Fréttablaðið - 26.01.2023, Blaðsíða 33
Iða Brá, aðstoðarbankastjóri
Arion banka, segir undan-
farin tíu ár hafa verið gríðar-
lega spennandi og krefjandi
umbreytingatíma og þar
spili stafræn vegferð bank-
ans og viðskiptavina hans
eitt stærsta hlutverkið.
Iða Brá Benediktsdóttir tók nýlega
við starfi aðstoðarbankastjóra
Arion banka en hún er jafnframt
framkvæmdastjóri viðskipta-
bankasviðs. Iða hefur verið við-
loðandi bankageirann frá blautu
barnsbeini. „Ég er 46 ára, fædd og
uppalin í Vestmannaeyjum. Faðir
minn var bankamaður og mér
hefur alltaf þótt þetta áhugavert
svið. Ég hef allan minn starfs-
feril starfað í banka og byrjaði
þar ung í sumarstarfi með námi.
Á tímabili var draumurinn að
verða endurskoðandi en á síðasta
ári mínu í háskóla tók ég nokkra
fjármálakúrsa í viðskiptafræðinni
sem kveiktu áhugann enn frekar
á fjármálageiranum. Þetta lá vel
við og mér hefur alltaf þótt þetta
skemmtilegt,“ segir Iða.
Fjölbreytt verkefni
Bankastörf eru fjölbreytt og hefur
Iða sinnt margvíslegum störfum
innan bankans á ferlinum. „Ég hef
lært mikið á leiðinni og er enn að
læra, sem gefur starfinu ómetan-
legt gildi. Í apríl í fyrra tók ég við
stöðu aðstoðarbankastjóra og
síðustu fimm ár hef ég starfað sem
framkvæmdastjóri viðskipta-
bankasviðs, og held þeirri stöðu
áfram.
Síðarnefnda staðan hefur
verið afar gefandi og skemmtileg.
Síðustu ár hef ég upplifað gríðar-
lega umbreytingatíma þar sem
þjónusta bankans þróast frá því
að byggja á heimsóknum við-
skiptavina í bankaútibú, yfir í að
verða nánast einvörðungu stafræn.
Við höfum þróað mikinn fjölda
stafrænna lausna sem viðskipta-
vinir okkar kunna vel að meta og
einfalda þeim að eiga samskipti
við bankann. Nú er orðið svo að
langstærstur hluti af samskiptum
viðskiptavina við bankann fer
fram í gegnum stafrænar leiðir, og
þar af er stærsti hlutinn í gegnum
appið. Eftir sem áður erum við
með útibú – öfluga þjónustukjarna
– í öllum landsfjórðungum.
Það hefur sjaldan átt sér stað
jafn veigamikil breyting á banka-
starfsemi og undanfarin tíu ár. Við
vorum til dæmis fyrst til þess að
bjóða upp á hlutabréfaviðskipti
í appi bankans. Við viljum halda
þeirri vegferð áfram og gera verð-
bréfamarkaðinn aðgengilegri.
Einnig má nefna að í gegnum staf-
rænar leiðir bankans er nú hægt að
sækja um íbúðalán eða bílalán á
örfáum mínútum.
Næsta skref er að tengja starf-
semi bankans við tryggingarnar,
en Vörður og Arion samþættu
starfsemi sína að miklu leyti í
fyrra. Við viljum halda áfram
að þróa starfsemi bankans og
bjóða upp á alhliða fjármála-
þjónustu, og verða tryggingarnar
hluti af vöruúrvali bankans. Sem
aðstoðar bankastjóri nær starfs-
svið mitt til allra þátta í starfsemi
bankans. Ég, ásamt öðrum stjórn-
endum og bankastjóra, ber ábyrgð
á því að móta og framkvæma
stefnu bankans. Mér er samstarfið
við Vörð sérstaklega hugleikið þar
sem ég er einnig varaformaður
stjórnar Varðar trygginga.“
Leitað á ný mið
„Það aðgreinir Arion banka frá
öðrum bönkum á Íslandi að við
horfum nú í auknum mæli til
norðurslóða, það er Grænlands,
Færeyja, Alaska og Norður-Noregs.
