Fréttablaðið - 26.01.2023, Blaðsíða 75
Við Borgartún í Reykjavík
er starfrækt ein af stærstu
lögmannsstofum landsins
undir heiti Landslaga.
Frá stofnun, fyrir yfir fimmtíu
árum, hefur markmið Landslaga
verið að veita viðskiptavinum
fyrsta flokks ráðgjöf og þjónustu á
öllum helstu sviðum lögfræðinnar.
Á Landslögum starfa nú 24 starfs-
menn. Kynjahlutföll eru jöfn,
þegar litið er til heildarinnar, en
konum hefur fjölgað jafnt og þétt á
undanförnum árum. Í dag eru tæp-
lega 30% eigenda stofunnar konur
og kynjahlutfall meðal fulltrúa
jafnt. Til samanburðar voru konur
á árinu 2022 um 19% eigenda tíu
stærstu lögmannsstofa landsins
og skýrist það að hluta til af því að
konur í lögmennsku eru hlutfalls-
lega yngri en karlmenn. Konurnar
hjá Landslögum eru stoltar af því
að vera leiðandi, þótt markmiðið
hljóti alltaf að vera að ná jöfnum
hlutföllum þegar fram í sækir. Þá
er helmingur stjórnarmanna í
stjórn Landslaga konur.
Landslög hafa sérhæft sig í
þjónustu við fyrirtæki og stofan
getur sinnt öllum þeim fjölbreyttu
álitamálum sem upp koma í rekstri
viðskiptavina. Þá hafa Landslög
starfað við margs konar hags-
munagæslu fyrir íslenska ríkið og
mörg sveitarfélög landsins.
Samkeppnismál í forgrunni
„Ég hef verið að „fókusera“ á sam-
keppnisrétt í meira en 25 ár – ég er
eins og leigubílstjórinn í Spaugstof-
unni,“ segir Jóna Björk Helgadóttir,
lögmaður og einn eigenda Lands-
laga. „Og mér finnst það alltaf
jafn áhugavert. Réttarsviðið hefur
þróast á fleygiferð undanfarin ár
enda frekar ungt að árum hér á
landi.“ Jóna Björk segist hafa verið
fyrsti kennarinn í samkeppnis-
rétti, fyrst í Háskóla Íslands seint á
síðustu öld og síðan í Háskólanum
í Reykjavík strax á öðru starfsári
hans. Að sögn Jónu Bjarkar hafa
samrunamál verið áberandi í
hennar „praksís“ þar sem ráðgjöf
til fyrirtækja í tengslum við kaup
á öðrum fyrirtækjum, sem og
eftirfylgni samrunamála gegnum
samkeppnisyfirvöld, hefur tekið
mikið pláss. Þannig hefur hún með
einum eða öðrum hætti komið
að mörgum stærri samrunum í
íslensku viðskiptalífi undanfarin
ár. „Mér finnst mjög skemmti-
legt að vera með þessum hætti í
hringiðu þess sem er að gerast í
viðskiptum hverju sinni,“ segir
Jóna Björk.
Konum alltaf að fjölga
„Þegar ég byrjaði á Landslögum
árið 2006 voru einungis karlkyns
lögmenn á stofunni. Þeir tóku
einstaklega vel á móti mér og mér
hefur alltaf þótt þetta sérlega góður
vinnustaður, þó hann hafi svo
sannarlega orðið enn betri eftir að
kynjahlutföllin hafa jafnast. Það
er líka mikils virði að fá yngra fólk
inn, ekki síður yngri konur, sem
bera með sér ferska strauma. Það er
engin spurning að bæði kynslóð-
irnar og kynin virka hvetjandi hver
á aðra,“ bætir Jóna Björk við.
Steypan heillar
Hildur Ýr Viðarsdóttir hefur verið
lögmaður á Landslögum í 15 ár og
verið í eigendahóp stofunnar frá
2015. Hún öðlaðist réttindi til mál-
flutnings fyrir Hæstarétti 2017 en
á því ári fjölgaði konum með slík
réttindi einungis um eina.
