Fréttablaðið - 26.01.2023, Blaðsíða 69
Við höfum séð að
starfsánægja í fyrri
könnunum hefur mælst
há og niðurstöður í ár
staðfesta enn frekar
hversu gott er að starfa í
orku- og veitugeiranum.
Heiða Halldórsdóttir
Orkusalan hefur undanfarin
ár styrkt könnun félagsins
Konur í orkumálum þar sem
líðan kvenna í orkugeir-
anum hefur verið könnuð.
Á dögunum voru birtar niður-
stöður úr þriðju könnun félagsins
Kvenna í orkumálum, KÍO, en sú
breyting var í henni að svarendur
voru öll kyn innan tólf stærstu
orku- og veitufyrirtækja landsins.
Heiða Halldórsdóttir er
markaðsstjóri Orkusölunnar en
hjá fyrirtækinu starfa 27 einstakl-
ingar með fjölbreyttan bakgrunn
og er hlutfall kvenna og karla í
framkvæmdastjórn þess jafnt.
Hvers vegna var byrjað að
kanna líðan kvenna í orkugeir-
anum?
„Konur í orkumálum er félag
þeirra sem starfa í orku- og veitu-
geiranum á Íslandi eða hafa áhuga
á honum en félagið var stofnað
árið 2016. Síðustu þrjú ár hefur
félagið staðið fyrir könnun um
líðan starfsfólks og stöðu jafn-
réttismála í orku- og veitugeir-
anum. Orkusalan hefur styrkt
þessa könnun frá upphafi en
Orkusalan leggur mikla áherslu
á starfsánægju og jafnréttismál,“
segir Heiða og bætir við:
„Ástæðan fyrir því að fyrsta
könnunin var gerð var í raun
almenn upplýsingaöflun. Fyrstu
tvö árin var áhersla lögð á að
kanna líðan kvenna í orkugeir-
anum en það hefur hallað á konur
í geiranum og því er mikilvægt
að taka stöðuna og kanna þeirra
upplifun. Með könnuninni
hefur KÍO stigið mikilvægt og
þarft skref í upplýsingaöflun um
geirann í heild sinni.“
Ánægjulegar niðurstöður
Í síðustu könnun var svo könnuð
líðan allra í geiranum. Var það
krafa frá körlunum að fá að vera
með?
„Í síðustu könnun var ákveðið
að kanna líðan alls starfsfólks
óháð kyni þar sem eitt af mark-
miðunum var að skoða mun á
milli kynja. Það er bæði áhugavert
að fá samanburðinn, hvort það
er munur á upplifun kynjanna af
starfi sínu og starfsumhverfi, og
eins sá félagið tækifæri til að fá
yfirsýn yfir heila starfsgrein. Svar-
hlutfall í könnuninni var mjög hátt
og ætti því að gefa góða mynd af
stöðunni,“ segir Heiða.
Hver er líðan fólks og hafa orðið
einhverjar breytingar hjá kon-
unum á milli ára?
„Niðurstöðurnar eru heilt
yfir mjög ánægjulegar. Það sem
stendur upp úr er hversu mikil
starfsánægja er meðal starfsfólks
miðað við markaðinn í heild sinni,
en 90% segjast vera ánægð í starfi.
Við höfum séð að starfsánægja í
fyrri könnunum hefur mælst há
og niðurstöðurnar í ár staðfesta
enn frekar hversu gott er að starfa
í orku- og veitugeiranum. Ég mæli
með að fólk kynni sér könnunina
enn betur á kio.is,“ segir Heiða.
Mikil starfsánægja mælist
hjá Orkusölunni
„Við hjá Orkusölunni höfum
síðustu tvö ár verið með mann-
auðsmælingar innanhúss til að fá
enn skýrari mynd af eigin starf-
semi. Sú könnun kemur mjög vel út
og er í góðu samræmi við könnun
KÍÓ. Við sjáum í okkar könnunum
að það sem skiptir starfsfólk miklu
máli er sveigjanlegur vinnutími og
möguleiki á fjarvinnu. Það skiptir
einnig miklu máli að það ríki góð
liðsheild innan fyrirtækisins og
hvatning frá stjórnendum ýtir
undir starfsánægju,“ segir Heiða.
„Við sjáum líka að sjálfstæði
til ákvarðanatöku er stór áhrifa-
þáttur og kröfur um árangur er
eitthvað sem starfsfólk kallar
eftir. Við erum stöðugt að mæla
og það skiptir gríðarlega miklu
máli að við rýnum í niðurstöður
og komum auga á hvar við getum
bætt okkur. Við verðum að setja
okkur háleit markmið þegar
kemur að líðan starfsfólks og
vinna stöðugt að úrbótum.“
Jafnlaunavottun frá
Jafnréttisstofu
Orkusalan hlaut í fyrra jafnlauna-
vottun frá Jafnréttisstofu.
„Jafnlaunavottun er mikilvægur
þáttur í okkar velferð og er stefna
Orkusölunnar að allt starfsfólk,
óháð kyni, njóti jafnra launa og
sömu kjara fyrir sömu eða jafn-
verðmæt störf, þannig að enginn
ómálefnalegur launamunur sé til
staðar. Við hjá Orkusölunni erum
stolt af þessum góða árangri í
jafnréttismálum og fögnum því að
vera komin í hóp fyrirtækja sem
hafa stigið þetta mikilvæga skref
í átt að auknu jafnræði í íslensku
samfélagi,“ segir Heiða.
Fjölbreyttur hópur starfsmanna
Heiða segir að mikilvægt sé að
starfsemi Orkusölunnar hafi á að
skipa fjölbreyttum hópi starfs-
manna, þar á meðal þegar kemur
að kynjaskiptingu.
„Það skiptir okkur miklu máli að
hafa fjölbreyttan hóp starfsmanna
með ólíkan bakgrunn og reynslu.
Fjölbreytni eykur þekkingu
fyrirtækisins sem hjálpar okkur
að auka samkeppnishæfni og ná
markmiðum fyrirtækisins,“ segir
Heiða.
Orkusalan var stofnuð árið 2006
og er eina sölufyrirtæki raforku
hér á landi sem hefur kolefnis-
jafnað eigin framleiðslu. Rafmagn
Orkusölunnar er eingöngu fram-
leitt með vatnsafli og er því allt
rafmagn fyrirtækisins framleitt
með 100% endurnýjanlegum
orkugjöfum. Það tekur aðeins eina
mínútu að skipta yfir til Orkusöl-
unnar en Orkusalan selur rafmagn
um allt land. n
Nánari upplýsingar má finna á vef-
síðunni orkusalan.is
Mikil starfsánægja
í orkugeiranum
Heiða Halldórsdóttir er markaðsstjóri Orkusölunnar. MYNDIR/ElísabEt blöNDal
Frá vinstri eru: Elísabet Ýr Sveinsdóttir, Jóhanna Baldursdóttir, Sunneva Árnadóttir, Lilja Sóley Pálsdóttir, Hrafnhildur
Gísladóttir og Áslaug Sól Sigurðardóttir. Þær starfa allar á fjármálasviði Orkusölunnar.
kynningarblað 53FIMMTUDAGUR 26. janúar 2023 Félag kvenna í atvinnulíFinu