Fréttablaðið


Fréttablaðið - 26.01.2023, Qupperneq 75

Fréttablaðið - 26.01.2023, Qupperneq 75
Við Borgartún í Reykjavík er starfrækt ein af stærstu lögmannsstofum landsins undir heiti Landslaga. Frá stofnun, fyrir yfir fimmtíu árum, hefur markmið Landslaga verið að veita viðskiptavinum fyrsta flokks ráðgjöf og þjónustu á öllum helstu sviðum lögfræðinnar. Á Landslögum starfa nú 24 starfs- menn. Kynjahlutföll eru jöfn, þegar litið er til heildarinnar, en konum hefur fjölgað jafnt og þétt á undanförnum árum. Í dag eru tæp- lega 30% eigenda stofunnar konur og kynjahlutfall meðal fulltrúa jafnt. Til samanburðar voru konur á árinu 2022 um 19% eigenda tíu stærstu lögmannsstofa landsins og skýrist það að hluta til af því að konur í lögmennsku eru hlutfalls- lega yngri en karlmenn. Konurnar hjá Landslögum eru stoltar af því að vera leiðandi, þótt markmiðið hljóti alltaf að vera að ná jöfnum hlutföllum þegar fram í sækir. Þá er helmingur stjórnarmanna í stjórn Landslaga konur. Landslög hafa sérhæft sig í þjónustu við fyrirtæki og stofan getur sinnt öllum þeim fjölbreyttu álitamálum sem upp koma í rekstri viðskiptavina. Þá hafa Landslög starfað við margs konar hags- munagæslu fyrir íslenska ríkið og mörg sveitarfélög landsins. Samkeppnismál í forgrunni „Ég hef verið að „fókusera“ á sam- keppnisrétt í meira en 25 ár – ég er eins og leigubílstjórinn í Spaugstof- unni,“ segir Jóna Björk Helgadóttir, lögmaður og einn eigenda Lands- laga. „Og mér finnst það alltaf jafn áhugavert. Réttarsviðið hefur þróast á fleygiferð undanfarin ár enda frekar ungt að árum hér á landi.“ Jóna Björk segist hafa verið fyrsti kennarinn í samkeppnis- rétti, fyrst í Háskóla Íslands seint á síðustu öld og síðan í Háskólanum í Reykjavík strax á öðru starfsári hans. Að sögn Jónu Bjarkar hafa samrunamál verið áberandi í hennar „praksís“ þar sem ráðgjöf til fyrirtækja í tengslum við kaup á öðrum fyrirtækjum, sem og eftirfylgni samrunamála gegnum samkeppnisyfirvöld, hefur tekið mikið pláss. Þannig hefur hún með einum eða öðrum hætti komið að mörgum stærri samrunum í íslensku viðskiptalífi undanfarin ár. „Mér finnst mjög skemmti- legt að vera með þessum hætti í hringiðu þess sem er að gerast í viðskiptum hverju sinni,“ segir Jóna Björk. Konum alltaf að fjölga „Þegar ég byrjaði á Landslögum árið 2006 voru einungis karlkyns lögmenn á stofunni. Þeir tóku einstaklega vel á móti mér og mér hefur alltaf þótt þetta sérlega góður vinnustaður, þó hann hafi svo sannarlega orðið enn betri eftir að kynjahlutföllin hafa jafnast. Það er líka mikils virði að fá yngra fólk inn, ekki síður yngri konur, sem bera með sér ferska strauma. Það er engin spurning að bæði kynslóð- irnar og kynin virka hvetjandi hver á aðra,“ bætir Jóna Björk við. Steypan heillar Hildur Ýr Viðarsdóttir hefur verið lögmaður á Landslögum í 15 ár og verið í eigendahóp stofunnar frá 2015. Hún öðlaðist réttindi til mál- flutnings fyrir Hæstarétti 2017 en á því ári fjölgaði konum með slík réttindi einungis um eina. „Ég hef nánast allan tímann kennt samhliða lögmennskunni, aðallega við lagadeild Háskóla Íslands þar sem ég er aðjúnkt. Mér finnst kennslan skemmtileg og gefandi en auk þess er hún besta endurmenntunin. Þá finnst mér kennslan nýtast mér í lögmennsk- unni og öfugt. Þróunin hefur líka verið sú að verkefnin á stofunni eru gjarnan á sömu sviðum og ég kenni, en ég fæst helst við fast- eignarétt ýmiss konar, þ. á m. verk- takarétt, vátryggingarétt, kröfu- og samningarétt. Þá er ég talsvert mikið í málflutningi, sérstaklega eftir að ég tók að mér málflutning fyrir TM tryggingar,“ segir Hildur. Hildur var einn málflytjenda í stærstu einkamálum sem hafa verið flutt hér á landi. Aðalmeð- ferðin í héraði stóð yfir í á 6. viku. Hildur segir að það hafi verið lærdómsríkt ferli að taka þátt í svo umfangsmiklum málarekstri. „Ég byrjaði að kenna fasteigna- kauparétt 2010 og þá urðu fast- eignamál fljótt fyrirferðarmikil hjá mér í lögmennskunni. Ég hef því á þessum tíma orðið sérfræðingur í fasteignakauparétti og öðru tengdu fasteignakaupum. Þar eru gallamál fyrirferðarmikil. Hefur þetta leitt til þess að ég er á góðri leið að verða byggingafróð og hef hugsað um að skrá mig í nám í húsasmíði til gamans. En ætli börnin þurfi ekki að vera orðin aðeins sjálfstæðari áður en að því kemur.