„Ég hef nánast allan tímann
kennt samhliða lögmennskunni,
aðallega við lagadeild Háskóla
Íslands þar sem ég er aðjúnkt. Mér
finnst kennslan skemmtileg og
gefandi en auk þess er hún besta
endurmenntunin. Þá finnst mér
kennslan nýtast mér í lögmennsk-
unni og öfugt. Þróunin hefur líka
verið sú að verkefnin á stofunni
eru gjarnan á sömu sviðum og ég
kenni, en ég fæst helst við fast-
eignarétt ýmiss konar, þ. á m. verk-
takarétt, vátryggingarétt, kröfu- og
samningarétt. Þá er ég talsvert
mikið í málflutningi, sérstaklega
eftir að ég tók að mér málflutning
fyrir TM tryggingar,“ segir Hildur.
Hildur var einn málflytjenda
í stærstu einkamálum sem hafa
verið flutt hér á landi. Aðalmeð-
ferðin í héraði stóð yfir í á 6. viku.
Hildur segir að það hafi verið
lærdómsríkt ferli að taka þátt í svo
umfangsmiklum málarekstri.
„Ég byrjaði að kenna fasteigna-
kauparétt 2010 og þá urðu fast-
eignamál fljótt fyrirferðarmikil hjá
mér í lögmennskunni. Ég hef því á
þessum tíma orðið sérfræðingur í
fasteignakauparétti og öðru tengdu
fasteignakaupum. Þar eru gallamál
fyrirferðarmikil. Hefur þetta leitt
til þess að ég er á góðri leið að verða
byggingafróð og hef hugsað um
að skrá mig í nám í húsasmíði til
gamans. En ætli börnin þurfi ekki
að vera orðin aðeins sjálfstæðari
áður en að því kemur.“
Hildur Ýr nefnir að það sem
heilli einnig við lögmennskuna sé
fjölbreytileikinn í starfinu, en hún
gegnir meðal annars formennsku
í kærunefnd vöru- og þjónustu-
kaupa og úrskurðarnefnd sjó-
manna og útvegsmanna, þar sem
eðli þeirra starfa er nokkuð annað.
Lögmennska býður
upp á fjölbreytt verkefni
Áslaug Árnadóttir er einn af eig-
endum Landslaga og situr í stjórn
fyrirtækisins. Áslaug hóf störf á
Landslögum árið 2010. Í störfum
sínum sinnir Áslaug hvers konar
lögfræðiráðgjöf við fyrirtæki,
verkefnum á sviði fjármálaréttar
og lögfræðiráðgjöf við stofnanir og
ráðuneyti. Einnig er hún mikið í
málflutningi.
„Það er langt frá því að ég hafi
farið beint í lögmennsku eftir
útskrift. Áður en ég hóf störf á
Landslögum hafði ég aflað mér
framhaldsmenntunar í Evrópu-
rétti við Stokkhólmsháskóla,
starfað á Alþingi, sem aðstoðar-
maður dómara við Hæstarétt og
sem skrifstofustjóri og staðgengill
ráðuneytisstjóra í viðskipta-
ráðuneytinu. Þessi störf mín eru
gífurlega góður grunnur fyrir lög-
mannsstarfið og reynslan nýtist
mér á hverjum degi,“ segir Áslaug
og bætir við: „Það sem heillar mig
við lögmennskuna er fjölbreyti-
leikinn og sveigjanleikinn. Þú veist
aldrei hvernig dagurinn verður
og verkefnin verða aldrei einsleit.
Einnig felur starfið í sér mikil
samskipti við viðskiptavini sem ég
hef mjög gaman af. Þá eru Lands-
lög yndislegur vinnustaður og
vinnufélagarnir verða ekki betri.
Það er alltaf eitthvað um að vera,
golf- og sundiðkun, veiðiferðir og
hljóðfæraleikur.“
„Þróunin hefur orðið sú að ég
sinni málflutningi nokkuð mikið.
