
vinsamlegast að eiga engin sam-
skipti við sig framvegis, vinalega í
fyrstu en síðar meir hótar Colm að
skaða sig ef Pádraic svo mikið sem
yrði á hann.
Þvermóðska á Inisherin
Gleeson og Farrell snúa aftur til liðs við McDonagh en þeir léku eftirminni-
lega saman í fyrstu mynd hans, In Bruges.
Líkt og fyrri myndir McDonagh
er The Banshees of Inisherin í senn
mjög fyndin og ansi tragísk. Þver-
móðska og tilgangslausar erjur eru
leiðarstef í myndinni sem gerist
einmitt í írsku borgarastyrjöldinni.
Ýmsir áhorfendur geta eflaust tengt
við hugmyndina að klippa alfarið á
samskipti við einhvern sem maður á
ekki lengur samleið með, en myndu
þó ekki leggja í jafn harkalegar
aðgerðir og Colm til þess.
Brendan Gleeson og Colin Farrell
fara á kostum saman og þau Kerry
Condon og Barry Keoghan standa
sig prýðilega í aukahlutverkum.
Írska landslagið á skálduðu eyjunni
er gullfallegt og þótt söguupp-
byggingin sé örlítið hæg þá ætti
áhorfendum aldrei að leiðast þegar
augnayndið er svo ríkulegt. Á heild-
ina litið er fjórða mynd McDonagh
vel heppnuð tragikómedía sem gæti
réttilega verið í uppáhaldi fólks á
katalóg leikstjórans. n
niðurstaða: Vel heppnuð
tragikómedía um þvermóðsku,
vinslit og tilgangslausar erjur.
Íslendingar voru mun hressari utan vallar
en innan á HM í handbolta þar sem mörg
kunnugleg andlit dúkkuðu upp. „Stemningin
var stórkostleg,“ segir grínarinn Hjálmar Örn
Jóhannsson og bendir á að Svíar hafi haft á
orði að þeir hafi aldrei séð neitt í líkingu við
það þegar bláa hafið skall á stúkunni með
sína kátínublöndnu íslensku geðveiki.
benediktboas@frettabladid.is
toti@frettabladid.is
Fótboltamæðg-
inin Ragnhildur
Sveinsdóttir og
Daníel Tristan
Guðjohnsen,
sem leikur
með Malmö,
skelltu sér á leik
í fullum skrúða
með gleðina að
vopni.
Myndir/Matthías
Finns
Hjálmar Örn Jóhanns-
son var pínu áhyggju-
fullur á Svíaleiknum en
segist þrátt fyrir allt hafa
farið kátur heim eftir
sigur á Brössum í loka-
leiknum.
Baldur Guð-
mundsson var blaða-
maður Fréttablaðsins,
DV og svo Morgunblaðs-
ins. Hann hafði puttana
á púlsinum lengi og leit
við í Svíþjóð þar sem
þjóðarpúlsinn sló.
Þeir Bjarki
Sigurðsson,
fyrrverandi
landsliðshetja
og Hörður
Sveinsson, fyrr-
verandi marka-
skorari Kefl-
víkinga, voru
eiturhressir í
stúkunni gegn
Svíum.
24 lífið FRÉTTABLAÐIÐ 26. jAnúAR 2023
fiMMTUDAGUR