Fréttablaðið - 26.01.2023, Blaðsíða 40
Frá því að VIRK Starfsend-
urhæfingarsjóður hóf starf-
semi fyrir næstum 15 árum
hafa tugþúsundir einstakl-
inga nýtt sér þjónustuna
og náð að koma sér aftur í
virkni og inn á vinnumark-
aðinn. Starfsemi VIRK hefur
því gríðarlega þýðingu fyrir
samfélagið, einstaklinga og
fyrirtækin í landinu.
Vigdís Jónsdóttir hefur verið
framkvæmdastjóri VIRK frá
upphafi, varð fyrsti starfsmaður
starfsendurhæfingarsjóðsins
haustið 2008, en það ár stóðu
aðilar vinnumarkaðarins að
stofnun VIRK, sem er sjálfseignar-
stofnun fjármögnuð af atvinnu-
lífinu, lífeyrissjóðum og ríki. Í
dag eru starfsmenn og ráðgjafar
VIRK um 110 talsins, starfsemin
er dreifð um allt land en höfuð-
stöðvarnar eru í Borgartúni 18 í
Reykjavík.
Vigdís segir kjarnastarfsemi
VIRK snúa að því að veita þeim
2.400 þjónustuþegum sem á
hverjum tíma eru í starfsendur-
hæfingu á vegum VIRK, markvissa
og góða þjónustu.
„Hjá VIRK veitum við ein-
staklingsbundna þverfaglega
starfsendurhæfingarþjónustu sem
sniðin er að þörfum og aðstæðum
hvers og eins einstaklings. Hver
einstaklingur fær sína eigin starfs-
endurhæfingaráætlun og ráðgjafa
sem fylgir þjónustunni eftir. Starfs-
endurhæfingin er veitt um allt land
og fjöldi þjónustuaðila sem VIRK
kaupir þjónustu af fyrir einstakl-
ingana í starfsendurhæfingu tekur
þátt í henni.“
VIRK gegnir mjög mikilvægu
hlutverki í velferðarkerfinu, að
hennar sögn. „Yfir 20 þúsund
einstaklingar hafa leitað til VIRK
undanfarin 15 ár og um 15 þúsund
einstaklingar hafa lokið þjónustu.
Um 80% einstaklinga sem ljúka
þjónustu eru í virkni við lok
þjónustu, það er annað hvort í
vinnu eða námi.“
Auðveldari endurkoma til vinnu
Undanfarin ár hefur VIRK lagt
aukna áherslu á atvinnutengingu í
starfsendurhæfingu, það er hvernig
auðvelda megi þjónustuþegum
VIRK endurkomu inn á vinnu-
markaðinn með því að útvega
einstaklingum störf við hæfi – og
fyrirtækjum gott starfsfólk.
„Ráðgjafar VIRK hafa alltaf verið
í góðu samstarfi við atvinnulífið
og flestir einstaklingar sem ljúka
þjónustu VIRK eiga greiða leið
aftur út á vinnumarkaðinn með
aðstoð ráðgjafa. Hins vegar er
alltaf hópur einstaklinga sem býr
við þannig heilsubrest að þörf er
á meiri og sérhæfðari aðstoð við
að finna störf við hæfi. Hér hefur
VIRK komið inn með þjónustu sér-
hæfðra atvinnulífstengla.“
Atvinnulífstenglar VIRK vinna
að því að byggja upp samstarf og
tengsl við fyrirtæki og stofnanir
með það að markmiði að fjölga
störfum fyrir einstaklinga með
skerta starfsgetu. Markmiðið er að
valdefla þjónustuþegana svo þeir
geti staðið á eigin fótum, en þessi
hópur þarf töluverðan stuðning og
eftirfylgni til þess. „Þessi þjónusta
hefur verið í stöðugri þróun hjá
okkur undanfarin ár og sífellt
bætast við fleiri og fleiri fyrirtæki
og stofnanir sem samstarfsaðilar
í þetta mikilvæga verkefni með
okkur.“
Rannsóknir sýna að úrræði
sem tengjast vinnustaðnum eru
oft árangursrík og að vinnan sjálf
getur oft verið besta úrræðið í
starfsendurhæfingunni. Í ljósi
þessa hefur VIRK lagt aukna
áherslu á starfsendurhæfingu sam-
hliða vinnu undanfarin misseri og
hafa margir þjónustuþegar nýtt sér
þennan kost.
Þá hefur forvarnasvið VIRK
boðið upp á nýja þjónustu – Velvirk
í starfi – sem miðar að því að efla
starfsfólk og stjórnendur í starfi.