Þetta verða stöðugt mikilvægari
landsvæði hvað varðar mikilvægar
auðlindir, yfirstandandi orku-
skipti og tengda starfsemi. Einnig
er mikil uppbygging fram undan á
þessu svæði meðal annars í tengsl-
um við aukna ferðamennsku. Með
því að horfa einnig til norðurslóða
aukum við fjölbreytileika okkar
tækifæra til muna.“
Þjónusta sniðin að
hverjum og einum
„Fjármál eru stór hluti af lífi okkar
allra. Bankar koma því við sögu á
mörgum af stærstu augnablikum í
lífi fólks: við kaup á íbúð, fjár-
festingum, námi, við stofnun
fyrirtækja og fleira, og við hjá
Arion banka viljum vera til staðar
við þessi mikilvægu tímamót. Nú
skiptir miklu að vera með öflugt
starfsfólk í útibúum okkar. Úti-
búin munu alltaf skipta okkur
og viðskiptavini okkar miklu.
Því munum við halda áfram að
styrkja okkar kjarnaútibú á sama
tíma og við vinnum í að efla
stafrænu þjónustuna fyrir bæði
einstaklinga og fyrirtæki. Með
því að auka vöruúrval bankans
með tryggingalausnum og betra
aðgengi að verðbréfaviðskiptum
og almennum bankaviðskiptum,
viljum við bæta upplifun við-
skiptavina. Okkar reynsla er að
þeir kunni að meta þægindin og
greiðan aðgang að upplýsingum
þegar kemur að fjármálum. Það er
óneitanlega þægilegt að hafa allt
fjármálatengt á einum og sama
staðnum. Með Verði tryggingum
og sjóðstýringafyrirtækinu Stefni
býður Arion núna upp á breiðasta
þjónustuframboð fjármálafyrir-
tækja hér á landi.
Nýlega settum við svo af stað
þjónustuleið sem við köllum Pre-
míu. Hún hentar okkar umsvifa-
mestu viðskiptavinum sem geta
ekki reitt sig alfarið á stafrænar
lausnir. Við komum til móts við
þann hóp með sérsniðinni per-
sónulegri þjónustu sem vissulega
er vel studd af okkar stafrænu
lausnum.“
Áskoranir smæðarinnar
Að sögn Iðu fylgja því nokkrar
áskoranir að reka víðfeðma banka-
starfsemi á landi sem er jafn lítið
og Ísland er, og þar að auki með
lítinn gjaldmiðil. „Bankarnir eru
stórir í íslensku samhengi, en á
sama tíma minnstu kerfislega mik-
ilvægu bankar í heimi. Það gilda
þó sömu kröfur um okkur og um
stóru bankana í nágrannalöndum
okkar. Og í sumum tilfellum gilda
meiri kröfur en annars staðar, til
að mynda um eiginfjárhlutfall.
Það eru bæði kostir og gallar
við að vera með lítinn gjaldmiðil.
Verðbólgan hér á landi í dag er
annars eðlis en annars staðar í
heiminum og ættum við að eiga
auðveldara með að ná tökum á
henni. Við erum um margt á betri
stað en mörg önnur lönd varðandi
húshitum og rafmagn, erum
sjálfum okkur næg um eldsneyti
og aðra orkugjafa og verðum því
ekki fyrir þeim áhrifum hækkaðs
orkuverðs sem löndin í kringum
okkur upplifa núna.
