Fréttablaðið - 26.01.2023, Blaðsíða 34

Fréttablaðið - 26.01.2023, Blaðsíða 34
Thelma Björk Norðdahl hefur fylgt móður sinni frá unga aldri í starfi hennar hjá Blómahönnun og stendur nú á tímamótum þar sem hún er að taka við rekstrinum af móður sinni. Thelma sér framtíðina bjarta og blóm- lega hér á landi og lætur verkin tala. „Blómahönnun ehf. var stofnað af móður minni, Maríu Másdóttur, árið 2002 í gegnum frumkvöðla- verkefnið Auður í krafti kvenna sem var verkefni sem Háskólinn í Reykjavík var með á þeim tíma. En hún hefur verið í FKA frá stofnun Blómahönnunar, sem var þá Félag kvenna í atvinnurekstri. Tengslanet FKA er öflugt og það er gríðarlega mikilvægt félag sem hefur gefið konum í atvinnulífinu mikinn kraft og styrk,“ segir Thelma. „Það er dýrmætt að hafa alist upp með mömmu, sem er sterk fyrirmynd um að konur geti allt og hefur það haft mikil áhrif á mig sem manneskju að hafa fengið að mæta með henni á viðburði FKA frá unga aldri og fylgjast með öllum þessum stórkostlegu, kláru og duglegu konum sem byggja upp sterkara atvinnulíf á Íslandi.“ Skreytti fyrir brúðkaup sænsku krónprinsessunnar „Móðir mín hefur rekið fyrirtækið með miklum krafti frá byrjun og hef ég frá unga aldri fylgt henni í hennar starfi. Með árunum jókst áhugi minn á rekstri fyrirtækisins og hefur það verið heiður að vera lærlingur hennar í öll þessi ár. En hún lærði af heimsfræga blóma- skreytingameistaranum Tor Gundersen. Í gegnum hann var hún m.a. valin að skreyta fyrir brúð- kaup sænsku krónprinsessunnar Victoriu. Nú er komið að tímamót- um hjá okkur í Blómahönnun þar sem ég er að taka við rekstrinum. Það er mér mikill heiður og verður spennandi og stórt verkefni að feta í fótspor móður minnar.“ Blómahönnun hefur í gegnum árin unnið sér inn orðspor erlendis fyrir faglegar og nýstárlegar skreytingar. „Á meðal verkefna sem ég hef hannað eru skreytingar fyrir t.d. Gucci, Michael Kors, Tom Cruise, Netflix, Canada Goose, True North, Pink Iceland, Hús og híbýli og fleiri stór nöfn. Ísland er heitur áfangastaður fyrir alls konar stór erlend fyrirtæki og ferðamenn, og er mikilvægt fyrir okkar þjóð sem býður m.a. upp á heimsklassa mat, hótel, kvikmyndafyrirtæki svo fátt sé nefnt að bjóða upp á blómaþjón- ustu á sama mælikvarða. Ég stefni hátt í þessum geira og hef mikinn metnað og áhuga fyrir því að verða stærri og betri með árunum líkt og mamma hefur gert,“ segir Thelma. „Blómaskreytingabransinn er skemmtilegur og gefandi en í honum fær maður mikið traust viðskiptavina sinna til að gera gleði og sorgarstundir fallegar með blómum. Við þjónustum einn- ig mörg fyrirtæki með áskriftum á blómaskreytingum og potta- plöntum.“ Í Blómahönnun er boðið upp á alhliða blómaþjónustu. „Þar sem við þjónustum veislurnar frá a til ö. Við eigum gríðarlegt magn af fallegum vösum, undirlögum, kertastjökum, fjöðrum og ýmis skreytiefni sem við leigjum út með blómaskreytingunum. En veglegt og fallegt undirlag kemur blóma- skreytingum á hærra plan og getur skipt sköpum fyrir glæsileika lokaútkomunnar. Við lánum alla vasa og undirlög frítt undir allar blómaskreytingar sem við gerum. Hvort sem það er skírn, brúðkaup, útför, árshátíð eða annað tilefni. Við erum einnig að flytja inn dásamlega fallegar, einstakar og vandaðar vörur sem við veljum af mikilli kostgæfni. Vörurnar veljum við vel og veljum gæðavörur sem endast lengi.“ Blómaverð er hærra vegna tolla „Ég sé framtíðina bjarta og blóm- lega á Íslandi og vegna þess stofnaði ég Hagsmunahóp blómaverslana hjá SVÞ og sit þar í stjórn að reyna að leggja niður gríðarháa verndar- tolla sem leggjast á öll innflutt blóm. Verndartollarnir leggjast ekki einungis á blómategundir sem eru ræktaðar hérlendis heldur á flestallar blómategundir sem flutt- ar eru inn hérlendis. Þessir tollar er orsök þess að blómaverð á Íslandi er miklu hærra en í öðrum löndum og veldur því að við getum ekki sem þjóð boðið upp á samkeppnishæf verð á blómaskreytingum miðað við aðrar þjóðir.“ Starf Thelmu er yfirgripsmikið og verkefnin fjölbreytt. „Ég vinn mikið úti um allt land fyrir við- burðafyritæki á borð við Pink Iceland, True North, Saga Film o.fl. sem selja ferðamönnum að koma að gifta sig eða halda stóra við- burði á Íslandi og tel ég mikilvægt að við sem þjóð getum boðið upp á samkeppnishæft verð á blóma- skreytingum samanborið við löndin í kringum okkur. Ég vona að sigur muni nást í tollabaráttunni þar sem það myndi hafa gríðarleg áhrif á íslenska ferðabransann líkt og íslenska blómabransann sem myndi stækka töluvert með þeirri breytingu,“ segir Thelma með bjart- sýnina að vopni. n Mikill heiður að feta í fótspor móður minnar Thelma Björk Norðdahl stendur nú á tímamótum þar sem hún er að taka við rekstrinum á Blómahönnun af móður sinni. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI Blómaskreytinga- bransinn er skemmtilegur og gefandi en í honum fær maður mikið traust viðskipta- vina sinna til að gera gleði og sorgarstundir fallegar með blómum. Við bjóðum upp á 11 glæsilega sali fyrir ráðstefnur, fundi námskeiðahald, sýningar og margt fleira. KYNNIÐ YKKUR MÁLIÐ islandshotel.is /fundir | fundir@islandshotel.is H Á TE IG U R · B JARTUR · GLÆSILEGUR · STÍLHREIN N · 27 M 2 B R EI Ð TJ A LD HÓTEL REYKJAVÍK GRAND FYRSTA FLOKKS RÁÐSTEFNU- OG FUNDARAÐSTAÐA HÓTEL REYKJAVÍK GRAND ÓSKAR FKA TIL HAMINGJU MEÐ DAGINN 18 kynningarblað 26. janúar 2023 FIMMTUDAGURFélag kvenna í atvinnulíFinu
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.