„Um er að ræða aukinn stuðning
fyrir starfsmenn og stjórnendur í
atvinnulífinu með það að mark-
miði að auka vellíðan í starfi og
koma í veg fyrir brotthvarf af
vinnumarkaði. Bæði stjórnendur
og starfsmenn geta sent inn fyrir-
spurnir og hringt í sérfræðinga
VIRK til að nálgast viðeigandi upp-
lýsingar og ráðgjöf.“
Öflugt forvarnastarf
Vigdís segir VIRK gegna mikilvægu
hlutverki, og vaxandi, í forvörnum
sem hafa það að markmiði að
bæta heilsu og líðan í samfélaginu
og minnka mögulega brottfall af
vinnumarkaði. Vitundarvakningar
eins og „Það má ekkert lengur“ og
„Er brjálað að gera?“ eru hluti af
verkefnum forvarnasviðs VIRK.
Það má ekkert lengur aug-
lýsingin sem flestir hafa tekið eftir
er hryggjarstykkið í vitundar-
vakningu um kynferðislega áreitni
á vinnustöðum, sem VIRK stendur
fyrir í samstarfi við auglýsinga-
stofuna Hvíta húsið. Markmið
vitundarvakningarinnar er að
beina sjónum að þessu þjóðfélags-
meini, vekja upp umræðu og vísa
fólki inn á gagnlegt efni og upp-
lýsingar á velvirk.is.
„Í könnun sem EMC Rannsóknir
gerðu kemur fram að Það má
ekkert lengur auglýsingin hefur
vakið mikla athygli og vakið fólk
til umhugsunar um kynferðislega
áreitni á vinnustöðum. Nærri 9
af hverjum tíu aðspurðra telja til
dæmis að hún veki athygli á mikil-
vægu málefni.“
Þessu tengt ákvað stjórn VIRK
í desember síðastliðnum að veita
sérstaka styrki til sex úrræða
um allt land. „Styrkirnir veita
þolendum kynferðisof beldis
þjónustu auk þess að árlegum
jólastyrk VIRK var að þessu sinni
veitt til verkefnisins „Heim-
ilisfriðar“ sem er meðferðar- og
þekkingarmiðstöð um of beldi í
nánum samböndum.“
Samstaða um VIRK
Vigdís segir starfsemi VIRK hafa
þróast stöðugt og breyst í takti við
áherslur og þarfir samfélagsins á
hverjum tíma. Skilningur á mikil-
vægi markvissrar starfsendurhæf-
ingar fyrir samfélagið fari vaxandi
sem og jákvæðni gagnvart starf-
semi VIRK.
Könnun sem Maskína gerði á
síðasta ári sýndi að 81% svarenda
taldi að VIRK hefði mikla þýðingu
fyrir íslenskt samfélag og nær átta
af hverjum tíu aðspurðra voru
jákvæðir gagnvart VIRK. Einnig
kom fram í könnuninni að um 8%
landsmanna höfðu leitað til VIRK
og sex af hverjum tíu þekktu ein-
hvern sem hefur leitað til VIRK.
„Aðilar vinnumarkaðarins
sýndu mikla framsýni þegar þeir
stofnuðu VIRK og stóðu vörð
um starfsemina á erfiðum fyrstu
árum. Í dag eru öll stóru samtökin
á vinnumarkaði stofnaðilar VIRK
og mikil samstaða hefur verið
meðal þessara ólíku aðila um starf
og framgang VIRK þar sem mark-
miðið er að auka vinnugetu og
lífsgæði einstaklinga um allt land.
Í þessari samstöðu liggur mikill
styrkur.“ n
Vigdís Jónsdóttir, framkvæmdastjóri VIRK, segir VIRK gegna mikilvægu hlutverki, og vaxandi, í forvörnum sem hafa það að markmiði að bæta heilsu og líðan í samfélaginu. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Þórey Edda Heiðarsdóttir, sviðsstjóri mats og rýni, Vigdís Jónsdóttir,
framkvæmdastjóri VIRK, Ásta Sölvadóttir, sviðsstjóri úrræða, og Jónína
Waagfjörð, sviðsstjóri ráðgjafar og atvinnutengingar. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Markmiðið að auka
vinnugetu og lífsgæði
Ráðgjafar VIRK
hafa alltaf verið í
góðu samstarfi við
atvinnulífið og flestir
einstaklingar sem ljúka
þjónustu VIRK eiga
greiða leið aftur út á
vinnumarkaðinn með
aðstoð ráðgjafa.
Vigdís Jónsdóttir
24 kynningarblað 26. janúar 2023 FIMMTUDAGURFélag kvenna í atvinnulíFinu