Fréttablaðið - 26.01.2023, Blaðsíða 90

Fréttablaðið - 26.01.2023, Blaðsíða 90
Umhverfis- vænn og eyðslu- grannur bíll til sölu. Börnin sem Raunveruleikaþáttadrottningin og guð- móðir Kardashian-veldisins, Paris Hilton, kom fylgjendum sínum í opna skjöldu og tilkynnti að hún væri orðin móðir. Stjarnan eignaðist barnið með aðstoð staðgöngumóður en Hil- ton er ekki sú fyrsta til þess að eignast barn án nokkurs fyrirvara. Fréttablaðið rifjar upp börnin sem hreinlega bara birtust. odduraevar@frettabladid.is Jesús María mey var umsetin af heilögum anda og varð því skyndilega þunguð. Jesús Kristur er líklega fyrsta barnið sem vitað er um að hafi hreinlega bara birst. Að því gefnu að hann hafi raunverulega verið til. Ronaldo jr. Annað barn sem hreinlega bara birtist var Cristiano Ronaldo jr. Portúgalska ofurstjarnan tilkynnti heiminum árið 2010 um fæðinguna á sam- félagsmiðlum og tók fram að hann hygðist halda nafni móðurinnar leyndu. Sonurinn er auk þess einungis á hans forræði. Jeremiah van Der Beek Dawson’s Creek stjarnan James van Der Beek og eiginkona hans kvikmyndaframleiðandinn Kimberly van der Beek eignuðust sitt sjötta barn Jeremiah og biðu þar til hann hafði fæðst í nóvember með að tilkynna um komu hans. Í einlægri Instagram-færslu útskýrðu þau að þau hefðu misst fóstur í tvígang og því viljað sitja á fréttunum um Jeremiah litla. Michael Fassbender jr. Sænska leikkonan Alicia Vikander og írski leikarinn Mic- hael Fassbender tilkynntu það í september 2021 að þau ættu eins og hálfs árs gamlan son. Þau hafa haldið syni sínum utan kast- ljóssins og ekkert gefið upp um nafn hans. Alicia opnaði sig síðar í viðtölum um eigin reynslu af fósturmissi og má líklega rekja leyndina til þess. Jupiter Seaborn Sheeran Það var í maí á síðasta ári sem breski hjartaknúsarinn og bandaríska íshokkístjarnan Cherry Seaborn til- kynntu heiminum að þeim hefði fæðst önnur dóttir. Stúlkan var komin í heiminn, falleg og heilbrigð og fékk nafnið Jupiter. Exa Dark Sideræl (Y) X Æ A-12 varð öllum að óvörum stóri bróðir árið 2021 en þá tilkynnti Grimes öllum að óvörum í viðtali í Vanity Fair í apríl á síðasta ári að þau Elon Musk hefðu eignast dóttur í desember 2021 með aðstoð staðgöngu- móður. Barnið fékk eðlilega nafnið Exa Dark Sideræl en foreldrarnir nota hins vegar gælunafnið Y. En ekki hvað. Grimes sagðist hafa viljað kalla dótturina Odysseus Musk en lotið í lægra haldi gegn föðurnum. toti@frettabladid.is Einar Þorsteinsson formaður borgarráðs „Þetta er bara nafnið á bíla- sölunni,“ segir Einar Þorsteins- son, formaður borgarráðs og tilvonandi borgarstjóri, þegar hann er spurður út í torkennilegt einkanúmerið, DIESEL, sem prýðir Skoda Octavia G-Tec bifreiðina sem hann og eiginkona hans Milla Ósk Magnúsdóttir hafa sett á sölu. Einar vakti athygli á því að bíllinn væri kominn á sölu á Face- book með þessum orðum: „Um- hverfisvænn og eyðslugrannur bíll til sölu. Stórglæsilegt og nær ónotað ferðabox á toppinn fæst fyrir lítið í kaupbæti!“ Bifreiðin gengur fyrir bensíni og metani þannig að diesel- merkingin stingur dálítið í stúf eins og Sunna Valgerðardóttir, fyrrverandi samstarfskona Einars á RÚV, benti á í athugasemd við Einar, ertu með einkanúmerið DIESEL? LykiLspurningin | Einar og Milla Ósk bjóða nær ónotað ferðabox í kaup- bæti með Skódanum. MYND/Bilasolur.is Facebook-færsluna: „Kúl einka- númer.“ Fyrirhuguð bifreiðaviðskipti þeirra Millu og Einars hafa vakið fleiri spurningar á Facebook: Á núna að færa sig yfir á Borgar- línuna? Á nagladekkjum? Og eina merkingarþrungna um hvort Einar sé þegar kominn með þau fríðindi borgarstjóra að vera með einkabílstjóra. Mörgu er því enn ósvarað en svarið við lykilspurningunni liggur þó fyrir og dísillinn er Einari og störfum hans í borgarstjórn með öllu óviðkomandi. n Royce Lillian Ástralska leikkonan Rebel Wilson og tískudrottningin Ramona Agruma eignuðust dóttur sína Royce Lillian með aðstoð stað- göngumóður og kynntu Royce fyrir heiminum í nóvember síðastliðnum. Þær kynntust á síðasta ári og hlutirnir gerðust hratt í kjölfarið hjá einstaklingunum sem allt í einu urðu þriggja manna fjölskylda. Michael Cera jr. Hollywood-leikarinn Michael Cera gefur ekkert upp um sinn fyrsta son sem fæddist árið 2021 og hann eignaðist með eiginkonu sinni Nadine. Upp komst um soninn þegar Amy Schumer blaðraði því í viðtali í mars í fyrra að leikarinn hefði eignast barn fyrir hálfu ári. Sjálfur vildi leikarinn lítið segja um barnið annað en að þetta væri sex mánaða gamall drengur. birtust bara 22 lífið FRÉTTABLAÐIÐ 26. jAnúAR 2023 fiMMTUDAGUR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.