Önnur áskorun sem við stönd-
um frammi fyrir er samkeppni
við ríkisbanka annars vegar og
lífeyrissjóði hins vegar, sem starfa
ekki undir sama regluverki og
bankarnir. Því fylgja bæði kostir og
gallar. Kosturinn er til að mynda
sá að við getum aðgreint okkur frá
ríkissamkeppni. En það er samt
sem áður sérstakt að samkeppni á
markaðsgrundvelli sé að hluta til
í ríkiseigu, og að mínu mati aldrei
heppilegt.“
Mannréttinda- og
sjálfbærnimál
Arion banki hefur sett skýra stefnu
í umhverfis- og loftslagsmálum
og býður upp á grænar lausnir í
íbúðalánum, bílalánum, sparnaði
og fyrirtækjalánum. „Við leggjum
ríka áherslu á sjálfbærni í okkar
starfsemi. Við komum vel út í þeim
efnum í samanburði við erlenda
banka og erum meðal þeirra sem
alþjóðlega matsfyrirtækið Susta-
inalytics telur vera hvað fremst
á heimsvísu. Einnig höfum við
fengið framúrskarandi einkunn
hjá Reitun, sem hefur nú í nokkur
ár tekið út umhverfis- og félags-
lega þætti og stjórnarhætti í okkar
starfsemi.
Við leggjum mikla áherslu á
jafnrétti kynjanna innan bank-
ans. Við vorum fyrsti bankinn
til að fá jafnlaunavottun VR árið
2015, sem einfaldaði það fyrir
okkur að fá Jafnlaunamerki vel-
ferðarráðuneytisins árið 2018. Í
dag er óútskýrður launamunur
kynjanna hjá Arion banka undir
1%. Í viðhaldsúttekt á jafnlauna-
kerfinu sem framkvæmd var á
árinu, var niðurstaðan 0,4% og
voru konur hærri, samanborið
við 0,1% launamun árið 2021 en
þá voru karlar örlítið hærri. Svo
horfum við í dag sérstaklega til
miðgildis heildarlauna karla og
kvenna. Við höfum einsett okkur
að minnka muninn þar á milli.
Það er reyndar mjög áhugavert
að eftir að við fórum að gefa þeim
samanburði sérstakan gaum
höfum við séð mjög jákvæða
þróun. Við höfum náð að lækka
þetta hlutfall sem er komið undir
1,3. Markmið er svo að lækka það
enn frekar.
Arion banki er aðili að Jafn-
réttissáttmála UN Women og UN
Global Compact og hefur verið til
margra ára. Við erum jafnframt
með skýra stefnu í jafnréttismál-
um og erum með aðgerðaáætlun í
þeim efnum. Markmið stefnunnar
og áætlunarinnar er að skapa
umhverfi þar sem fólk með sam-
bærilega menntun, starfsreynslu
og ábyrgð býr við jöfn tækifæri
og kjör, án tillits til kyns, kyn-
vitundar, kynhneigðar, uppruna,
þjóðernis, litarhafts, aldurs, fötl-
unar, trúar eða annarrar stöðu.
Í aðgerðaáætluninni er aukin
áhersla á að jafna kynjahlutföll
innan bankans, ekki einungis á
meðal stjórnenda heldur einn-
ig innan starfaflokka, nefnda og
starfseininga.
Svo erum við stolt af því að
Arion banki var fyrsta fyrir-
tækið til að tilkynna um það að
bjóða starfsfólki viðbótarstyrk í
fæðingarorlofi þannig að launin
nemi um 80% af föstum tekjum
þess. Markmið okkar með þessu
er að stuðla að auknu jafnrétti og
því að karlar taki oftar og lengra
fæðingarorlof.“ n
Stafræn vegferð er
stærsta breytingin
Iða Brá Bene-
diktsdóttir,
framkvæmda-
stjóri viðskipta-
bankasviðs og
aðstoðarbanka-
stjóri hjá Arion
banka, segir að
því fylgi bæði
kostir og gallar
að reka banka á
Íslandi.
Fréttablaðið/
Ernir
Við leggjum ríka
áherslu á sjálf-
bærni í okkar starfsemi.
Við komum vel út í þeim
efnum í samanburði við
erlenda banka.
Iða Brá
kynningarblað 17FIMMTUDAGUR 26. janúar 2023 Félag kvenna í atvinnulíFinu