Þrátt fyrir að ýmiss konar ráð-
gjöf sé mest áberandi á stofunni
eru lögmenn Landslaga öflugir í
málflutningi, en þeir koma nær
einvörðungu að flutningi einka-
mála. Af þeim 18 lögfræðingum
sem starfa á Landslögum hafa
11 réttindi til málflutnings fyrir
öllum dómstigum; héraðsdómi,
Landsrétti og Hæstarétti. Af þeim
32 konum á landinu sem eru
sjálfstætt starfandi og með lög-
mannsréttindi fyrir Hæstarétti eru
þrjár þeirra á stofunni. Árið 2022
fluttu lögmenn Landslaga um þrjú
mál í viku þann tíma ársins sem
dómstólar starfa, þar af um 18% af
munnlega fluttum einkamálum í
Hæstarétti eftir því sem ég kemst
næst,“ segir Áslaug.
Sterkar kvenfyrirmyndir
mikilvægar
Unnur Lilja Hermannsdóttir hóf
störf á Landslögum árið 2011, þá
að ljúka námi í lögfræði í Háskól-
anum í Reykjavík. Verkefnin urðu
strax fjölbreytt en lituðust fyrst
um sinn einkum af verkefnum á
sviði fjármála- og bankaréttar.
„Ég hef alltaf verið stolt af því að
starfa á Landslögum enda hefur
stofan skapað sér gott orðspor.
Þar eru fagmenn í hverju rúmi
og gríðarlega verðmætt að geta
speglað sig í öðrum á stofunni,“
segir Unnur. „Sérhæfing mín í dag
liggur einkum í ráðgjöf til fyrir-
tækja á breiðum grunni en einnig
ráðgjöf á sviði eignarréttar, opin-
berra innkaupa, verkframkvæmda
hvers konar, stjórnsýslu og mála-
reksturs fyrir dómstólum. Þetta
er mjög lifandi starf og verkefnin
ráðast oft af því sem hæst er á
baugi í þjóðfélagsumræðunni. Til
að mynda hafa verkefni er varða
vinnuvernd, þá einkum mál er
falla undir reglugerð um aðgerðir
gegn einelti, kynferðislegri áreitni,
kynbundinni áreitni og of beldi á
vinnustöðum (EKKO reglugerðin),
verið áberandi í mínum störfum
að undanförnu.“ Unnur segir
mikilvægast í þeim málum að hafa
virkar aðgerðaáætlanir og fylgja
þeim eftir, þegar slík mál koma
upp.
Árið 2020 varð Unnur einn
meðeigenda að stofunni, þá
í fæðingarorlofi með þriggja
mánaða barn. Stofan hefur tekið
meðvitaðar ákvarðanir í átt til
aukins jafnréttis líkt og dæmin
sanna. „Sem kona þykir mér ekki
síður mikilvægt að hafa sterkar
kvenfyrirmyndir og það er ekki
langt að sækja það til þeirra sem
hér eru.“ Unnur situr nú í stjórn
stofunnar en Landslögum hefur
þótt mikilvægt að kynjahlutföll
séu jöfn í stjórn og einnig að horft
sé til mismunandi aldurs. n
Mikilvægt að hafa sterkar kvenfyrirmyndir
Frá vinstri: Jóna Björk Helgadóttir, Hildur Ýr Viðarsdóttir, Áslaug Árnadóttir og Unnur Lilja Hermannsdóttir eru allar í eigendahópi Landslaga.
FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Hjá Landslögum eru 24 starfsmenn og eru kynjahlutföll jöfn þegar til
heildarinnar er litið. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Ég hef alltaf verið
stolt af því að starfa
á Landslögum enda
hefur stofan skapað sér
gott orðspor. Það eru
fagmenn í hverju rúmi
og gríðarlega verðmætt
að geta speglað sig í
öðrum á stofunni.
Unnur Lilja Hermannsdóttir
kynningarblað 59FIMMTUDAGUR 26. janúar 2023 Félag kvenna í atvinnulíFinu