“ Hildur Ýr nefnir að það sem heilli einnig við lögmennskuna sé fjölbreytileikinn í starfinu, en hún gegnir meðal annars formennsku í kærunefnd vöru- og þjónustu- kaupa og úrskurðarnefnd sjó- manna og útvegsmanna, þar sem eðli þeirra starfa er nokkuð annað. Lögmennska býður upp á fjölbreytt verkefni Áslaug Árnadóttir er einn af eig- endum Landslaga og situr í stjórn fyrirtækisins. Áslaug hóf störf á Landslögum árið 2010. Í störfum sínum sinnir Áslaug hvers konar lögfræðiráðgjöf við fyrirtæki, verkefnum á sviði fjármálaréttar og lögfræðiráðgjöf við stofnanir og ráðuneyti. Einnig er hún mikið í málflutningi. „Það er langt frá því að ég hafi farið beint í lögmennsku eftir útskrift. Áður en ég hóf störf á Landslögum hafði ég aflað mér framhaldsmenntunar í Evrópu- rétti við Stokkhólmsháskóla, starfað á Alþingi, sem aðstoðar- maður dómara við Hæstarétt og sem skrifstofustjóri og staðgengill ráðuneytisstjóra í viðskipta- ráðuneytinu. Þessi störf mín eru gífurlega góður grunnur fyrir lög- mannsstarfið og reynslan nýtist mér á hverjum degi,“ segir Áslaug og bætir við: „Það sem heillar mig við lögmennskuna er fjölbreyti- leikinn og sveigjanleikinn. Þú veist aldrei hvernig dagurinn verður og verkefnin verða aldrei einsleit. Einnig felur starfið í sér mikil samskipti við viðskiptavini sem ég hef mjög gaman af. Þá eru Lands- lög yndislegur vinnustaður og vinnufélagarnir verða ekki betri. Það er alltaf eitthvað um að vera, golf- og sundiðkun, veiðiferðir og hljóðfæraleikur.“ „Þróunin hefur orðið sú að ég sinni málflutningi nokkuð mikið. Þrátt fyrir að ýmiss konar ráð- gjöf sé mest áberandi á stofunni eru lögmenn Landslaga öflugir í málflutningi, en þeir koma nær einvörðungu að flutningi einka- mála. Af þeim 18 lögfræðingum sem starfa á Landslögum hafa 11 réttindi til málflutnings fyrir öllum dómstigum; héraðsdómi, Landsrétti og Hæstarétti. Af þeim 32 konum á landinu sem eru sjálfstætt starfandi og með lög- mannsréttindi fyrir Hæstarétti eru þrjár þeirra á stofunni. Árið 2022 fluttu lögmenn Landslaga um þrjú mál í viku þann tíma ársins sem dómstólar starfa, þar af um 18% af munnlega fluttum einkamálum í Hæstarétti eftir því sem ég kemst næst,“ segir Áslaug. Sterkar kvenfyrirmyndir mikilvægar Unnur Lilja Hermannsdóttir hóf störf á Landslögum árið 2011, þá að ljúka námi í lögfræði í Háskól- anum í Reykjavík. Verkefnin urðu strax fjölbreytt en lituðust fyrst um sinn einkum af verkefnum á sviði fjármála- og bankaréttar. „Ég hef alltaf verið stolt af því að starfa á Landslögum enda hefur stofan skapað sér gott orðspor. Þar eru fagmenn í hverju rúmi og gríðarlega verðmætt að geta speglað sig í öðrum á stofunni,“ segir Unnur. „Sérhæfing mín í dag liggur einkum í ráðgjöf til fyrir- tækja á breiðum grunni en einnig ráðgjöf á sviði eignarréttar, opin- berra innkaupa, verkframkvæmda hvers konar, stjórnsýslu og mála- reksturs fyrir dómstólum. Þetta er mjög lifandi starf og verkefnin ráðast oft af því sem hæst er á baugi í þjóðfélagsumræðunni. Til að mynda hafa verkefni er varða vinnuvernd, þá einkum mál er falla undir reglugerð um aðgerðir gegn einelti, kynferðislegri áreitni, kynbundinni áreitni og of beldi á vinnustöðum (EKKO reglugerðin), verið áberandi í mínum störfum að undanförnu.“ Unnur segir mikilvægast í þeim málum að hafa virkar aðgerðaáætlanir og fylgja þeim eftir, þegar slík mál koma upp. Árið 2020 varð Unnur einn meðeigenda að stofunni, þá í fæðingarorlofi með þriggja mánaða barn. Stofan hefur tekið meðvitaðar ákvarðanir í átt til aukins jafnréttis líkt og dæmin sanna. „Sem kona þykir mér ekki síður mikilvægt að hafa sterkar kvenfyrirmyndir og það er ekki langt að sækja það til þeirra sem hér eru.“ Unnur situr nú í stjórn stofunnar en Landslögum hefur þótt mikilvægt að kynjahlutföll séu jöfn í stjórn og einnig að horft sé til mismunandi aldurs. n Mikilvægt að hafa sterkar kvenfyrirmyndir Frá vinstri: Jóna Björk Helgadóttir, Hildur Ýr Viðarsdóttir, Áslaug Árnadóttir og Unnur Lilja Hermannsdóttir eru allar í eigendahópi Landslaga. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Hjá Landslögum eru 24 starfsmenn og eru kynjahlutföll jöfn þegar til heildarinnar er litið. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Ég hef alltaf verið stolt af því að starfa á Landslögum enda hefur stofan skapað sér gott orðspor. Það eru fagmenn í hverju rúmi og gríðarlega verðmætt að geta speglað sig í öðrum á stofunni. Unnur Lilja Hermannsdóttir kynningarblað 59FIMMTUDAGUR 26. janúar 2023 Félag kvenna í atvinnulíFinu
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.