Fréttablaðið - 26.01.2023, Síða 34
Thelma Björk Norðdahl
hefur fylgt móður sinni frá
unga aldri í starfi hennar hjá
Blómahönnun og stendur nú
á tímamótum þar sem hún
er að taka við rekstrinum
af móður sinni. Thelma sér
framtíðina bjarta og blóm-
lega hér á landi og lætur
verkin tala.
„Blómahönnun ehf. var stofnað af
móður minni, Maríu Másdóttur,
árið 2002 í gegnum frumkvöðla-
verkefnið Auður í krafti kvenna
sem var verkefni sem Háskólinn í
Reykjavík var með á þeim tíma. En
hún hefur verið í FKA frá stofnun
Blómahönnunar, sem var þá Félag
kvenna í atvinnurekstri. Tengslanet
FKA er öflugt og það er gríðarlega
mikilvægt félag sem hefur gefið
konum í atvinnulífinu mikinn kraft
og styrk,“ segir Thelma.
„Það er dýrmætt að hafa alist
upp með mömmu, sem er sterk
fyrirmynd um að konur geti allt og
hefur það haft mikil áhrif á mig sem
manneskju að hafa fengið að mæta
með henni á viðburði FKA frá unga
aldri og fylgjast með öllum þessum
stórkostlegu, kláru og duglegu
konum sem byggja upp sterkara
atvinnulíf á Íslandi.“
Skreytti fyrir brúðkaup
sænsku krónprinsessunnar
„Móðir mín hefur rekið fyrirtækið
með miklum krafti frá byrjun og
hef ég frá unga aldri fylgt henni í
hennar starfi. Með árunum jókst
áhugi minn á rekstri fyrirtækisins
og hefur það verið heiður að vera
lærlingur hennar í öll þessi ár. En
hún lærði af heimsfræga blóma-
skreytingameistaranum Tor
Gundersen. Í gegnum hann var hún
m.a. valin að skreyta fyrir brúð-
kaup sænsku krónprinsessunnar
Victoriu. Nú er komið að tímamót-
um hjá okkur í Blómahönnun þar
sem ég er að taka við rekstrinum.
Það er mér mikill heiður og verður
spennandi og stórt verkefni að feta í
fótspor móður minnar.“
Blómahönnun hefur í gegnum
árin unnið sér inn orðspor erlendis
fyrir faglegar og nýstárlegar
skreytingar. „Á meðal verkefna
sem ég hef hannað eru skreytingar
fyrir t.d. Gucci, Michael Kors, Tom
Cruise, Netflix, Canada Goose, True
North, Pink Iceland, Hús og híbýli
og fleiri stór nöfn. Ísland er heitur
áfangastaður fyrir alls konar stór
erlend fyrirtæki og ferðamenn, og
er mikilvægt fyrir okkar þjóð sem
býður m.a. upp á heimsklassa mat,
hótel, kvikmyndafyrirtæki svo fátt
sé nefnt að bjóða upp á blómaþjón-
ustu á sama mælikvarða. Ég stefni
hátt í þessum geira og hef mikinn
metnað og áhuga fyrir því að verða
stærri og betri með árunum líkt og
mamma hefur gert,“ segir Thelma.
„Blómaskreytingabransinn
er skemmtilegur og gefandi en í
honum fær maður mikið traust
viðskiptavina sinna til að gera
gleði og sorgarstundir fallegar með
blómum. Við þjónustum einn-
ig mörg fyrirtæki með áskriftum
á blómaskreytingum og potta-
plöntum.“
Í Blómahönnun er boðið upp á
alhliða blómaþjónustu. „Þar sem
við þjónustum veislurnar frá a
til ö. Við eigum gríðarlegt magn
af fallegum vösum, undirlögum,
kertastjökum, fjöðrum og ýmis
skreytiefni sem við leigjum út með
blómaskreytingunum. En veglegt
og fallegt undirlag kemur blóma-
skreytingum á hærra plan og getur
skipt sköpum fyrir glæsileika
lokaútkomunnar. Við lánum alla
vasa og undirlög frítt undir allar
blómaskreytingar sem við gerum.
Hvort sem það er skírn, brúðkaup,
útför, árshátíð eða annað tilefni.
Við erum einnig að flytja inn
dásamlega fallegar, einstakar og
vandaðar vörur sem við veljum af
mikilli kostgæfni. Vörurnar veljum
við vel og veljum gæðavörur sem
endast lengi.“
Blómaverð er hærra vegna tolla
„Ég sé framtíðina bjarta og blóm-
lega á Íslandi og vegna þess stofnaði
ég Hagsmunahóp blómaverslana
hjá SVÞ og sit þar í stjórn að reyna
að leggja niður gríðarháa verndar-
tolla sem leggjast á öll innflutt
blóm. Verndartollarnir leggjast
ekki einungis á blómategundir sem
eru ræktaðar hérlendis heldur á
flestallar blómategundir sem flutt-
ar eru inn hérlendis. Þessir tollar er
orsök þess að blómaverð á Íslandi
er miklu hærra en í öðrum löndum
og veldur því að við getum ekki sem
þjóð boðið upp á samkeppnishæf
verð á blómaskreytingum miðað
við aðrar þjóðir.“
Starf Thelmu er yfirgripsmikið
og verkefnin fjölbreytt. „Ég vinn
mikið úti um allt land fyrir við-
burðafyritæki á borð við Pink
Iceland, True North, Saga Film o.fl.
sem selja ferðamönnum að koma
að gifta sig eða halda stóra við-
burði á Íslandi og tel ég mikilvægt
að við sem þjóð getum boðið upp
á samkeppnishæft verð á blóma-
skreytingum samanborið við
löndin í kringum okkur. Ég vona að
sigur muni nást í tollabaráttunni
þar sem það myndi hafa gríðarleg
áhrif á íslenska ferðabransann líkt
og íslenska blómabransann sem
myndi stækka töluvert með þeirri
breytingu,“ segir Thelma með bjart-
sýnina að vopni. n
Mikill heiður að feta í fótspor móður minnar
Thelma Björk Norðdahl stendur nú á tímamótum þar sem hún er að taka við
rekstrinum á Blómahönnun af móður sinni. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Blómaskreytinga-
bransinn er
skemmtilegur og gefandi
en í honum fær maður
mikið traust viðskipta-
vina sinna til að gera
gleði og sorgarstundir
fallegar með blómum.
Við bjóðum upp á 11 glæsilega sali fyrir ráðstefnur,
fundi námskeiðahald, sýningar og margt fleira.
KYNNIÐ YKKUR MÁLIÐ
islandshotel.is /fundir | fundir@islandshotel.is
H
Á
TE
IG
U
R
· B
JARTUR · GLÆSILEGUR · STÍLHREIN
N ·
27
M
2 B
R
EI
Ð
TJ
A
LD
HÓTEL REYKJAVÍK GRAND
FYRSTA FLOKKS RÁÐSTEFNU-
OG FUNDARAÐSTAÐA
HÓTEL REYKJAVÍK GRAND
ÓSKAR FKA TIL HAMINGJU MEÐ DAGINN
18 kynningarblað 26. janúar 2023 FIMMTUDAGURFélag kvenna í atvinnulíFinu